Frjáls verslun - 01.10.1973, Side 27
Umferðaröryggi:
Loftpúðar væntanlegir í amerískum
bílum þegar á næsta ári
Svo virðist sem loftpúðar í
bifreiðum verði áður en langt
um líður orðin helzta öryggis-
ráðstöfun í stað bílbeltanna,
sem nú er skylda að hafa í nýj-
um bílum. Fréttir frá bíla-
framleiðsluborgum Bandaríkj-
anna herma, að enda þótt loft-
púðarnir séu enn á tilrauna-
stigi, og mjög umdeildir, megi
búast við þeim á markaði
snemrna árs 1974, og þá sem
valkosti, er sérstaklega greið-
ist fyrir.
Verkfræðingar í bílaiðnaðin-
um eru sagðir ánægðir með
árangurinn, sem fengizt hefur
til þessa í tilraunum á vegum
úti við þau skilyrði, sem venju-
legir ökumenn geta átt von á.
Loftpúðarnir verka þannig:
Við högg framan á bílinn
fyllast púðarnir, sem komið er
fyrir undir mælaborði og í
undirstöðu stýrisins, út af lofti
á sama andartaki og árekstur
verður, og ver þannig öku-
mann og farþega í framsæti
gegn því að lenda á stýrinu,
framrúðu eða mælaborði.
VÍÐTÆKAR RANNSÓKNIR
Núna munu vera um 1500
bílar með þessum útbúnaði í
umferð í Bandaríkjunum. Þeir
hafa ekið samanlagt meira en
48 millj. kílómetra og hafa
lent í 250 árekstrum og slys-
um. Aðeins í 12 tilfellum var
um svo harðan árekstur að
ræða, að púðarnir þendust
sjáitkrafa út.
Kannsóknarmenn frá fram-
leiðslutyrirtækjunum hafa
rannsakað hvert sfys mjög ná-
kvæmfega og niðurstaðan er,
að púðarnir hafi sannað giidi
sitt í hvert skipti sem þeirra
var þörf. Til þess að púðinn
fyllist þarf höggið framan á
bílinn að vera jafnþungt og
um árekstur væri að ræða á
steinvegg á 20 km hraða.
Nærri 1000 af bílum með
loftpúða, sem nú aka á veg-
um vestan hafs, eru Chevrolet
Impala, árgerð 1973, frá Gen-
eral Motors. Hinir eru árgerð
1972 af Mercury Monterey
frá Ford-verksmiðjunum. í
Chevrolet-bílunum eru engin
belti í framsætum, en í Mer-
cury er hvoru tveggja, belti og
púðar. Howard K. Shapar,
starfsmaður Kjarnorkumála-
stofnunar Bandaríkjanna, er
einn þeirra, sem hefur reynt
þessa loftpúðavörn í bíl sínum.
Hann skýrði svo frá, eftir að
hafa lent í árekstri í Los
Angeles í febrúar, að hann
hefði fyrst tekið eftir púðan-
um samanföllnum á hnjánum á
sér. Púðinn hafði þanizt út,
varið Shapar fyrir högginu, og
sigið síðan saman án þess að
hann gerði sér raunverulega
grein fyrir því. Hann sagði, að
púðanum væri svo fyrir að
þakka, að hann hefði ekki hlot-
ið alvarleg meiðsli.
„Fyrst eítir áreksturinn
gætti ég þess vel að spenna
öryggisbeltin,“ segir Shapar.
„En nú geri ég það ekki leng-
ur og fyrir fólk eins og mig,
sem á eriitt með að laga sig
eítir boðum og bönnum, er
vissulega mikið öryggi af því
að hafa púðann þarna á næsta
leyti. Maður þarf ekkert að
gera sjálfur.“
Eitt gleggsta dæmi um gildi
loftpúðanna mátti þó finna í
árekstri í Chicago í febrúar.
Starfsmaður verksmiðju, sem
framleiðir púðana, ók á kyrr-
stæða lögreglubifreið á rúm-
lega 100 kílómetra hraða. Báð-
ir bílarnir eyðilögðust. Lög-
reglumaður slasaðist alvarlega,
en hinn ökumaðurinn meiddist
aðeins lítillega.
VERND FYRIR BÖRN?
Menn velta því nú fyrir sér,
hvort loftpúðarnir geti á full-
nægjandi hátt verndað lítil
börn, og hvort þeir geti hugs-
anlega valdið óhöppum, ef þeir
blásast út fyrir tilviljun við
eðlilegar aðstæður að öðru
leyti.
Lítill drengur frá Indiana-
ríki lézt af meiðslum, sem
hann hlaut í bíl móður sinnar,
og var bíllinn þó búinn loft-
púðum. Móðirin komst hins
vegar lífs af. Hún skýrði svo
Loftpúðinn þenst út á broti úr sekúndu og kemur í veg fyrir, að
farþegi hafni á framrúðunni eða mælaborðinu. Þessi mynd var
tekin, þegar tilraunabíl var ekið' á 28 kílómetra hraða á fasta
fyrirstöðu.
Tjónið var metið á 1,853 dali,
en farþeginn skreið ómeiddur
út úr bílnum.
FV 10 1973
27