Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1973, Blaðsíða 75

Frjáls verslun - 01.10.1973, Blaðsíða 75
HHUIIIHMMUM HIÍSGAGNAKVIMNING Þetta skatthol er eitt þeirra húsgagna, sem á boðstólum eru nú. Sífellt eru að koma á mark- aðinn nýjar gerðir af húsgögn- um s. s. sófasettum, raðsófa- settum, hjónarúmum, borð- stofuhúsgögnum o. fl. Tízkan breytist og menn gera nú aðrar ■kröfur til híbýlagerðar en áð ur fyrr. Ungt fólk hefur fast- mótaðan smekk og aðhyllist frjálslegan stíl í híbýlagerð. Sala á húsgögnum hefur ver- ið mikil í húsgagnaverzlunum undanfarið. Raðsett njóta t. d. mikillar hylli meðal ungs fólks, sem kýs helzt húsgögn, sem gera þeim kleift að raða þeim upp eins og bezt hentar. Til eru fjölmargar gerðir af raðsettum, með mismunandi gerðum af á- klæðum. Bæði eru til stólar sem eru 6 kantaðir, einnig stól- ar með lausum púðum og loks stólar með föstu baki og setum. Þessi raðsett eru í poppstíl og eiga því vel við þann húsgagna- smekk, sem ungt fólk hefur nú. Ungt fólk gerir þær kröfur til sófasetta nú, að þau séu nýtízku leg. Sófasettin eiga miklum vin- sældum að fagna nú sem fyrr. Það er álit margra, að sófasett sé ómissandi húsgagn og verði að vera á hverju heimili. Við skiptavinir geta valið um ótal gerðir í hinum mismunanai húsgagnaverzlunum. 3ja sæta sófi, 2ja sæta sófi og stóll, sem mynda eitt sófasett er vinsæl- asta gerðin af sófasettum, sem á boðstólum eru nú. Úrval af borðstofuhúsgögn- um er mikið í húsgagnaverzlun- um nú. Mörg eru algerlega inn- lend framleiðsla, hönnuð og smíðuð af íslendingum, en önn- ur eru framleidd samkvæmt er- lendum einkaleyfum, eða flutt inn. Til eru ýmsar gerðir af slíkum borðstofusettum í öll- um viðartegundum, eða lituð, en lituð húsgögn njóta mikilla vinsælda nú, einkum meðal ungs fólks. Hillusanastæður og millivegg- ir til að skipta herbergjum, eru þau húsgögn, sem eru mjög að skapi manna nú og eru mikið keypt. Milliveggir eru góð lausn á þvi vandamáli að nýta íbúðina sem bezt. Hentugt er að skipta stórri stofu í borð- og stássstofu með slíkum milli- vegg. Milliveggi má ekki aðeins nota til að skipta herbergjum, heldur geta þeir einnig staðið upp við vegg. Úrval af hillum og skápum í slíkar samstæður er mikið. Úrval af öðrum hillu- samstæðum er einnig mikið bæði í antik stíl, því slík hús- gögn falla ævinlega að smekk einhverra og svo eftir nýjustu tízku. Margar þessara hillu- samstæðna gefa mikla mögu- leika og getur viðskiptavinur- inn sjálfur raðað hillunum upp að vild. Allir keppast við að prýða heimili sín með sem beztum og fallegustum húsgögnum. En menn fara mikið eftir því, hvað er í tízku á hverjum tíma. Islendingar sækja fyrirmynd sína í húsgagnageið til Norður- landa og framleiða margir ís- lenzkir ’núsgagnasmiðir sam- kvæmt skandinavísku einka- leyfi. Frjáls verzlun birtir nú kynn- ingu á hinum fjölmörg'u hús- gögnum, sem á boðstólum eru til hagræðingar fyrir lesendur, sem eru í leit að hentugum hús- gögnum. Þessar kynningar eru auglýsingar frá mörgum hús- gagnaverzlunum og framleið- endum í Reykjavik, Kópavogi og Hafharfirði. Nær allir, sem blaðið sneri sér til vildu aug- lýsa og kynna sín húsgögn, svo lesendur geti kynnt sér hvað þeir hafa á boðstólum. L FV 10 1073 75
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.