Frjáls verslun - 01.10.1973, Blaðsíða 11
Magnús Kjartansson
er að verða helzti höf-
uðverkur embættis-
manna utanríkisráðu-
neytisins, bæði hér heima
og erlendis. Magnús ferð-
ast talsvert á milli landa,
en kann því nú afarilla
sakir virðingarauka, sem
ráðherratitlinum fylgir
að taka taxa frá flugvöll-
um á hótel eins og al-
menningur verður að
gera.
Iðnaðarráðherrann
Kjartansson ætlast til
þess að fulltrúar sendi-
ráða íslands séu jafnan
til þjónustu reiðubúnir,
þegar hann ber niður í
útiandinu. I þeim tilfell-
um, sem þetta hefur
brugðizt að undanförnu,
hefur ráðherrann með
valdsmannshroka klagað
til utanríkisráðuneytisins.
Stjarna Ólafs Ragnars
Grímssonar fer ört iækk-
andi í röðum róttækari
framsóknarmanna og
hálfkomma um þessar
mundir. Frumhlaup hans
og annarra í meirihluta
útvarpsráðs á dögunum
hefur mælzt illa fyrir hjá
sumum áhrifamönnum í
þessum hópi, sem telja
Ólaf ófínni pappír fyrir
bragðið.
Sem kunnugt er var
tilboði frá þýzkum og
sovézkum framleiðendum
tekið í vélabúnað Sig-
ölduvirkjunar. Þótti
málatilbúnaður í því
sambandi allur hinn
furðulegasti og mjög ein-
kennast af pólitískum
þrýstingi frá Rússum,
enda var tilboð þeirra
ekki hagstæðast. Nú hafa
heyrzt raddir um að
samningarnir við Rússa
séu enn óhagstæðari en
látið hefur verið uppi. Er
í því sambandi taiað um
að stöövarhús þurfi að
stækka vegna vélanna
frá þeim, en þær ku líka
vera gamaidags miðaðvið
það, sem gerist á Vestur-
löndum. I»á óar mörgum
við því, að þessir samn-
ingar gera ráð fyrir meir
en 1000 milljón króna
láni frá Rússum, þannig
að samanlagt verði skuld-
ir Islendinga við þá
komnar þar með á þriðja
milljarð. Einnig ætla
Rússar að flytja inn dá-
laglegan fjölda „sérfræð-
inga“ til að setja vélarn-
ar niður.
Borgarstjórnarkosning-
ar fara fram í Reykjavík
hinn 26. maí næstKom-
andi. Minnihlutaflokk-
arnir í borgarstjórn
reyna nú að sameinast
um borgarstjóraefni, en
finna engan heppilegan
pólitískan samnefnara úr
eigin röðum. Kommar
hafa því látið það boð út
ganga, að borgarstjórinn
eigi að verða pólitískt
ábyrgðarlaus, sem sé
embættismaður, ráðinn
til ákveðins tíma. Heyrzt
hefur að kommar ætli nú
að bera víurnar í for-
stöðumann hagrannsókna
deildar Framkvæmda-
stofnunar ríkisins, og
reyna að fá hann sem
borgarstjóraefni sitt.
Á undanförnum árum
hafa risið veglegar verzl-
unarmiðstöðvar víðs veg-
ar um bæinn, þar sem
fjöldi verzlana og þjón-
ustufyrirtækja hefur
komið sér fyrir. Eftir
nokkurra ára sameigin-
legan rekstur þessara að-
ila virðist svo sem algert
ófremdarástand ríki í
sambúðinni, þar sem hót-
anir og klögumál ganga
á víxl. Undantekning frá
þessu er verzlunarmið-
stöðin Norðurver, þar
sem samkomulag við-
skiptaaðila virðist vera
hið bezta.
Meðal almennings er
mjög misjafnlega látið
af því fólki, sem kem-
ur fram í fréttaskýr-
ingaþáttum sjónvarps-
ins, einkanlega þættin-
um Landshorni. „Frétta-
skýrendurnir" þykja
ekki ýkja trúverðugir,
enda viðvaningsbragur
mjög áberandi á flutn-
ingi flestra þeirra. Þykir
skjóta skökku við, að út-
varpsráð tilnefndi þetta
fólk eftir pólitískum lín-
um eingöngu og án nokk-
urar prófunar í sjón-
varpi, á sama tíma og
einni af fyrstu og vinsæl-
ustu þulum sjónvarpsins
var hafnað, er hún sótti
um endurráðningu í sitt
gamla starf fyrir stuttu.
Var það dómur forráða-
manna sjónvarpsins, að
hún væri óhæf!
Bætt sambúð þeirra
Brésnévs og Nixons eft-
ir gagnkvæmar heim-
sóknir hefur að sumu
leyti orðið til að auka
samgang milli Sévét-
manna og Bandaríkja-
manna. Þetta segir jafn-
vel til sín hér á Islandi,
þar sem sovézkir diplo-
matar senda börn sín í
fyrsta skipti í amerískan
skóla, sem sendiráð
Bandaríkjanna í Reykja-
vík starfrækir fyrir börn
diplómata.
FV 10 1973
11