Frjáls verslun - 01.10.1973, Qupperneq 63
mannaflann. Þróunin í launamálum hefur verið
það ör, að forráðamenn fyrirtækjanna hugsa
mikið um það, hvort þeir eigi ekki að taka vél-
ina fram yfir manninn. Þeir eiga þó ekki alltaf
kost á því. Oftast er það fjármagnsskortur, sem
háir þeim.
FV: Staðgreiðslukerfi skatta. Af
hverju hefur því ekki verið
komið á?
Jón: Ég vil aðeins segja nokkur orð um stað-
greiðslukeríið. Það er eingöngu greiðsluaðferð
og í framkvæmdinni verkar það svo, að fyrir-
fram er verið að reyna að gera sér grein fyrir,
hvað hlutaðeigandi skattgreiðandi muni þurfa
að borga í skatta, þegar endaniega verður lagt
á hann fyrir það ár, sem hann er að vinna fyrir
tekjunum. Augljóst er, að í löndum, þar sem
meginhluti fóiks vinnur fyrir tiitölulega stöð-
ugum tekjum frá mánuði til mánaðar allt árið
verður þetta vel fyrirsjáanlegt.
Við erum ekki í hópi þessara þjóða. Hér eru
sveiflur í tekjum miklu meiri en tíðkast erlend-
is, bæði milli ára og innan ára. Hásetar á loðnu-
skipunum taka t. d. inn nokkur hundruð þús-
und krónur á einum mánuði á vorin. Svo fer
engum sögum af því, hverjar tekjur þeir hafa
að öðru leyti. Reynslan í Danmörku, þar sem
við höfum sérstaklega kynnt okkur þetta, er
sú, að framkvæmd staðgreiðslukerfisins hefur
gengið mjög erfiðlega, sérstaklega með auk-
inni verðbólgu síðustu árin. Óánægja með kerf-
ið segir í vaxandi mæli til sín.
Síðastliðið vor var mörkuð stefna í þessu efni
hér á landi með lagasetningu. Heimildir fjár-
málaráðherra til ákvörðunar um fyrirkomulag
fyrirframgreiðslna skatta voru rýmkaðar. Regl-
urnar um þetta hafa enn ekki verið mótaðar,
en opnaður hefur verið möguleiki á að nálgast
greiðslufyrirkomulag, sem reynist þægilegra í
framkvæmd. Það verður ekki staðgreiðslukerfi,
heldur reynum við að endurbæta fyrirfram-
greiðslukerfið, sem við höfum haft, og jafna
greiðslum betur fyrir árið, svo að komið verði
í veg fyrir, að menn fái kannski litlar eða engar
launagreiðslur hluta úr árinu. Ef hægt yrði að
breyta sjálfum skattalögunum, sjálfum álagn-
ingaraðferðunum, bæði með því að losna við
eitthvað af frádráttarheimildum og með því að
gera tekjuskattinn líkari útsvarinu, kynni stað-
greiðslukerfi að verða auðveldara. Það er til-
tölulega einfalt mál að eiga við þetta, ef skatt-
urinn er flöt prósenta af brúttótekjum. En vegna
þess að skatturinn er stighækkandi og við höf-
um þessar geysimiklu frádráttarheimildir, þá
verður erfitt að finna rétta prósentu.
Hjörtur: Ég veit, að reynsla Dana í þessu efni
er slæm, en þetta kerfi tíðkast nú víðar en í
Danmörku, t. d. í Bandaríkjunum og Þýzka-
landi, þar sem árangurinn hefur orðið mjög
góður. í Bandaríkjunum nota menn þetta jafn-
vel til spörunar, uppsöfnunar á endurgreiðslu
á greiddum sköttum.
Brynjólfur: Verðlagsmálin hafa einkanlega
hindrað að fyrirtækin réðust í meiri hagræð-
ingu og bættu við sig vél'am og spöruðu mann-
aflann.
Tekjusveiflurnar hérlendis hafa nú verkað
þannig að mínum dómi, að menn gera meiri
kröfur til staögreiðsluskatta en ella heíði orðið,
vegna þess, að menn fá skattinn svo misjafnan
og alltaf eftir á. í staðgreiðslukerfinu er alls
staðar gert ráð fyrir, að menn geti leiðrétt
þetta eítir þvi sem tekjurnar breytast. Þeir,
sem hætta að hafa tekjur, eins og gamalt fólk,
lenda í vítahring miðað við núgildandi kerfi
hjá okkur, þegar skattarnir koma eftir á. Menn,
sem fá háa skatta, lenda líka í vítahring, og
mér íinnast vera svo ótal mörg dæmi, sem
styðja það, að við reynum að finna upp kerfi,
sem okkur hentaði. Ég held það hljóti að vera
til.
Guðmundur: Sé litið á sérstöðu okkar varð-
andi virðisaukaskatt og eins staðgreiðslukerfi
eru aðstæður slíkar hér á landi, að fjöldi ein-
staklingsfyrirtækja er tiltölulega mikill, inn-
heimtuaðilarnir eru margir, og það skapar viss
vandamál. Menn eru kannski launþegar part af
árinu, en stunda sjálfstæðan atvinnurekstur á
öðrum tímum, eins og maðurinn, sem stundar
byggingarvinnu ýmist hjá sjálfum sér eða öðr-
um á sama ári.
Ég hallast á þá sveif eins og er, að við ætt-
um að taka upp staðgreiðslukerfið. Slík kerfi
eru mismunandi. Danska kerfið nálgast að vera
aukning fyrirframgreiðslu með spá um tekju-
aukninguna á árinu. Vandinn þar verður sá
sami og hér á landi að áætla tekjuaukninguna
rétt. Hún getur verið mjög mismunandi eftir
atvinnugreinum og erfitt að sjá hana fyrir. Með
aukningu fyrirframgreiðslu næst ekki hlutur
þeirra, sem eru að byrja á vinnumarkaðinum.
Vegna ýmissa frádráttarliða, hafa Danir far-
ið út í að veita breytingar innan ársins. Kaupi
maður hús, fer hann á skattstofuna og ber fram
ósk um að fá að greiða minna, þar eð áætlun
hans sé breytt. Þannig er margsinnis lagt á hann
og fyrirhöfnin geysimikil við það.
í Þýzkalandi og Bandaríkjunum hefur þetta
aftur á móti verið gert einfaldara og við gæt-
um tekið upp þannig reglur, að í fyrsta lagi
FV 10 1973
63