Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1974, Síða 35

Frjáls verslun - 01.07.1974, Síða 35
Orkan verður mikið nýtt, á komandi timum, til framieiðslu iðnvarnings. Við getum rétt imyndað okkur, hve útflutn- ingsionaðurmn væri orðinn öfl- ugur her á landi, og þar með stoougleiki mikiii i emahags- maium, ef Emari Benedikts- sym neiöi á smum tima teKizt ao koma virkjun Þjorsár í Kring, og hér heiði, í framhaldi ai pvi, naxizt iðnvæðing, fyrir svo sem háltri öid. Eg trúi því iiKa, að við munum eignast goða hönnuði, sem geta nann- að vörur sem ettirsóttar verða erlendis vegna hönnunar og gæða. Það þarf að nýta þekk- ingu innanlands og flytja hana siðan út í formi iðnvarnings, en þessu hefur, því miður, oft verið öfugt íarið hingað tii. Sem dæmi má taka Simrad- verksmiðjurnar í Noregi, sam- setningarverksmiðjur í raf- eindaiönaðinum, sem hafa í mörg ár byggt á hugmyndum og reynslu ísienzkra sjómanna í sinni framieiðslu. Er ekki eðiilegra að við notum hugvit okkar eigin manna, í fram- leiðslu hér heima fyrir? F.V.: — Margt hefur verið rætt og ritað um hagræðingu hjá íslenzkum iðnfyrirtækjum. Hafa iðnrekendur almennt haft sama áhuga á hagræðingu og hafa tiiraimir í þá átt blessazt? Davíð: — Hagræðing hefur, í mörgum tilvikum, gefið feikna góða raun. í karlmannafata- saumi hafa afköstin sexfaldast á tíu árum með hagræð- ingu. Iðnþróunarsjóðurinn hef- ur styrkt úttekt og hagræðingu á mörgum greinum iðnaðarins. Þannig hafa athuganir m. a. verið gerðar á vefjar- og fata- iðnaði og sælgætisiðnaði. Næstu stóru verkefnin verða í skipasmíða- og trjávöruiðnaði og eru þær framhald af fyrri athugunum. Félag ísl. iðnrek- enda ætlar núna á næstunni að auglýsa eftir mönnum, til að kanna þörf á hagræðingu hjá öðrum greinum iðnaðarins og mun félagið bjóða félagsmönn- um þá þjónustu ókeypis. En við skulum muna það, að við getum leitt hestinn að vatn- inu, en ekki látið hann drekka og vitaskuld verður vilji iðn- rekandans að vera til staðar, ef árangur á að nást. Því er mikil þörf á að iðnrekendur gefi sér tíma til að sökkva sér niður í þessi mál, bæði innan síns fyrirtækis og eins í sam- vinnu eða í samráði við aðra iðnrekendur. F.V.: — Af hverju hefur ís- lenzkur iðnaður ekki sameig'- inlegt merki á útflutningsvör- ur sínar, sem væri þá tum leið eins konar gæðastimpill? Davíð: — Nú í október á ein- mitt að fara fram samkeppni um gerð útflutningsmerkis íyr- ir Isiand. Nú stunda ytir 50 iön- fyrirtæki útflutning. Aðeins verður leyft að nota merkið a þær vörur, er standast gæða- eítirlit Utflutnmgsmiðstoðvar íðnaðarins og Félags isi. iðn- rekenda. Annars er það um útflutn- inginn að segja, að aukin inn- aniandseitirspurn heíur oit tai- ið fyrir uppbyggigu hans. Fyr- irtækin haia þá oft hætt viö útiiutning um sinn, enda er hann miklu fyrirhafnarmeiri en innanlandssaia. Túikun sKattayfirvaida á afkomu is- lenzku útflutningsfyrirtækj- anna og baráttu þeirra á er- lendum morkuöum, heíur held- ur ekki oröið tii að létta mönn- um róðurinn. Ohemju kostnað- ur fer í soiuferðir hjá þessum íyrirtækjum og fulltruar þeirra þurfa miKið á sig að