Frjáls verslun - 01.10.1973, Blaðsíða 31
irtækið HARTZ MOUNTAIN
Corp., sem framleiðir niður-
soðna hunda- og heimilisdýra-
fæðu. Eignir hans eru sagðar
nema á milli 500-700.000.000.00
dala. Stern er yngstur hinna ný-
ríku, en hann er aðeins 35 ára
gamall. í greininni segir að
Stern sé „vel gefinn, vakandi og
búi yfir miklu sjálfstrausti,
haldinn grófri kímnigáfu og
hafi glæsilega framkomu“.
Hann á íbúð í háhýsi í New
York-borg, sumarhús á Atlantic
Beach í New York-ríki, einbýlis-
hús á Jómfrúeyju. Faðir Sterns,
Max að nafni flutti til Banda-
ríkjanna frá Þýzkalandi fyrir 40
árum, ásamt vini sínum og 2000
kanarífuglum. Þeir stofnuðu
litla fuglabúð í New York og
seldu alla fuglana og þannig
hófst ævintýrið. í dag er Hartz
Mountain Corp. stærsti fram-
leiðandi gæludýrafæðu í öllum
Bandaríkjunum. Fyrirtækið var
samt næstum gjaldþrota þegar
Stern yngri tók við stjórntaum-
unum árið 1959, þá aðeins 21
árs að aldri, og sneri taprekstri
upp í ævintýralegan gróða. Allt
frá þeim tíma hefur hann aukið
framleiðsluna upp í 12 mismun-
andi fæðutegundir fyrir gælu-
dýr, allt frá fuglum upp í stóra
varðhunda. Fyrirtækið var í
einkaeign þar til fyrir ári. að
Stern breytti því í almennings-
hlutafélag. „Þegar ég hugsa
um auðæfi mín, segir Stern, þá
virka þau ævintýraleg og óraun-
veruleg11.
63 ÁRA GAMALL
HJÓLBARÐASÓLARI.
Roy J. Carver, er 63 ára gam-
all, er stjórnarformaður og
stofnandi fyrirtækisins Bandag
Inc., sem framleiðir ýmsa hluti
og vélar í sambandi við bíl-
dekkjasólningu. Carver er einn
af hinum auðugu mönnum, sem
hefur aukið eignir sínar úr 10
millj. dollara og í 200-300 millj.
á 5 árum. Carver fékk hugmynd-
ina að umræddri aðferð er hann
var á ferð í V-Þýzkalandi fyrir
nokkrum árum. Þar kynntist
hann manni. sem hafði fundið
upp nýja aðferð til þess að sóla
gömul bíldekk. Carver keypti
framleiðsluréttinn af Þjóðverj-
anum, endurbætti aðferðina og
fékk einkaleyfi á henni. Nú sel-
ur fyrirtæki hans Bandag vörur
og vélar fyrir 70 millj. dala á ári.
Greinarhöfundur segir að Cart-
er sé „ljúfmannlegur í fram-
komu, en nokkuð harður í við-
skiptum“. Hann nýtur þess að
eiga allan þennan auð og á t. d.
hús í Iowa, Illinois, Florida og
Frakklandi. Þar að auki á hann
13 sæta einkaþotu, tvær listi-
snekkjur, og fjöldan allan af bíl-
um.
ÞAR ERU LYF GULLS ÍGILDI.
Næst má nefna Jack M. Eck-
erd, sem er 60 ára, en hann
keypti tvær lyfjaverzlanir
(drug stores) árið 1940. Nú á
hann 300 slíkar verzlanir í öll-
um ríkjum Bandaríkjanna.
Heildar ársvelta þeirra nemur
um 330 millj. dala. Persónuleg-
ur auður Eckerds nemur milli
150 og 200 millj. dala.
EIN LÍMTÚPA ER LYKILL
MIKILLA AUÐÆFA.
Robert H. Krieble, 57 ára,
fann upp límefnið Loctite sem
er talsvert notað í iðnaði og selt
er á túpum. Hann hefur eignast
mikinn auð á uppfinningu sinni.
Loctite-efnið er framleitt og
selt í 60 ríkjum heims og Krie-
ble hefur eignast á 5 árum auð
sem nemur a. m. k. 100 millj.
dala.
TROPTCANA-SAFTNN ER
Á BORÐ VIÐ OLÍULIND.
Ekki má gleyma Anthony
Rossi. sem er 72 ára, en hann
stofnaði Tronicana Products
Inc., en það framleiðir Tropi-
cana-ávaxtasafa, sem seldur er
t. d. hér og hefur náð verulegri
sölu hér, sem víðar. Rossi hef-
ur eignast 70 milljónir dala á
s.l. 5 árum og nær því ekki aiveg
100 millj. dala markinu.
Hann er ólíkur mörgum sam-
herjum sínum í viðskiptaheim-
inum. Rossi er miög trúaður
maður og eyðir miklum pening-
um í trúmál. Hann er fæddur á
Sikiley. af kaþólskum ættum. en
hefur tekið upp mótmælendatrú
og er Baptisti. Á sunnudögum
kennir hann í sunnudagaskóla,
en á virkum dögum hugsar hann
um peninga.
EKKI ER ÞETTA ALLT
DANS Á RÓSUM.
f greininni í Fortune greinir
Louis einnig frá milliónamær-
ingum, sem tönuðu 50 millj. dala
á sama tímabili eða jafnvel
hærri upphæðum. í þeim hóni
eru sex menn, þar á meðal H.
Ross Perot, sem er 43 ára. en
hann stofnaði Electronic Data
Systems í Dallas í Texas og
stjórnar fyrirtækinu. Hann eign-
aðist og tapaði meira en einum
milljarð dala á árunum 1968 til
1970. að sögn Louis. „Jafnvel
þótt hann sé kominn neðst á
mælistikuna, þá er Perot enn
meðal auðugustu manna Banda-
ríkjanna“ segir greinarhöfund-
ur. Ross á eignir upp á 300 til
500.000.000.00 dala og er því
tæplega hægt að kalla hann
, blankan mann“.
Kjöt-
iðnaðarvörur
KJÖTFARS — BJÚGU
PYLSUR — ÁLEGG.
Úrvals vörur fyrirliggjandi.
Heildsala, sniásala.:
*
Kjötverzlimin
B Ú R F E L L
Skjaldborg við Lindargötu,
Reykjavík. — Sími 19750.
ÍSLENZK
FYRiRTÆKI
Stærsta og
útbreiddasta
fyrirtækjaskrá
iandsins
FSiÁLST
FRAMTAK H.F.
Laugavegi 178
Símar 82300-82302
FV 10 1973
31