Frjáls verslun - 01.08.1973, Síða 43
Hafnarf jörður:
Búizt við, að
árið 1983
íbúar verði 14 -15 þús.
Kristinn Ó. Guðmundsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði.
í Hafnarfirði verður lokið við
150 nýjar íbúðir á þessu ári og
er það svipaður fjöldi og síðustu
tvö ár. Skiptast þær nokkurn
veginn jafnt á milli einbýlis- og
tvíbýlishúsa annars vegar og
fjölbýlishúsa hins vegar. í árs-
byrjun 1973 voru 329 íbúðir í
byggingu og á þessu ári hafa
framkvæmdir verið hafnar við
180 íbúðir.
Samkvæmt upplýsingum
Kristins Ó. Guðmundssonar,
bæjarstjóra, er nú byggt í svo-
kölluðum Norðurbæ, þar sem i
framtíðinni eiga að verða 1150
íbúðir. Þar af er búið að úthluta
600 íbúðum en því sem eftir
er verður ráðstafað á næstu 3—
4 árum. Einu sinni á ári er aug-
lýst eftir umsóknum um lóðir
og eru það mikið til sömu verk-
takarnir, sem unnið hafa að
byggingum í Hafnarfirði sein-
ustu árin. Hafnfirðingar ganga
að jafnaði fyrir varðandi úthlut-
un á einbýlishúsalóðum og raun-
ar hafa ekki aðrir en þeir feng-
ið slíka úthlutun undanfarin tvö
ár.
15000 MANNS ÁRIÐ 1983.
íbúafjöldinn í Hafnarfirði var
hinn 1. desember í fyrra 10694
og hafði þá fjölgað um 600
manns á árinu 1972. Gert er ráð
fyrir að fjölgunin verði um 500
manns á þessu ári en á skipu-
lagstímabilinu, sem nær til 1983
búast ráðamenn í Hafnarfirði
við að mannfjöldinn í bænum
komist í 14—15000 manns. Aðal-
skipulagið í Hafnarfirði er frá
1933, en nú hafa verið lagðar
fram tillögur að nýju skipulagi,
sem væntanlega verður afgreitt
í haust. Þegar uppbyggingu
Norðurbæjarins lýkur er áform-
að að taka land undir bygginga-
lóðir í nýju hverfi í svokölluðum
Hvömmum í suðurhluta Hafnar-
fjarðarbæjar og verða þar um
2500 íbúar. Síðan munu íbúðar-
hús verða reist á sunnanverðu
Hvaleyrarholti og þegar fram i
sækir í Áslandi sunnan Reykja-
nesbrautar.
Iðnaðarhverfi er að verða full-
byggt bæjarmegin við Reykja-
nesbraut, upp af Engidal. Næst
liggur fyrir að reisa iðnaðar-
húsnæði á nýju svæði handan
Reykjanesbrautar, nær Garða-
hreppi. Sunnan bæjarins, í ná-
grenni álsversins í Straumsvík
á svo Hafnarfjörður land fyrir
stóriðju, sem ekki er ljóst á
þessu stigi, hvernig nýtt verður.
VAXANDI IÐNAÐUR.
Af vinnandi fólki í Hafnar-
firði starfa um 36% þar í bæ og
er það svipað og gerist í öðrum
nágrannasveitarfélögum Reykja
víkur. Þetta hlutfall hefur
hækkað úr 27,4% síðustu fjögur
árin og á álverksmiðjan stærst-
an þátt í því. Þá hefur ýmis smá-
iðnaður, t. d. járn- og málmiðn-
aður og fataiðnaður risið þar og
skapað aukin atvinnutækifæri.
Engar verzlunarlóðir liggja
nú á lausu hjá Hafnarfjarðarbæ.
Síðasta úthlutunin var gei’ð til
Kaupfélags Hafnfirðinga, sem
nú reisir 8 hæða verzlunar- og
íbúðai'hús i Norðurbænum.
Verzlunin er þegar tekin til
starfa í 700 fermetra húsnæði
en bygging aðalverzlunarhúss-
ins, sem verður 1500 fermetrar
er enn ekki hafin. í húsinu eru
60 íbúðir, sem nú eru tilbúnar
undir tréverk. Skagar þetta hús
nokkuð áberandi upp úr byggð-
inni á þessum slóðum og virðist
vera í ósamræmi við skipulag
en nú er fyrii'hugað annað á-
móta stórhýsi þarna skammt
undan til að vega upp á móti
kaupfélagsbyggingunni og er
það DAS, sem þar mun byggja
íbúðarhús fyrir aldraða.
Aðspurður sagði bæjarstjói'-
inn að ekki lægju fyi’ir neinar
tölur um hvaðan aðflutningur
til Hafnarfjarðar ætti sér stað.
Meðaltalsfjölgun íbúa er 5% á
ári en landsmeðaltal er 1%. Er
búizt við svipaðri þróun á næsta
ári, um 500 manna fjölgun ár
hvert.
FV 8 1973
43