Frjáls verslun - 01.10.1973, Blaðsíða 33
Samlíðarmaður
Jón Kjartansson:
„Im áfengishættuna þarf að fjalla
af fullu hispursleysi ■ skólum46
Yfirleitt er nú venjan sú, að ríkisfyrirtæki séu í augum almennings þjónustustofnanir,
sem að meira eða minna leyti eru reknar með niðurgreiðslum af fé skattgxeiðendanna. Ein
undantekning er þó afaráberandi í þessu efni, en það er Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins,
sem skilar til ríkisins um 10% af öllum tekjum þess.
Það er sem kunnugt er Jón
Kjartansson, sem stjórnar
rekstri þessa mikla fyrirtækis,
sem Á.T.V.R. er. Jón er búinn
að gegna forstjórastarfinu síð-
an 1957, en áður hafði hann
verið bæjarstjóri á Siglufirði
í 10 ár, og skrifstofustjóri og
verkstjóri hjá Síldarverksmiðj-
um ríkisins þar nyrðra enn
fyrr. Frjálsri verzlun er
ánægja að kynna Jón sem sam-
tíðarmann að þessu sinni og
birta hér með nokkurn fróð-
leik um rekstur Áfengis- og
tóbaksverzlunar ríkisins eins
og hann gengur um þessar
mundir.
FV spurði Jón fyrst nokkuð
um upphaf ríkiseinkasölu á
áfengi og tóbaki.
— Það er nú 51 ár síðan
Peter Mogensen, lyfsali á Sevð-
isfirði, var skipaður forstjóri
Áfengisverzlunar ríkisins. Það
er alltof langt mál að fara að
rekja hér sögu Áfengisverzlun-
arinnar og síðar Áfengis- og
tóbaksverzlunar ríkisins, en ég
leyfi mér að minna á, að 1921
flutti þáverandi ríkisstjórn á
Islandi, ráðuneyti Jóns Magn-
ússonar, frumvarp til laga um
einkasölu á áfengi og jafn-
framt frumvarp til laga um
einkasölu á lyfjum að því er
varðaði innflutning.
Alþingi féllst ekki á lyfja-
einkasöluna, en tók upp j
áfengiseinkasölulögin ákvæði
um, að Áfengisverzlunin keypti
inn lyf fyrir ríkissióð og
lækna, sem rétt hefðu til lyfja-
söiu. Lögin um Áfengisverzlun
ríkisins fóru ekki hávaðalaust
Jón Kjartansson forstjcri.
FV 10 1973
33