Frjáls verslun - 01.01.1975, Blaðsíða 67
Eitt hinna vistlegu herbergja á Ingram Hotel
Ingram Hotel:
Þægilegt gisti-
hús I Glasgow
Margir íslendingar eiga jafn-
an leið um Glasgow á ferðum
sínum til útlanda og það hef-
ur færzt mikið í vöxt hin síð-
ustu ár að íslendingar dveld-
ust um kyrrt í Glasgow eða
færu þaðan í skoðunarferðir
um Skotland, sem er vinsælt
ferðamannaland. Þjónusta við
ferðamenn í Glasgow hefur
farið ört batnandi og gisti-
húsum fjölgað um leið og aðr
búnaður á þeim hefur orðið
betri. Eitt þessara tiltölulega
nýju hótela, sem bjóða upp á
flest þægindi fyrir ferðamann-
inn er Ingram Hotel í miðborg
Glasgow, nánar tiltekið í Ing-
ram Street. Hótelið er mikið
sótt af kaupsýslumönnum enda
í næsta nágrenni við 'helztu
fyrirtæki borgarinnar. Á Ing-
ram eru 90 herbergi, ágætlega
búin húsgögnum og hverju
herbergi fylgir bað, sími, út-
varp og sjónvarp. Þá eru tveir
veitingasalir á hótelinu; í öðr-
um eru bornar fram fyrsta
flokks veitingar samkvæmt
matseðli en á hinum er eins
’konar kaffiteríusnið, þar sem
gestir geta fengið morgun-
kaffi, hádegismat og síðdegis-
te. Hótelgestir geta varið frí-
tímanum við barinn eða í
þægilegum setustofum, þar
sem boðið er upp á litasjón-
varp. Ingram Hotel er í næsta
nágrenni við aðaljárnbrautar-
stöð borgarinnar og á 25 mín-
útum er hægt að komast í bíl
út á flugvöll.
Eigandi Ingram Hotel er hó-
telhringur Reo Stakis, en
hann á gistihús í næstum
hverju einasta byggðarlagi í
Skotlandi og hefur nú fært út
kvíarnar, til Englands með
nýjum hótelum í Newcastle
og Bradford.
Iðufell:
Fiskbúð í
kjörbúð
Fyrir nokkru opnaði verzlunin
Iðufell nýja kjörbúð að Iðufelli
14 í Breiðholti. Þessi kjörbúð
er að mörgu leyti sérstæð, þar
sem hún býður viðskiptavinum
sínum þjónustu, sem ekki hefur
tíðkazt hérlendis áður, svo vitað
sé.
Hér er átt m.a. við fisksölu
Iðufells. Fyrir miðri kjörbúð-
inn er sérinnréttuð fiskbúð með
aðliggjandi vinnslustofu. Fisk
búðin myndar sjálfstæða ein-
ingu inni í verzluninni. Slíkar
innréttingar eru þekktar erlend-
is og þykja mikið hagræði fyrir
viðskiptavini. Fiskbúð Iðufells
kemur til með að bæta úr
brýnni þörf Breiðholtsbúa, þar
sem erfitt hefur verið að fá
nýjan fisk til kaups í hverfinu.
Verzlunin Iðufell mun verzla
með fisk, mjólk, nýlenduvörur,
kjöt og allar almennar kjörbúð-
arvörur. Iðufell mun leggja
áherzlu á góðar matvörur í úr-
vali, ekki sízt fyrir hátíðar.
Verzlunin Iðufell er í eigu
Harðar Jóhannssonar, sem áður
verzlaði í verzluninni Sólfelli
við Fjölnisveg. Nýja verzlunin
við Iðufell 14 er hin vistlegasta,
rúml.550m.2 að flatarmáli, búin
nýtízku kælitækjum og kjör-
búðarinnrétitingum.
FV 1 1975
67