Frjáls verslun - 01.10.1973, Page 80
Hansa;
Hansasamsfæð-
an hentuga
Stálhusgagnagerð
Steinars Jóhannssonar:
Vönduð
eldhúshúsgögn
f Stálhúsgagnagerðinni eru
smíðuð nær eingöngu skóla- og
eldhúshúsgögn. Eldhúshúsgögn-
in eru falleg, stílhrein og sterk
og eiga vel við í hvaða eldhúsi
sem er.
Til eru ýmsar stærðir og
gerðir af eldhúshúsgögnunum,
svo sem kringlótt, sporöskju-
laga og köntuð, og getur kaup-
andinn einnig valið um fjöl-
marga liti á eldhúsborðið. Á
borðplötunum er harðplast,
sem framleitt er nú í öllum
tízkulitum. Borðin eru einnig
af ýmsum stærðum.
Þessi borð eru mikið seld
á veitingastaði út um allt
land, bæði hótel- og matsölu-
staði. Borðin eru mjög vönduð,
og hægt er að fá plastkant eða
viðarkant á borðið eftir ósk-
um.
Stólarnir eru mjög vand-
80
Gífurleg sala hefur verið í
Hansa húsgögnunum, og þó að-
allega hansahillunum frægu,
sem hvert mannsbarn þekkir
nú orðið, og eru á allmörgum
heimilum á landinu. Svo mikil
er eftirspumin eftir hillunum
kunnu, að smiðirnir hafa varla
undan við að smíða, og aldrei
er nógsamlega smíðað. Þær
fást í tveimur viðartegundum,
eik og teakki, og kostar hver
hilla um 830 krónur.
Nú eiga milliveggir til að
skipta herbergjum miklum
vinsældum að fagna hérlendis.
Þessir milliveggir fást í Hansa
og eru nefndir Hansasamstæð-
ur. í Hansasamstæðum eru fá-
anlegar þrjár breiddir af hill-
um, 8 gerðir af skápum, með
viðar- eða glerhurðum, og tvær
gerðir af borðum. Samstæðan
er góð lausn á því vandamáli
að nýta húsnæði á sem smekk-
legastan hátt, og hafa þó sem
mest svigrúm fyrir íbúana.
Hansa milliveggur á heimili í Reykjavík.
Hansasamstæðan fæst í
þremur viðartegundum, eik,
teak og maghony. Kaupa má
einingar í samstæðuna eftir
þörfum. Þessi samstæða hent-
ar vel í nær öll herbergi íbúð-
arinnar, stofu, dagstofu, boi'ð-
stofu, forstofu og svefnher-
bergi, því að hún hentar ekki
aðeins sem milliveggur, held-
ur einnig uppi við vegg.
Einnig má skipta herbergjum
á mjög skemmtilegan hátt. í
íbúðum, þar sem t. d. er stór
stofa, en engin borðstofa, má
nota þessa milliveggi til að
skipta stofunni í borð- og
stássstofu.
Sporöskjulaga eldhúsborð og stólar.
aðir og stílhreinir. Kaup-
endur geta valið um tau- eða
plastáklæði eftir smekk.
Húsgögn þessi eru ekki dýr
og kostar kringlótt eldhúsborð
með fjórum stólum aðeins um
14 þúsund krónur. Það má geta
þess, að auðveldlega komast 6
manns við kringlótt borð og
hefur það verið vinsælt að
kaupa litla kolla með. Eru þeir
ekki dýrir og kosta frá 655-
850 krónum. Sporöskjulaga
borð með fjórum stólum er
nokkuð dýrara eða um 20 þús-
I
und krónur. Verðmismunurinn
liggur m. a. í því, að meira er
borið í stólana. En verðið á
stólunum í Stálhúsgagnagerð-
inni er frá 1500-3000 krónur.
Stálhúsgagnagerð Steinars Jó-
hannssonar smíðar skólaborð
og stóla fyrir alla barna- og
gagnfræðaskóla í Reykjavík,
en einnig húsgögn fyrir aðra
skóla, svo sem Háskóla íslands.
í Stálhúsgagnagerðinni vinna
að staðaldri 20-30 manns við
járnsmíði, trésmíði og bólstr-
un.
FV 10 1973