Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1975, Side 53

Frjáls verslun - 01.01.1975, Side 53
Unnið er að gerð viðbyggingar við skipasmíðastöðina. einnig verður það útbúið til nótaveiða. Teikningin er upp- haflega norsk en breytt og endurbætt af Bárði Hafsteinsr sjni, skipaverkfræðingi og Ólafi H. Jónssyni. Ekki liggja endanlega fyrir upplýsingar um allan búnað skipsins, enda rétt byrjað að leggja kjölinn. Reikn- að er með að smíðinni verði lokið á árinu 1976, ef allt geng- ur að óskum. BYGGT VIÐ STÖÐINA Nú er verið að ljúka veru- legri viðbyggingu við skipa- smíðastöðina til austurs, og verður þar komið fyrir nýrri og fullkominni brotavél, eða skurðarvél. Hún verður mjög afkastamikil en í tengslum við hana hefur verið komið upp stærstu teiknivél á landinu, til þess að vinna verklýsingu í skurðarvélina. Brotvélin er komin til landsins fyrir nokkru, en fyrir stuttu var hún ekki komin til ísafjarðar frá Reykja- vík. Lýsir það nokkuð því ástandi, sem stöðin þarf að búa við í hráefnisaðdrætti einnig. Flugfélagiö Ernir hf., ísafirði: Lítill opinber stuðningur Flugfélagið Ernir li.f. á Isafirði hefur á undanförnum árum þjónað íbúum Vestfjarða fyrst og fremst með margskonar þjónustuflugi milli hinna mörgu og dreifðu byggða Vestfjarða. Þar má nefna fastar póstferð- ir, sem komið hefur á milli ísa- fjarðar, Holts í Önundarfirði, Þingeyrar og Patreksfjarðar, og veitt íbúum þessara staða aukna samgöngumöguleika, aukið tengsl og viðskipti milli fyrir- tækja félagasamtaka og almenn- ings innan svæðisins. Þá má geta mikils sjúkra- og lækna- flugs um svæðið. MIKILVÆG ÞJÓNUSTA Ernir h.f. er fjölskvlduhluta- félag með aðsetu” á fsafirði, og er félagið nú um fimm ára. Hörður Guðmundsson hefur verið aðalflugmaður þess frá bvrjun. Sagði hann í viðtali við FV að nú væri svo komið, að fvrirtækið væri rekið með tani, enda ekki stvrkt neitt af við- komandí sveitarfélögum. þótt han vilii ekki missa þessa bjón- ust.u. Sumir aðrir samgöngu- aðilar á Vestfiörðum eru stvrkt- i r af sveitarfélögum og ríki. Eini styrkurinn, sem Ernir nýt- ur, er svonefndur sjúkrastyrk- ur, sem félagið fær fyrir sjúkra- flugbjónustuna, en upphæð stvrksins gerir ekki nema rétt að greiða verðmismuninn á eldsneytinu, sem er 30% dýrara á ísafirði en í Reykjavík og og nam sá mismunur um hálfri milljón króna hjá Örnum sl. ár. Hörður kvað óneitanlega nokkuð óréttlæti í því, að niu þúsund króna ábyrgð hvíldi á hverju mannsbarni á iandinu vegna ríkisábyrgðar á rekstrar- lánum til Flugleiða h.f., en það fvrirtæki hefði hvað eftir annað nú upp á síðkastið lýst því yfir, að tap væri á Norður-Atlants- hafsleiðinni, eða á þeirri leið. sem félagið flytur útlendinga á milli heimsálfa. Um leið er ekki króna veitt, til að efla samgöng- m- íslendinga sjálfra innan Vestfjarða. FÁIR FLTJGVELLIR NOTHÆFIR Sem kunnugt er af fréttum. skpmmdist tveggja hreyfla f>ine’--vél fvnrtækisins í b’’una á ísafjarðarflugvelli fvrir ■sVömmij og önnur vd félags- ins, Helio-Curier, sem var sér- ieva heppileg fvrir styttri og erfiðari velli, skemmdist einnig í sumar, svo að nú um hríð hef- ur félagið enga vél. Pioerinn er ' ^nðverð ng er einnig nær fast ákveðið að kaima aðra Helíó-vél enda var félagið búið að kaupa Hörður Guðmundsson við stýrið. dýran skíðabúnað undir hana til að geta lent henni á snjó- þungum völlum. Þrátt fyrir fjölda skráðra flugvalla á Vest- fjörðum, er ekki hægt að segja nema örfáa þeirra nothæfa allt árið, og eru þeir flestir mjög vanbúnir. Umsvif félagsins fóru nokkuð vaxandi á síðasta ári og með tilkomu Helio-Curier vélarinnar opnaðist leið á Strandir og var þeirri nýjung mjög vel tekið svo að segja má að ferðamanna- flug sé einnig að verða þáttur í starfsemi félagsins. Samanlagð- ur lendingarfjöldi véla Arna h.f. frá 1. sept 1973 til 1. sept 1974 voru 1625, auk 200 lend- inga leiguvélar, sem félagið hafði um tíma í fyrra. FV 1 1975 53

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.