Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1975, Blaðsíða 43

Frjáls verslun - 01.01.1975, Blaðsíða 43
Geir Hallgrímsson, forsætisráðherra: „Hættulegast, ef heiztu atvinnuvegir landsmanna eru reknir með halla” * „Utilokað að ætlast til að almennar kauphækkanir færi laumþegum kjarabætur" Stóralvarlegt verðfall á íslenzkum útflutningsafurðum, erfiðleikar í rekstri atvinnufyrirtækj- anna, uppsagnir sanminga um kaup og kjör, óðaverðbólga, sem ekki verður séð fyrir endann á og áhrif efnahagsvandamála nágrannaþjóðanna á liag fslendinga, — allt hefur jietta vakið ugg með þjóðinni á hinu nýbyrjaða ári. Forystumenn hennar fluttu varnaðarorð með nýársóskum sínum á áramótum og hvöttu almenning til að gæta hófs og ráðdeildar í meðferð fjármuna sinna, því að lífskjörin myndu ekki batna um sinn. Þetta ástand og slæmar horfur á önd- verðu árinu voru megintilefni eftirfarandi viðtals Frjálsrar verzlunar við Geir Hallgrímsson, forsætisráðherra. Forsætisráðherra: Meginstefnumið ríkisstjórnarinnar að tryggja fuila atvinnu í landinu. F.V.: — Teljið þér einhverj- ar horfur á, að hinir ólíku hagsmunahópar í samfélaginu m'uni á nýja árinu sameinast í árangursríkri viðureign við’ efnahagsvandamálin, eða eigið þér öllu heldur von á harðvít- ugri kjarabaráttu og póli- tískum átökuin um aðgerðir í efnahagsmálum? Forsætisráðherra: — Ég tel of mikla bjartsýni, að búast við því, að ólíkir hagsmuna- hópar sameinist í árangurs- ríkri viðureign við efnahags- vandamálin á nýja árinu. Ég tel hins vegar of mikla svart- sýni, að líkur séu á harðvít- ugri kjarabaráttu, þótt hitt sé víst, að pólitísk átök um aðgerðir í efnahagsmálum muni verða á nýbyrjuðu ári. Ég geri mér vonir um, að forystumenn hagsmunasam- taka og allur almenningur skilji þær ytri aðstæður, sem við nú búum við, og þau gjör- breyttu viðhorf, sem um er að ræða og felast í því, að við- skiptakjör landsins hafa tekið sneggri og dýpri sveiflu niðiur á við á síðast'liðnu ári, en dæmi munu vera um fyrr. Ef dæmið er sett þannig fram, að viðskiptavisitalan fyr- ir árið 1972 er talin 100 þá var hún 115 fyrir 1973, 123,3 á fyrsta ársfjórðungi 1974 en fór niður í 90.5 á síðasta ársfjórð- ungi 1974. Þróunin hefur ekki batnað síðan og þessi breyting skapar okkur svo mikinn vanda, að útilokað er að ætl- ast til að almennar kauphækk- anir færi launþegum kjarabæt- ur. F.V.: — Sýnist yður líklegt, að komizt verði hjá meiri- háttar ágreiningi um fiskverð og kaup og kjör á bátaflot- anum nú á öndverðu árinu? Forsætisráðherra: — Ég skal ekki fullyrða, hvort deilur rísa um fiskverð. Við ákvörð- un fiskverðs er byggt á skýrsl- um, sem hingað til hafa ekki verið dregnar í efa. Þótt á- greiningur hafi oft verið um ákvörðun fiskverðe, hafa menn almennt viðurkennt óvéfengj- anlegar upplýsingar um verð á útflutningsafurðum okkar annars vegar og tilkostnað inn- anlands hins vegar. Við fisk- verðsákvörðun nú er staðan þrengri en nokkru sinni áður, eins og sjá má af því, að á síðasta ári var loðnumjölsverð $9.50 á hverja protein-einingu, en er nú ekki hærra en $ 4.25 á protein-einingu. Verð á fisk- blokk hefur einnig fallið mjög. Á einu ári hefur verðið á þorskblokk fallið úr 80 cent- um hvert pund í 58 cent eða FV 1 1975 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.