Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1973, Page 89

Frjáls verslun - 01.10.1973, Page 89
REIÐHJÓLAVERZLUNIN ÖRNINN. Reiðhjólaverzlunin Örninn hefur á boðstólum ýmsar gerðir reiðhjóla og þríhjóla. Má þar nefna ensku Philips reiðhjólin, sem eru heimsþek’kt gæðavara, með eða án gíra, fyrir drengi og stúlkur. Dönsk S.C.O. barna- og fjöl- skylduhjól, með og án gíra, eru þar til sölu einnig S.C.O. þrekhjól. Þá eru á boðstólum tékknesk Eska, Velamos og Favorit hjól. Eska hjólin eru ætluð drengjum og stúlkum 10 ára og eldri. Velamos reiðhjólin eru til í þremur stærðum, 16", 20" og 24". Tvær minni gerðirnar eru ætlaðar börnum á aldrinum 4—7 ára og eru með hjálparhjólum. Favorita fjölskylduhjólin sameina kosti Eska og Velamos í einu hjóli fyrir alla. Og verð- ið er mjög hagstætt. Örninn hefur einnig til sölu Winter þrí- hjól fyrir yngstu börnin. Þessi hjól eru til í miklu úrvali stærða og gerða. Loks má geta þess að Örninn sér um varahlutaþjónustu fyr- ir öll framangreind hjól. HALLDÓR EINARSSON, umboðs- og lieildverzlun. Henson íþróttafatnaður er framleiddur hjá umboðs- og heildverzlun Halldórs Einars- sonar. Með víðtækum könnun- um hefur heildverzluninni nú tekizt að tryggja sambönd við framleiðendur á beztu efnum í framleiðslu í íþróttafatnað. Efni í æfingarfatnað er flutt inn frá Danmörku, þar sem það er unnið með einkaleyfi frá stórfyrirtækinu Monsanto. Efnið í keppnisbúningana er flutt inn frá Englandi og er hið sama og þorri knattspyrnu- liða þar nota. Henson íþrótta- fatnaður er nú einn mest seldi íþróttafatnaður hérlendis. — Landsleikir íslendinga eru flest- ir háðir í Henson keppnisbún- ingum, og íslandsmeistararnir í knattspyrnu, handbolta og körfubolta leika allir í Henson. Umboðs- og heildverzlun Hali- dórs Einarssonar var stofnuð árið 1968 og er því tiltölulega ungt fyrirtæki. í upphafi var meginverkefnið framleiðsla Og innflutningur á sportvörum. Síðusu tvö árin hefur þó fram- leiðslan setið í fyrirrúmi, utan þess sem heildverzlunin flytui inn íþróttasokka frá fyrirtæk- inu Star Sportswear Ltd. VEIÐIMAÐURINN. Veiðimaðurinn er eina sér- verzlunin á fslandi, sem selur allar vörur til Iax- og silungs- veiða. Þar fæst ótrúlegt úrval af veiðivörum. Þar fást 50—60 mismunandi gerðir af veiðistöngum. 30—35 gerðir af veiðihjólum, svo og allur annar búnaður, sem til veiða þarf, s. s. spúnar, flugur, veiðitöskur, veiðistígvél, hatt- ar, net, önglar, veiðikassar og margt fleira. Veiðimaðurinn hefur einnig mikið úrval og margar tegund- ir af byssum og skotfærum. SKÁTABÚÐIN. Skátabúðin Ieggur mikla á- herzlu á skíðavörur og fást þar svigskíði frá Hagan og Kiistle. Skíðin frá Hagan eru ódýrari og aðallega seld sem barna- og unglingaskíði. í verzluninni fást margar gerðir af Kiistle. skíðum, allt fiber-skíði frá byrjendaskíðum og upp í dýr- ustu keppnisskíði. Einnig fæst í verzluninni mikið úrval af skíðaskóm, s. s. frá Daclistein og eru það smelluskór. Þá eru einnig til reimaðir skór frá Montan fyrirtækinu. Skátabúð- in er með bindingar frá Marker og eru það allt öryggisbinding- ar, en ennfremur eru til norsk- ar gormabindingar. Þar fæst einnig annað sem þarf til skíðaiðkana og má þar t. d. nefna skíðaáburð, skíða- gleraugu og hanzka. Loks má nefna norsk gönguskíði, sem þar eru seld svo og einnig gönguskíðaskó, bindingar, stafi, og áburð fyrir göngu. Norsku skíðin eru frá Skilom. í Skátabúðinni er einnig mik- ið úrval af alls konar viðlegu- útbúnaði og er stór áherzla lögð á ferðavörur, s. s. 2ja—5 manna tjöld frá Belgjagerðinni og Tjaldborg. Fyrir jöklafara eru fáanleg skozk tjöid frá fyr- irtækinu Blacks, og fyrir göngukappa fást þar einnig létt göngutjöld frá Vango. Mikið úrval er af svefnpok- um frá íslenzkum framleiðend- um, og er það mest ullar-, dio- len og dralon pokar. Þá fást þar bæði íslenzkir og erlendir dúnpokar m. a. frá Belgjagerð- inni og Blacks og eru þeir pok- ar sérstaklega góðir til notkun- ar í miklum kulda. Annað af fei'ðavörum sem selt er í verzluninni er t. d. vindsængur, prímusar, potta- sett, picknikksett, grill og sól- húsgögn. Skátabúðin selur einnig ýms- ar vörur til lax- og silungsveiða t. d. veiðistengur, sem settar eru saman hérlendis og einnig fást þar ódýrar japanskar stengur. ANDVARI H.F. Andvari h.f., umboðs- og heildverzlun, selur ýmsan úti- legubúnað til ferðalaga. Má þar t. d. nefna ýmsar gerðir af tjöldum í stærðunum 3ja—6 manna frá verksmiðjunni Magna. Ennfremur tjaldhimna. Heildverzlunin selur einnig annað til útilegu, s. s. -svefn- poka frá verksmiðjunni Magna. Eru það ullarkembusvefnpokar og diolín-svefnpokar. Mikið úr- val er af þessum ferðavörum. Af öðrum útilegubúnaði hef- ur heildverzlunin á boðstólum útigrill, sem njóta mikilla vin- sælda nú. Einnig viðarkol, úti- vistartöskur og matartöskur, sem eru mjög hentugar í ferða- lög. Þá fæst úrval af vindsængum í mörgum litum, og einnig svampdýnum, sem þykja mjög þægilegar, þegar sofið er 1 tjaldi. Þá er flest það upp talið af útlegubúnaði, sem fæst í heildsölunni utan pottasetta og bakpoka. Mikið úrval af slíkri vöru er fáanlegt. MAGNÚS HARALDSSON, umboðs- og heildsala. Hjá umboðs- og lieildverzlun Magnúsar Haraldssonar eru seldir badmintonspaðar frá fyr- irtækinu Stannn í Þýzkalandi. Til eru ýmsar gerðir bæði af spöðum og kúlum. Ein er sú íþrótt hér á landi, sem á síaukn- um vinsældum að fagna og það er badminton íþróttin. Að vetr- arlagi eru starfræktir badmin- FV 10 1973 89

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.