leggja. M. a. er nauðsyniegt að íara ótal utanlandsierðir til að leita sambanda. En sKatturinn hef- ur sínar meiningar og einu sinni kom þessi gáfulega at- hugasemd frá skattstofunni til fyrirtækis, sem var að leita fyr- ir sér um ný viðskiptasambönd: „Þessi ferðakostnaður er ekki tekinn tii greina, þar sem við- skipti fyrirtækisins við viðkom- andi land réttlæta ekki slíkan ferðakostnað“. F.V.: — Leggja iðnrekendur nægilega mikla áherzlu á áróð- ur fyrir því að fólk kaupi ís- Ienzkar vörur? Davíð: — Áróðursherferðin, sem fram fór fyrir nokkrum árum gafst vel, að pvi leyti að hún var pólitískt sterk fyrir iðnaðinn. Hún skilaði kannske ekki svo miklu í aukinni sölu. I framtíðinni verðum við að leggja áherzlu á að efla mark- aðshlutdeild okkar heima fyrir, ekki bara með því að hvetja fólk til að kaupa vöruna, af því að hún sé íslenzk, heldur af því að hún sé betri en inn- fluttur varningur. Ennfremur má búast við að nauðsynlegt reynist að breyta auglýsinga- reglum sjónvarpsins og tak- marka auglýsingar erlendra stórfyrirtækja á vörum sínum. f Frakklandi hafa erlendar vöruauglýsingar verið algjör- lega bannaðar og einungis leyfilegt að auglýsa innlendar vörur. Hér mætti t. d. koma á kvótakerfi og leyfa einungis einhvern ákveðinn fjölda sýn- inga erlendra auglýsinga á kvöldi og á viku. Ella geta stór- fyrirtæki, með markvissri aug- lýsingaherferð, náð mjög stór- um hluta íslenzka markaðar- ins á skömmum tíma, ef ekkert er að gert, og þegar því tak- marki er náð, má búast við hækkun á vörunni, þegar ís- lenzki keppinauturinn hefur verið þurrkaður út. Erlend fyrirtæki eru greinilega að styrkja markaðsaðstöðu sína hérna, jafnvel nú þegar, áður en tollarnir falla alveg niður. F.V.: — Yrði slík takmörk- un auglýsinga ekki túlkuð sem hömlur á eðlileg viðskipti af hálfu félag.a okkar í EFTA og EBE? Davíð: — Við erum alltof bláeygðir og saklausir fyrir EFTA og EBE samstarfi. Við höfum verið mjög heiðarlegir í því og ég hygg, að innborg- unargjaldið á innfluttar vörur hefði aldrei verið sett á, nema af því að fyrir lá dæmi um svipaðar einhliða ráðstafanir ítala, sem þó eru aðilar að Efnahagsbandalaginu. Bæði í EFTA og EBE viðgangast alls konar styrkir og samkeppnis- hömlur, enda þótt slíkt sé að sjálfsögðu stranglega bannað og aðildarríkin virðast furðu lag- in við að finna smugur í samn- ingunum, til að komast hjá að hlýða settum reglum. Við verðum að skapa hér þann jarðveg, sem íslenzk fram- leiðslufyrirtæki geta þrifist og dafnað í, bæði til að geta út- vegað okkar vel menntaða fólki góða atvinnu, við þess hæfi, til að afla og spara gjaldeyri, og ennfremur til að halda niðri verðlagi hér á landi. Ég er sannfærður um að samkeppni íslenzkra iðnfyrirtækja hefur veitt erlendum fyrirtækjum að- hald og haldið verðlaginu niðri. Má í því sambandi nefna, að veiðarfæri væru ^ sennilega langtum dýrari á íslandi, ef Hampiðjan væri ekki til og málning og hreinlætisvörur myndu stórhækka, ef hér væru ekki starfandi öflug fyrirtæki í þessum greinum, sagði Davíð Sch. Thorsteinsson að lokum. FV 7 1974 35
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.