Frjáls verslun - 01.01.1975, Blaðsíða 75
Nýsmíði
fiskiskipa
úr
tré
og
stáli.
•
Báta-
og
skipaviðgerðir.
•
Fullkomin
dráttarbraut
fyrir
400
tonn.
Skipasmíðastöð.
M. BERNHARÐSSON
skipasmíðastöð hf.,
ISAFIRÐI,
SlMAR:
94-3290 — 94-3139.
Sveinn Egilsson ht.:
Amerískur Ford með
evrópskum svip
Jóhannes Ástvaldsson, fulltrúi hjá Sveini Egilssyni sýnir hér hinn
nýja og glæsilega Mercury Monarch.
Enn einu sinni ríða bandarísku
Ford verksmiðjurnar á vaðið
með nýjung í framleiðslu sinni.
Flestir muna, þegar Ford verk-
smiðjurnar komu með Ford
Falcon á markaðinn árið 1959,
sem þá var ný gerð fólksbíla
og náði geysilegum vinsældum
bæði í Bandaríkjunum og utan
þeirra. Nokkrum árum síðar
kom svo Mustang fram, en hann
sló mest í gegn af bandarískum
bílum framleiddum þann ára-
tuginn og heldur enn vinsæld-
um .Fyrir nokkrum árum hófst
svo framleiðsla á smábílnum
Ford Pinto, sem hefur náð rnest-
um vinsældum bandarískra
smábíla.
GRANADA OG MONARCH
Nýju bílarnir að þessu sinni
nefnast Ford Granada og Ford
Mercury Monarch. Búið er að
vinna að gerð þessara bíla síðan
árið 1970 og voru fyrstu bílarnir
framleiddir í ágúst í fyrra. Það
sem einkennir þá báða sérstak-
lega, er evrópskt yfirbragð, og
þá yfirbragð dýrra Evrópubíla
svo sem Benz. Sala þessara bíla
í Bandaríkjunum, á þeim stutta
tíma sem þeir hafa verið á
markaðnum, virðast ótvírætt
ætla að sanna að enn einu sinni
hafa Ford verksmiðjurnar hitt
naglann á höfuðið með fram-
leiðslu nýrra gerða.
Jóhannes Ástvaldsson, full-
trúi hjá Sveini Egilssyni h.f.,
sagði í viðtali við FV, að umboð-
ið hefði pantað bíla af þessum
gerðum strax í júlí, eða áður en
framleiðslan hófst, og kom
fyrsta sendingin 20. oktober. Þá
var haldin bílasýning, sem fjöldi
fólks sótti, og sagði Jóhannes að
fólk hefði tekið nýju bílunum
mjög vel og væru á milli tíu og
tuttugu þeirra seldir þegar.
GÓÐIR DÓMAR
Erlend virt bílablöð, svo sem
finna allt, sem aðfinnsluvert er,
Auto Car, luku upp miklu lofs-
orði á þessa bíla í ágúst í fyrra,
þegar reynsluökumenn þeirra
höfðu re.ynt bílana við misjafn-
ar aðstæður, og segir það sína
sögu um þá, því þessir ökumenn
finna allt, sem aðfinsluvert er,
og halda því ekki leyndu.
Granada og Monarch eru í
grundvallaratriðum sami bíll-
inn, útfærður á mismunandi
vegu. Þeir kosta frá 1450 þús-
undum upp í 1690 eftir íburði,
en ódýrasti bíllinn hefur þó
sjálfskiptingu, vökvastýri, afl-
hemla og styrkta fjöðrun.
Jóhannes sagði að fyrirtækið
hvgðist leggja aðaláherslu á
sölu þessara bíla í ár, a.m.k. af
bandarísku bílunum.
FV 1 1975
75