Frjáls verslun - 01.04.1973, Blaðsíða 93
AFANGAR
Þorvarður Elíasson, viðskipta-
fræðingur, var nýlega ráðinn
framkvæmdastjóri Verzlunar-
ráðs íslands. Hann er fæddur 9.
júlí árið 1940, sonur Elíasar Ingi-
marssonar og Guðnýjar Jónas-
dóttur frá Hnífsdal.
Þorvarður er viðskiptafræð-
ingur frá Háskóla íslands, hann
var starfsmaður kjararannsókn-
arnefndar árin 1965—1969, en
rak síðan eigin fyrirtæki ásamt
tveim verkfræðingum á árunum
1970—1972. Eiginkona Þorvarð-
ar er Inga Rósa Sigursteinsdótt-
ir.
Freysteinn Jóhannsson hefur
tekið við stöðu ritstjóra og
ábyrgðarmanns Alþýðublaðsins.
Freysteinn er fæddur 25. júní
1946, sonur Friðþóru Stefáns-
dóttur og Jóhanns Þorvaldsson-
ar kennara. Freysteinn varð
stúdent frá Menntaskólanum að
Laugarvatni árið 1966 og hóf
störf sem blaðamaður við Morg-
unblaðið ári seinna. Hann stund-
aði framhaldsnám í blaða-
mennsku við Norsk Journalist-
skole í Osló árið 1970. í fyrra-
sumar gengdi Freysteinn starfi
blaðafulltrúa Skáksambands ís-
lands meðan heimsmeistaraein-
vígið í skák stóð yfir. Eiginkona
Freysteins er Viktoría Ketils-
dóttir, Símonarsonar á Selfossi.
Hörður Bjarnason var nýlega
ráðinn blaðafulltrúi og deildar-
stjóri hjá Menningarstofnun
Bandaríkjanna á íslandi.
Hörður er fæddur 20. febrúar
1944, sonur Kötlu Pálsdóttur og
Harðar Bjarnasonar, húsameist-
ara ríkisins. Hörður tók stúd-
entspróf frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1965 og stundaði
síðan nám í stjórnvísindum, við
Macalester College í St. Paul,
Minnesota og lauk þaðan prófi
1970. Hann tók síðan MA. próf
í International Relation frá
Minnesota Háskóla árið 1972.
Um skeið starfaði Hörður að
rannsóknarstörfum og aðstoðar-
kennslu í Minnesotaháskóla á
vegum Mid-West Universities
Consortium. Eiginkona Harðar
er Áróra Sigurgeirsdóttir, Ein-
arssonar, sölustjóra hjá Múla-
lundi.
Magnús Gunnarsson, viðskipta-
fræðingur, hefur verið ráðinn
skrifstofustjóri hjá Sölusam-
bandi íslenzkra fiskframleið-
enda.
Magnús er fæddur í Reykja-
vík 6. september 1946, sonur
Gunnars Magnússonar, skip-
stjóra, og Kristínar Valdimars-
dóttur. Hann lauk stúdentsprófi
frá Verzlunarskóla íslands 1967
og prófi við viðskiptadeild Há-
skóla íslands árið 1971.
Magnús starfaði 1971—1972
sem framkvæmdastjóri Banda-
lags háskólamanna og sem hag-
fræðikennari við verzlunarskól-
ann. Magnús er ritstjóri tíma-
ritsins Eimreiðarinnar.
Eiginkona Magnúsar er Gunn-
hildur Gunnarsdóttir.
BÓKIIXI
VÍIM SKAL
TIL VIIMAR
DREKKA
UPPSLÁTTARRIT
ÞEGAR GESTI
BER AÐ GARÐI
IJTGEFAIMDI
FV 4 1973
93