Frjáls verslun - 01.01.1975, Blaðsíða 33
Úr vélasal prjónastofu Iðunnar
á Seltjarnarnesi
en skrifstofurnar eru á efstu
hæð hússins og er hún um 7%
hússins í heild. Útflutningsmið-
stöð iðnaðarins leigir þar 3
herbergi ásamt aðstöðu í al-
menningi.
Nefndar og
stjórnarstörf.
Fulltrúar félagsins eiga sæti
í fjölda nefnda og þá sérstak-
lega þeirra er fjalla um mál-
efni iðnaðarins. í þessu sam-
bandi er helzt að geta lána-
sjóða iðnaðarins og ýmissa
nefnda á vegum hins opin-
bera, svo sem verðilagsnefnd-
ar og vinnunefnda á sviði
tollamála.
Iðngreinanefndir.
Félagið hefur tekið virkan
þátt í þeim iðngreinaathugun-
um, sem framkvæmdar hafa
verið á undanförnum árum og
því starfi er fylgdi í kjölfarið,
innan fyrirtækjanna. Hér ber
sérstaklega að geta þriggja
iðngreina, þar sem þessi störf
eru lengst á veg komin, málm-
iðnaðar, fataiðnaðar sælgætis-
iðnaðar og húsgagnaiðnaðar.
Kjaramál.
Árið 1971 gekk félagið _ í
Vinnuveitendasamband ís-
lands. Síðan hefur félagið
samið við samtök laumþega,
sem starfa hjá iðnrekendum, í
samvinnu við Vinnuveitenda-
sambandið. Félagið veitir með-
limum sínum margháttaða
þjónustu á sviði kjaramála, til
dæmis með því að senda
launataxta, skrá yfir launa-
tengd gjöld, og túlkun kjara-
samninga.
Davíð Sch. Thorsteinsson, form. F.I.I., Haukur Björnsson, frkvstj.
og Vilhjálmur Lúðvíksson, formaður iðnþróunarnefndar í heim-
sókn hjá Vífilfelli
Tengsl við
liagsmunafélög.
Félagið hefur náin tengsl við
önnur innlend hagsmunafélög,
en þó sterkust^ við Vinnuveit-
endasamband fslands á sviði
kjaramála. Formaður félagsins
situr þar í stjórn. Einnig hefur
félagið náin og góð tengsl við>
hliðstæð félög á Norðurlöndum
og hafa fulltrúar farið héðan
á árlegt iðnrekendamót Norð-
urlanda. Verður þannig mót
haldið hér á landi næsta haust.
Norrænu iðnrekendafélögin
hafa veitt F.Í.I. margvíslega
aðstoð og fyrirgreiðslu. Þá leit-
ast félagið við að halda sem
nánustu sambandi við Lands-
samband iðnverkafólks, Iðju
og önnur stéttarfélög. Einnig
hefur félagið átt gott samstarf
við samtök annarra atvinnu-
vega.
Islenzkur fatnaður
Félagið hefur staðið fyrir
fatakaupstefnum vor og haust
undanfarin 6 ár. Hafa sýnend-
ur jafnan verið um 20 talsins
og eru kaupstefnurnar orðnar
fastur þáttur í sölukerfi fyrir-
tækjanna.
Hagsveifluvog
iðnaðarins.
í samvinnu við Landssam-
band iðnaðarmanna vinnur fé-
lagið að upplýsingasöfnun frá
iðnfyrirtækjum. Er hún fram-
kvæmd ársfjórðungslega og
spurt þar um breytingu á flest-
um atriðum í rekstri fyrirtækj-
anna. Niðurstöðurnar eru not-
FV 1 1975
33