Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1975, Side 23

Frjáls verslun - 01.01.1975, Side 23
Grcinar og uiðlBI Efnahagsmálin eftir dr. Guðmund iVlagnússon, prófessor. Það er ekki auðvelt að ræða efnahagsmálin á þessari stundu. Kemur þar margt til. í fyrsta lagi hafa forystumenn þjóðarinnar keppst við um nýliðin áramót að lýsa ástandi og horfum í efna- hagsmálum með spaklegum orðum, jafnframt því sem þeir hafa gefið okkur heilræði í nestið á leið inn í framtíðina. í öðru lagi líður vart sá dag- ur, að ekki berist frétt um versnandi ástand í atvinnumál- um erlendis, fjármálum eða viðskiptum: atvinnuleysi er sums staðar hið mesta eftir heimsstyrjöldina síðari, olía hækkar í verði, lægsta skrán- ing hlutabréfa í 20 ár, verð- bólga herjar hvarvetna, ýsu- flök lækka í verði, birgðir safnast upp. Þá er tæplega búist við því, að ég segi hér einhver ný sannindi. Við sungum áfram sama_ heimsumbólið um þessi jól. Ég ætla þrátt fyrir þetta allt að freista þess að koma víða við í trausti þess, að góð vísa sé aldrei of oft kveðin. • Dmheimurinn Áður en við reynum að skilja þróun mála mér á landi, er fróðlegt að skyggnast um í kringum okkur. Tvö meginvandamál setja svip sinn á efnahag iðnríkja um þessar mundir, annars veg- ar heimsverðbólga, sem er meiri en dæmi eru til á síð- ustu áratugum, en hins vegar misvægi 1 viðskiptum þjóða, sem ekki virðist einfalt að leiðrétta með skjótum hætti. Við þetta bætist, að víða hafa farið saman vaxandi verðbólga og aukið atvinnuleysi. Að ráða bót á öllu þessu samtímis er mikill höfuðverkur. Að minnsta kosti kunna hvorki hagfræðingar né stjórnmála- menn haldgóð ráð í þeim efn- um. Hagfræðin hefur á síðustu áratugum bent á ýmsar leiðir til að draga úr almennri efna- hagsþensiu eða til að hífa þjóð- félagið upp úr öldudal. Eins og við þekkjum af eigin reynslu, verður eitthvað mark- mið undan að láta, þegar sú staða er komin upp, að gjald- eyrissjóðir eru tæmdir, út- flutningsatvinnuvegirnir eru reknir með tapi, verðbólgan dansar Hrunadans og atvinnu- leysi er á næsta leyti. Á 3. áratugnum var sú leið farin hér á landi að taka á móti sveiflunum með breytingum á atvinnumagni. Með því móti náðist markmiðið um nánast stöðugt verðlag og sæmilegan greiðslujöfnuð, en á kostnað atvinnuleysis. Síðan um 1940 hefur sveiflunum aðallega ver- ið mætt með breytingum á verðlagi, þ. e. full (ef ekki yf- irfull) atvinna, hefur ríkt nema með fáum og þá oftast staðbundum undantekningum, sæmilegur greiðslujöfnuður hefur náðst, en á kostnað örr- ar verðbólgu. VAL MILLI MARKMIÐA. Ég vil vara við því, að menn dragi af þessu þá ályktun, að grundvallarágreiningur sé t. d. á milli markmiðanna um stöðr ugt verðjag og atvinnu öllum til handa. Jafnfúslega viður- kenni ég að sjálfsögðu, að þjóðfélag geti verið í þeirri stöðu að velja verði á milli markmiða og fara einihvern meðalveg. Sömuleiðis er líklegt, að um árekstur markmiða sé að ræða af þessu tagi í vestrænum þjóðfélögum, eins og efnahagsmálin hafa verið rekin. Það hefur sýnt sig að einnig stórþjóðirnar hafa orðið að velja milli markmiða í svipaðri stöðu og við höfum oft lent í. Þær hafa upp á síðkast- ið þrjóskast við að veita við- nám gegn verðbólgunni, en án verulegs árangurs. Þetta er sennilega einkum vegna þess, að dregið hefur verið úr eftir- spurnaraukningu á 'heima- markaði, sem ekki var til stað- ar. Innlend eftirspurn annað- hvort stendur í stað eða fer mi-nnkandi í iðnríkjunum stóru Bandaríkjunum, Japan, Vestur- Þýzkalandi og Bretlandi. Efna- hagsstefnan hefur haft sam- dráttaráhrif í framleiðslu og á vinnumarkaði. Bent hefur verið á í þessu sambandi, að ,,betra“ væri fyr- ir þessi lönd að viðhalda hag- vextinum og nota framleiðslu- aukninguna til að greiða fyrir hina dýrari olíu fremur en minnka greiðsluhallann með því að draga úr framleiðslu og þar með olíukaupum. En bá léki verðlagið lausum hala, þótt sennilega mætti koma í veg fyrir jafnmiklar hækkan- ir á því og að undanförnu með því að hamla á móti jafnörri aukningu alþjóðafjármagns og 1970-1972, sem sumir segja að hafi „fjármagnað" heimsverð- bólguna. FV 1 1975 23

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.