Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1975, Page 90

Frjáls verslun - 01.01.1975, Page 90
Vinnuvélar G. E. SÆMUNDSSON HF. AÐALSTRÆTI 17, ÍSAFIRÐI. SÍMI 94-3047. PÓSTHÓLF 120. • Framkvæmum alls konar málningarvinnu utan húss og innan. • Verzlum með málningarvörur og veggfóður. (Jm 450 á leigumark- aðnum hár IVIeðalending þeirra um Milli 430 og 450 vinnuvélar af ýmsum stærðum og gerðum eru nú í eigu þeirra 200 aðila, sem mynda Félag vinnuvéla- eigenda, en það félag var stofnað 1953. Jón G. Halldórs- son, formaður frá stofnun, sagði í viðtali við FV, að fé- lagatalan hefði farið mjög vax- andi sl. tvö ár, félagar væru nú um allt fand og væri allur þorri vinnuvélaeigenda í félag- inu. Félagið er hagsmunafélag, sem m. a. útbýr verðskrá. Fé- lagar skiptast í verktaka, sem leigja vélar sínar þegar þeir þurfa ekki á þeim að halda, aðila, sem eingöngu stunda leigu og svo er mjög algengt að einn maður geri út eina vél og vinni sjálfur á henni. ÚTREIKNIN GUR VERÐSKRÁR. Grundvallarreglan við út- reikninga verðskrár, er að taka tillit til innkaupsverðs viðkomandi vélar, áætlaðan endingartíma og viðhaldskostn- að. Stofnkostnaður, vextir og viðhald eru aðalkostnaðarliðir við útgerðina. Meðalending vinnuvélar er talin um 10.000 vinnustundir, eða fimm ár undir venjulegum kringum- stæðum. Kranar endast þó að meðaltali í 14 til 16 þúsund vinnustundir. Meðalstór jarð- ýta, eða t. d. D-6, kostar skv. útreikningum röskar 3,700 kr. á klst., miðað við að verk- ið sé lítið, en öll verð lækka í hlutfalli við stærð verkefnis- ins. Krani kostar um 2,700 kr. pr. klst., traktorsgrafa um 1800 kr. og meðalstór hjóla- skófla rétt liðlega 3,000 kr., allt miðað við stutt verk og laun vélamanns innifalin. Flutningskostnaður leggst svo við þessi verð, ef um teljandi flutninga til vinnustaðarins er að ræða. Af stærstu aðilunum í Félagi vinnuvélaeigenda má nefna: Vörðufell, Miðfell, Loftorku, Jarðvinnsluna, Jarðýtuna, Hegra, Völ, Norðurverk, Aðal- 10.000 vinnustundir braut, Breiðholt, Ellert Skúla- son og Ýtutækni, flest hluta- félög. BYRJAÐ 1943. Að sögn Jóns hófst notkun vinnuvéla við byggingariðnað- Jón G. Halldórsson inn árið 1943, og voru þá ein- göngu notaðar jarðýtur. Síðan hafa orðið miklar breytingar, nýjar vélar komið fram og hverskyns endurbætur átt sér stað. Jón taldi vökvaaflkerfin þó hvað merkilegasta allra nýjunga á þessum tíma, fyrst notuð við jarðýtur, síðan við gröfur og yfirleitt flestar vinnuvélar og nú síðast í stóra krana. 90 FV 1 1975

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.