Frjáls verslun - 01.04.1973, Page 86
1964. íslenzk lög leyfa ekki að
erlend fyrirtæki eigi eða reki
hér viðskipti nema með sérstöku
leyfi og því var það, að þegar
rafreiknar fóru að verða algeng-
ir hjá viðskiptafyrirtækjum í
nágrannalöndunum og fyrirsjá-
anlegt að sama þróun myndi
verða hér, útvegaði IBM sér
þetta leyfi. Stofnaði Ottó þá úti-
bú fyrir tölvurnar á Klappar-
stígnum en réði Sigurð Gunnars-
son framkvæmdastjóra Skrif-
stofuvéla h.f. sem hafa aðsetur
á Hverfisgötu 33. Það fyrirtæki
flytur inn skrifstofuvélar frá
IBM.
Eins og áður kom fram eru nú
hér á landi milli 10 og 20 tölv-
ur af mismunandi stærðum og
eru þær allar staðsettar á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Stærsta
tölvan er hjá Skýrsluvélum rík-
isins og Reykjavíkurborgar og
hefur hún 96.000 minniseiningar
eða 87 milljón stafa seguldiska-
rými, en nú á næstunni stendur
til að stækka þessa tölvu veru-
lega. Eins og hún er í dag er
hún leigð fyrir um 1.5 milljón
króna á mánuði. Ódýrustu IBM
tölvurnar sem hér eru kosta um
100 þúsund krónur á mánuði.
Flestar eru þær hjá stórum við-
skiptafyrirtækjum svo sem SÍS
og ísal og hjá Bönkunum. Há-
skóli íslands heíur undir hönd-
um eina tölvu, sem hann hefur
keypt.
KOSTIR LEIGUFYRIR-
KOMULAGS
Leigufyrirkomulagið hefur
marga kosti fyrir viðskiptavin-
ina. Það gerir t. d. endurnýjun
auðveldari. Þó er stofnkostnað-
ur alltaf allverulegur hér á landi
þegar fengin er ný tölva, því af
henni þarf að borga háa tolla
þó að hún sé einungis leigð. Áð-
ur en útibúið var sett á laggirn-
ar borgaði IBM ekki skatt af
leigu tölvanna, en með tilkomu
þess, breyttist þetta og er IBM
nú einn af hæstu skattgreiðend-
um landsins.
Við spurðum þá Jóhann og
Jón, hvort hægt væri að áætla
hve marga menn ein tölva leysti
af hólmi, eins og t. d. sú er
Skýrsluvélar ríkisins og Reykja-
víkurborgar hefur undir hönd-
um. Þeir kváðu ógerlegt að segja
til um það, því að stofnunin hef-
ur haft tölvu síðan 1964 og öll
aukning innheimtu síðan þá t.d.
á símnotendum, skattgreiðend-
um og þess háttar hefur aldrei
verið unnin öðru vísi en í tölvu.
Sú tölva annast fleira en inn-
heimtu. Hún sér t. d. um bók-
hald margra stofnana ríkis og
borgar.
Stækkuninni sem fyrirhuguð
er á tölvunni er ætlað að taka
við svokallaðri fjarvinnslu fyrir
Borgarspítalann, sem verður
unnin frá spítalanum gegnum
símakerfi og virkar þá eins og ef
spítalinn hefði tölvuna innan
sinna veggja. Þetta er eitt
stærsta verkefni sem framund-
an er hjá IBM á íslandi.
Hjá Báru:
„íslendingar hafa varla uppgötvað
þetta stórkostlega viðskiptaland*4
■ segir Bára Sigurjónsdóttir um viðskipti við bandarísk fyrirtæki
Það eru áreiðanlega fáar
konur á Reykjarvíkursvæðinu
a.m.k., sem ekki þekkja verzl-
unina Hjá Báru í Austurstræti.
Þar verzlar frú Bára Sigur-
jónsdóttir með kvenfatnað og
fleiri vörur frá Bandaríkjun-
um og fyrir skömmu brugðum
við okkur í heimsókn til
hennar til að fræðast um
hvernig slík viðskipti fara
fram.
Um 15 ár eru nú síðan Bára
sneri viðskiptum sínum svo til
eingöngu til Bandaríkjanna, en
verzlunina hefur hún rekið í 22
ár. Hún er ákaflega hrifin af að
eiga viðskipti við Bandaríkja-
menn og telur að hvergi sé auð-
veldara og þægilegra að verzla
en einmitt þar a. m. k. á því
sviði, sem hún starfar á.
UMBOÐSMAÐUR í BANDA-
RÍKJUNUM
Bára fer sjálf í innkaupaferð-
ir til New York 4—5 sinnum á
ári hverju og fara innkaupin
þannig fram að hún snýr sér
strax til umboðsmanns, sem hún
hefur í borginni. Hann fer síðan
með henni i miðstöð fataiðnað-
arins í 6th Avenue þar sem gíf-
urlegur fjöldi framleiðenda og
heildsala hefur aðsetur. Hafa
þeir að mjög miklu leyti raðað
niður fyrirtækjum sínum þann-
ig að í hverjum skýjakljúfi er
yfirleitt að finna aðeins eina
vörutegund, t. d. blússur í ein-
um, kjóla í öðrum o. s. frv.
Þarna hanga flíkurnar á slám
þar senf kaupmenn velja úr
þeim og gera pantanir og sér þá
umboðsmaðurinn um að allt
fari rétt og vel fram. Bára sagði
afgreiðslufólk þarna jafnelsku-
legt við sig og stóra viðskipta-
menn, þó að hún kaupi yfirleitt
aldrei nema eitt stykki af hverri
flik og stundum ekki nema eina
flík í hverju fyrirtæki. Taldi
hún alveg nauðsynlegt fyrir
kaupmenn að hafa slíkan um-
boðsmann t. d. væri hann á skrá
hjá fyrirtækjunum, svo þau
vissu að hans viðskiptum væri
hægt að treysta, og fyrir kaup-
manninn væri þetta til ómetan-
legrar aðstoðar, því auk þess að
vera mjög vel heima í þessum
sérstaka viðskiptaheimi annast
hann allt framhald pantananna,
þ. e. pakkar og sendir til síns
viðskiptavinar og gætir hags-
muna hans í hvívetna.
ÓAÐFINNANLEG
FRAMKOMA
Vörusvik sagðist Bára ekki
þekkja úr sínum 15 ára viðskipt-
um við Bandaríkjamenn enda er
þetta land „frjálsrar verzlunar11
og hin geysiharða samkeppni
knýr verzlunarmenn til að koma
óaðfinnanlega fram við við-
skiptamenn sína hversu smáir
sem þeir kunna að vera, því að
86
FV 4 1973