Frjáls verslun - 01.10.1973, Page 79
Smíftastofa Sverris
H allgrímssonar:
Anno og
stuðlaskilrúm
Húsgögnin frá smíðastofu
Sverris Hallgrímssonar eru
löngu þekkt meðal lands-
manna. Þar eru smíðaðar tvær
tegundir af húsgögnum: Anno
hillusamstæðan kunna og
stuðlaskilrúm svokallað.
Anno hillusamstæðan er
mjög vinsæl í barna- og ungl-
ingaherbergi, og er hún teikn-
uð af Sverri Hallgrímssyni og
jafnframt smíðuð á smíðaverk-
stæði hans. Anno táningasettið
er úr léttum einingum, þannig
að bæta má við hana og breyta
eftir þörfum og formið fellur
að flestu.
Anno táningasettið er smíð-
að úr plötum, sem síðan eru
litaðar og lakkaðar. Anno er
til í fjórum litum, bláu, rauðu,
grænu og appelsínugulu. Með
Anno settinu er skrifborð og
hillur. Anno settið er ódýrt og
nauðsynlegt í hvert barnaher-
bergi.
Húsgagnavinnustofa
Ólafs Þorbergssonar:
IMýjar
hiElusamstæðor
í húsgagnavinnustofu Olafs
Þorbergssonar eru smíðuð
mjög falleg skatthol, hjóna-
rúm, hillur, náttborð o. f 1., og
er smíði á húsgögnum þessum
mjög vönduð.
í sumar var hafin fram-
leiðsla á hillusamstæðum, og
hefur verið lögð áherzla á þá
smíði í sumar. Hillusamstæð-
urnar eru úr palesander og
plasthúðuðum plötum með
hvítu lakki. Bakið á hillusam-
stæðunni svo og skáphurðirnar
eru úr palesander, en hillurn-
ar sjálfar úr plötum, sem eru
plasthúðaðar með sýruhertu
lakki. Þessar nýju hillusam-
stæður eru mjög fallegar og
hafa verið mjög vinsælar. Þær
sóma sér á hverju heimili, og
eiga vel við í svefnherbergjum,
stofu, borðstofu og forstofu.
Verðið á hverri einingu er um
Anno hillusamstæða.
Vinsældir stuðlaskilrúmsins
fara sívaxandi, og hefur orðið
sex földun í sölu á þeim fyrstu
sex mánuði þessa árs miðað
við fyrstu sex mánuði ársins
áður. Stuðlaskilrúm er góð
lausn á því vandamáli að
skipta stórum herbergjum eða
skilja á milli herbergja án þess
að nota fasta heila veggi.
Stuðlaskilrúmið getur einn-
ig staðið uppi við vegg og er
það til mikillar prýði á þeim
heimilum, sem það gera.
Stuðlaskilrúmið er aðeins fá-
anlegt í einni viðartegund,
saphly maghony. Það er að öllu
leyti úr viði og þess má einnig
geta að hægt er að fá viðinn
litaðan, ef þess er óskað.
32 þúsund krónur út úr verzl-
un.
Skattholin, sem smíðuð eru
hjá húsgagnavinnustofunni eru
sérstaklega glæsileg húsgögn
og hafa verið mjög vinsæl allt
frá því, að framleiðsla á þeim
var hafin. Nú eru framleidd
5-600 skatthol á ári. í hverju
skattholi eru 3 stórar skúffur
og 2 litlar svo og spegill og
snyrtihólf. Verðið á skatthol-
unum út úr verzlun er rúmar
20 þúsund krónur.
Einnig eru smíðuð þar mjög
skemmtileg og falleg hjóna-
rúm. Viðurinn í þeim er einnig
plasthúðaður með sýruhertu
plastlakki. Þá eru einnig til
náttborð, snyrtikommóður og
kollar. Þessi húsgögn miða öll
að því að gera svefnherbergið
vistlegan og skemmtilegan
íverustað.
L
FV 10 1973
79