Frjáls verslun - 01.01.1975, Side 5
i stuttu máli
0 Gjaldeyrisstaðan tæp
Þrátt fyrir þær aðgerðir, sem núver-
andi ríkisstjórn gerði og scm m.a. færðu
viðskiptajöfnuð til betri vegar, var lítið
orðið eftir af gjaldeyri um áramótin. I
lok nóvember nam gjaldeyrisstaðan 941
millj. kr, á þágildandi gengi og mun lítið
hafa breyst í desember. Er þetta aðallega
vegna meiri sölutregðu en búist var við.
Eigum við því aðeins fyrir nokkurra
vikna almennum innflutningi.
0 Líklegt, að vísitalan fari yfir
þakið
Þegar gengið var frá láglaunabótum
með samtökum launþega nýliðið haust
og lög sett um þau, var tekið fram, að
þær skyldu koma til endurskoðunar, ef
vísitala framfærslukostnaðar færi fram
úr 358 stigum á gildistíma lagaima, þ.e.
fyrir maílok á þessu ári.
Allt bendir til þess, að hún fari fram
úr þessu marki þegar 1. febrúar næst-
komandi.
0 Bandaríkin og EBE á önd-
verðum meiði
llin níu lönd Efnahagsbandalagsins
hafa samþykkt að leggja sameigiulega
til, að Al]ijóðagjaldeyrissjóðurinn kræki
sér í 6-12 milljarða dollara til endurlána,
fremur en að slíkur endurflutningurfari
um OECD. Healy, fjármálaráðherra
Bretlands, hreyfði þessari tillögu á fundi
sjóðsins sl. haust, en Bandarikjamenn
vilja heldur, að OECD sjái um lánin. Það
sakar ekki að fíeta þess, að samkvæmt
ákvæðum sjóðsins, verða Bandaríkin að
ábyrgjast 40% af skuldbindingum hans.
• Á Alþjóðabankinn að lána
olíulöndunum áfram?
Skyndilega standa nokkur vanþróuð
ríki uppi með fullar hendur fjár, en vilja
jafnframt áfram lán frá Alþjóðabank-
anum. Bandaríkjamenn vildu nýlega
neita Nígeríu um rúmlega 100 millj.
dollara lán, en ýmis Afríkuríki sáu til
þcss, að sú afstaða yroi ekki ofan á.
• Aðeins tveir hamborgarar
og ein kók
Hinn nýi 36 ára ríkisstjóri í Kali-
lorníu, Edmund Brown, hefur skipað
öllum starfsmönnum sínum að tilkynna
um matarboð og gjafir, sem nemi meiru
en 10 dölum, en fyrir þá fjárhæð mun
nú hægt að fá tvo hamborgara 0« eina
kók. Jaf'nframt neitaði hann að taka við
hærri launum, en þau áttu að hækka um
20%.
0 Er unnt að spara olíunotkun
um 15%?
Nýleg skýrsla á vegum Efnahags-
bandalags Evrópu gefur til kynna, að
lönd bandalagsins geti sparaðolíunotkun
sem nemur 15%, ef góðum ráðum er
fylgt. Er þetta aðallega með því að ein-
angra hús betur en nú er gert, spara
bílanotkun i miðborgum, nota hag-
kvæmari kyndingu í verksmiðjurekstri
o.fl. Hér á landi má eflaust eitthvað af
])essum tillögum læra. En fróðir menn
segja, að unnt væri að vinna upp alla
olíuverðhækkun á togaraflotanum með
því að skipta frá dísilolíu yfir í svart-
olíu. Af hverju er svo kyrrt um þetta
mál?
9 IVorðmenn banna innflutning
vinnuafls
Þrátt fyrir skort á vimmafli á mörgum
sviðum vilja Norðmcnn takmarka inn-
flutning erlends vinnuafls. Allmargar
undantekningar eru þó leyfðar, m. a.
vegna norrænnar samvinnu, útlendinga
fæddra í Noregi o. fl.
0 Einkabankar knésettir í
IVoregi með 1 atkvæði
Norska stórþingið hefur samþykkt
með 72 atkvæðum gegn 71 að hið opin-
bera skuli skipa meirihluta stjórnar-
manna viðskiptabanka þar í landi.
Vcrður ])ctta til að meira fæst úr kúnni,
eða cr verið að slátra hcnni?
I
FV 1 1975
5