Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1975, Page 65

Frjáls verslun - 01.01.1975, Page 65
Burrouglis- vélar Rafreiknir skipuleggur mjólkurdreifinguna ViS fyrirtækið H. Benediktsson & Co. í Reykjavík er starfandi skýrsluvéladeild, eða Burroughs deild, eftir samnefndu f jölþjóða- fyrirtæki, en H.B. & Co. hefur verið umboðsaðili þess hér síð- an laust fyrir síðari heimsstyr- jöldina. I deild þessari eru allar venjulegar skrifstofuvélar á boðstólnum, eða allt frá minnstu samlagningarvéium upp í stærstu rafreikna. Við deildina, sem s-egja má að hafi orðið til árið 1967, eða þegar þar var komið upp viðgerðarljjónustu, starfa fimm menn. Stephen Rasterick hefur yfirumsjón með sölunni og Áki Jónson hefur yfirumsjón með viðhaldinu. Áki sagði í viðtali við FV, að Burroughs hefði alveg skipt yfir í elektróniskar vélar árið 1970 og væri mikið af þeim notað hér, t.d. af hinum svonefndu „mini“-tölvum. Þær eru notað- ar við bókhald og reikningsút- skriftir og nota mörg stórfyrir- tæki þær vélar svo sem S.I.S, Landsbankinn, Brunabóta- félagið o.fl. Ein þannig vél er t.d. notuð til að reikna sam- eiginlega út öll laun við frysti- húsin í Vestmannaeyjum. Sér- menntaðir menn frá H.B & Co. kenna viðskiptavinum á vélarn- ar og aðstoða við forritun (pro- gramming) en þessir menn fara út á nokkurra mánaða námskeið í hvert sinn sem ný vél kemur á markaðinn. Á síðasta ári seldi deildin Mjólkursamsölunni stóran rafreikni,, sem kominn er í gagnið, en hann er fyrsti og eini rafreiknirinn hér á landi, sem ekki er frá IBM. AFKASTAMIKILL RAFREIKNIR Vilhelm Anderson vinnur við hann þar, og sagði hann, er FV spurði hann um ágæti rafreik- isins, að með hliðsjón af afkasta- getu og verði, væri hann frá- bær, en verðið er eitthvað um 14 milljónir króna nú. Á 35 mínútum skipuleggur reiknir- inn hleðslur á alla mjólkurbíl- ana, magn og vöruskiptingu í hverja mjólkurbúð og skrifar út alla reikninga og hleðslu- sýrslur. Þetta gerir hann dag- lega auk þess að vera notaður við bókhald. Vegna hinnar miklu afkastagetu þarf hann ekki nema hluta úr degi til að sinna verkefnum fyrir Mjólkur- samsöluna. Eru því tekin auka- verkefni fyrir önnur fyrirtæki og stofnanir. Hann vinnur t.d. uppgjör fyrir 1500 bændur, vegna mjólkurkaupa, og mörg verkefni fyrir Búnaðarfélag íslands. Þrátt fyrir hin mörgu og margvíslegu verkefni, sagði Vilhelm, að heilinn og mögu- leikar hans, væru ekki gjör- nýttir. f 40 LÖNDUM Burroughs er upphaflega bandaríkst fyrirtæki, en það er í stöðugum vexti og rekur nú verksmiðjur í 40 löndum. Burroughs vörurnar, sem seldar eru hér, koma aðallega frá verk- smiðjum í Skotlandi, Belgíu, Bandaríkjunum, og lítilsháttar frá Frakklandi. Vilhelm Andersson við rafreikninn, sem vinnur fyrir Mjólkur- samsöluna. BLÓMASTOFA FRIÐFINNS Suðurlandsbraut 10. Sími 31099 SKREYPNGAR VIÐ ÖLL TÆKIFÆRI. — GJAFAVÖRUR I ORVALI. FV 1 1975 65

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.