Frjáls verslun - 01.10.1973, Blaðsíða 65
Fyrirtaehi.Herur,
Htausta
Fasteignasalan IVlordurveri:
„Fasteignir við alira hæfi”
Rætt við Hilmar Valdimarsson, fasteignasala
Hilmar Valdimarsson, fastcignasali.
Verð íbúða fer síhækkandi,
og þörf á húsnæði á Stór-
Reykjavíkursvæðinu er mjög
mikil. Verð á 3ja herbergja
íbúð hefur hækkað um 35-40%
frá því á síðasta ári, og 3ja
herbergja íbúð í fjölbýlishúsi,
sem kostaði 1600-1800 þúsund
krónur fyrir IV2 ári, kostar
nú um 3 milljónir króna til-
búin. Hvað veldur þessum
miklu hækkunum? Frjáls
verzlun átti nýlega samtal við
Hilmar Valdimarsson, fast-
eignasala, og ræddi við hann
um þessi mál.
Sagði Hilmar, að þessar gíf-
urlegu hækkanir á íbúðarverði
stöfuðu m. a. af hækkunum á
heimsmarkaði. Sagði hann
einnig, að byggingarþörfinni á
Stór-Reykjavíkursvæðinu væri
alls ekki fullnægt, og síðast
en ekki sízt hefði gosið í Vest-
mannaeyjum í byrjun þessa
árs hleypt verði íbúða nokkuð
upp.
Hilmar rekur fasteignasölu í
Norðurveri við Hátún 4A í
Reykjavík, og hefur hún verið
starfrækt frá því árið 1965, en
Hilmar hefur starfað við og
rekið fasteignasölu s.l. 12 ár.
Var fasteignasalan fyrst til
húsa í eldri hluta hússins. en
flutti síðan í nýrri hlutann fyr-
ir um það bil 2 árum, þar sem
hún hefur verið starfrækt síð-
an.
Eigendur fasteignasölunnar
eru þeir Hilmar Valdimarsson
og Jón Bjarnason hrl, en auk
þeirra eru þar starfandi tveir
sölumenn. Sagði Hilmar, að
mjög dýrt væri að reka fast-
eignasölu, og mætti nefna sem
dæmi, að um 500 þúsund krón-
ur færu í auglýsingakostnað
árlega.
Meðalverð á 2ja herbergja
íbúð er nú 2.3-2.5 milljónir
króna. 3ja herbergja íbúð kcst-
ar 3.8-4 milljónir króna og 5
herbergja íbúð um 4y2 milljón.
Miðað er við, að allar íbúðirn-
ar séu í fjölbýlishúsi. Meðal-
verð á íbúð í fullgerðu rað-
húsi er nú um 6 milljónir, og
verð á fullgerðu einbýlishúsi
er milli 6 og 10 milljónir
króna.
, Eftirspurn eftir 2ja og 3ja
þerbergja íbúðum er mikil, en
þörfinni hefur ekki enn verið
fullnægt. Sagði Hilmar, að eft-
irspurn eftir íbúðum í ár hefði
verið meiri en síðasta ár, og
ekki væri nægilega mikið
byggt á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu.
Árin 1970-71 fór að gæta ör-
ari hækkana á fasteignum en
verið hafði. 1971 kostaði 2ja
herbergja íbúð 1300-1500 þús-
und krónur. Verð á 3ja her-
bergja íbúð var 1600-1800 þús-
und krónur, 4ra herbergja íbúð
2-2.2 milljónir og 5 herbergja
íbúð kostaði 1971 2y2 milljón.
Er miðað við verð á íbúðum í
fjölbýlishúsum. Sem dæmi um,
hve hækkun á fasteignum hef-
ur verið ör síðustu árin, má
nefna, að verð á 5 herbergja
FV 10 1973
65