Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1975, Qupperneq 17

Frjáls verslun - 01.01.1975, Qupperneq 17
UTLOND Tandberg Radiofabrik A/S.: Margháttaðar ráðstafanir til að tryggja vellíðan starfsfólksíns á vinnustað Eitt athyglisverðasta fyrirtæki Noregs er Tandbcrg Radiofabrik A/S, sem framleiðir útvarps- og sjónvarpstæki. Maðurinn sem stofnaði fyrirtæ kið, og er enn potturinn og pannan í rekstri þess, er Vebjörn Tandberg. Fyrir nokkrum árum sagði hann í gamansömum tón: „Ég er ekki piparsveinn, ég er giftur fyrirtækinu“. Þeir sem þekkja til segja, að þetta séu orð að sönnu, enda. hefur Vebjörn ætíð sagt: „Það sem er best fyrir einstaklinginn er einnig best fyrir fyrir- tækið'.“ Forráðamenn Tandberg-verk- smiðjanna leggja mikið upp úr þeirri reglu, að hver einstakur starfsmaður finni að hann sé mikilvægur hlekkur í rekstri fyrirtækisins. Tandberg A/S þýður öllum starfsmönnum sínum margs konar fríðindi eins og t. d. ókeypis skemmti- ferðir til útlanda og góð eftir- laun, svo dæmi séu nefnd. í hvert sinn sem nýrri verk- smiðju er komið á laggirnar, gengur Tandberg sjálfur úr skugga um að ekki gleymist að gera ýmsar þær ráðstafanir, sem auðvelda starfsfólkinu starfið. Hann krefst þess að húsakynnin séu eins vistleg og kostur er á og að vinnuþæg- indi séu sem mest, auk þess lætur hann gera tómstundaað- stöðu fyrir fólkið í hverri verksmiðju. 3000 STARFSMENN. Tandberg A/S hóf starfsemi sína árið 1933 og starfsmenn þess vpru tveir, en eru nú 3000. Árið 1973 nam veltan 10,6 milljörðum ísl. króna, en árið 1972 var hún 7.434 millj. ísl. króna og gefur þetta til kynna hve ört fyrirtækið vex. Hagnaður árið 1973 var 472 millj. króna. Norska stjórnin óskaði eftir því 1972, að Tand- berg A/S tæki við rekstri Radionette-samsteypunnar, sem þá átti í rekstrarörðugleikum. Tandberg féllst á þetta og var ekki lengi að snúa 82.6 millj. króna tapi i rekstrarhagnað, sem hefur stöðugt aukist frá þeim tíma. Tandberg þykir góður vinnu- veitandi í Noregi, enda hefur hann ætíð reynt að finna leið- ir, sem bæði launþeginn og vinnuveitandinn geta sætt sig við. Árið 1937 ákvað hann, að allir starfsmenn fyrirtækisins ættu að skila jafnlöngum vinnudegi, en það þýddi fleiri vinnustundir fyrir yfirmenn, verkfræðinga og skrifstofufólk, en það sætti sig við það. Með þessu móti tókst honum t. d. að koma á fyrirkomulagi, sem gerði mögulegt að flytja starfs- fólk á milli deilda, þ. e. a. s. verkafólk inn á rannsóknar- stofur og verkfræðinga út í verksmiðjurnar, svo dæmi séu nefnd. Paul Johnsen, starfs- mannastjóri segir, að þetta fyr- irkomulag hafi komið í veg fyrir að starfsmannaklíkur mynduðust í hinum ýmsu deídum Tandberg A/S. I seinni heimsstyrjöldinni á- kvað Vebjörn Tandberg, sem nú er 69 ára, að gefa starfs- fólkinu fyrirtækið. Hann hafði áhvggiur af því að þýzku nas- istarnir myndu handtaka sig og þá yrði úti um fyrirtækið. Vebjörn breytti fyrirtækinu úr einkafyrirtæki í sjálfseignar- stofnun og í lögum þess segir, að fjárfesta beri allan hagnað fyrirtækisins í rekstri þess. Hann sá til þess, að hann gæti sjálfur starfað við Tandberg Á/S án þess að eiga það á hættu að vera settur til hliðar eða rekinn. „Ég vildi koma því þannig fyrir, að enginn utanað- komandi aðili gæti haft áhrif á reksturinn“, segir Vebjörn. „FÓLKIÐ VERÐUR AÐ KUNNÁ VEL VIÐ VERK- SMIÐJUNA.“ Það er skoðun Tandbergs, að starfsmennirnir verði að kunna vel við verksmiðjuna, vegna þess að það auðveldi þeim að aðlagast starfseminni. Ein leið til að tryggja þetta er að starfsmannaf jöldi hverrar verksmiðju má ekki f.ara upp fyrir 700 marins. Þetta auð- veldar t. d. stjórnendum hverrar verksmiðju að þekkja starfsfólkið, a. m. k. í sjón, og skapar auk þess „fjölskyldu- stemmningu“. Upphaflega vildi Vebjörn takmarka starfsmanna- fjöldann við 250 manns í hverri verksmiðju, en það reyndist ekki hagkvæmt. í anddyri hverrar verksmiðju má sjá stóra töflu með myndum og nafni allra starfsmannanna, sem þar starfa. „Þetta auð- veldar nýliðum að gera sér grein fyrir með hverjum þeir vinna“, segir Henry Andersen, FV 1 1975 17
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.