Frjáls verslun - 01.04.1975, Side 41
Eitt af skipum Eimskipafélags íslands við bryggju í Sundahöfn, þar sem félagið hefur reist stórar
vöruskemmur.
Felixstowe, Hamborg, Ant-
werpen og Norfolk.
Þá ætla ég að víkja að nokkr-
um atriðum, sem ég veit að
rædd hafa verið manna á með-
al og ég veit að stórkaupmenn
hafa áhuga á.
Allir, sem hingað vilja sigla,
geta gert það. Hollendingar,
Danir, Novðmenn, hver sem er.
Enginn getur bannað þeim það.
Þetta sýnir, hvað samkeppnin
er hörð. Þeir voru hér fyrir
nokkrum áratugum en eru allir
farnir vegna þess að ekki borg-
aði sig að halda íslandssigling-
um uppi. Ef einhver hagnaðar-
von væri myndu þeir koma aft-
ur.
í viðlbót við þetta er geysi-
hörð samkeppni milli islenzku
skipafélaganna. Ofan á þetta
bætist það einsdæmi í heimin-
um, að flutningur stykkjavör-
unnar er háður verðlagsákvæð-
um. Það þekkist hvergi nema á
íslandi. Útflutningurinn er
frjáls, stórflutningur sömuleið-
is en stykkjavaran er það ekki.
Af þessu má sjá, að sam-
keppnin er hörð og að okkur er
skammtað naumt í sambandi
við álagninguna ekki síður en
verzlunarfyrirtækjunum.
FARMGJÖLD ÞURFA AÐ
HÆKKA
Við síðustu gengisbreytingu
fengum við % af gengisbreyt-
ingunni í hækkuðum farm-
gjöldum. Þá tjáðum við við-
skiptaráðherra, að yfirvöld
ættu að láta okkur fá fulla
gengisbreytingu, því að þá yrði
prósentan lægri, sem við þyrft-
um að fá eftir nokkrar vikur.
Síðan hækkun varð síðast á
flutningsgjöldum, fyrir um
hálfu öðru ári, að mig minnir,
hefur verðlagið erlendis hækk-
að frá 10% upp í 25%. Viðr
gerðir hækkuðu, olía, trygging-
ar o. s. frv. Þannig, að við
þurftum að fara fram á um-
talsverðar hækkanir á farm-
gjöldunum af þessum sökum.
ÁLÖGUR VERÐI
RANNSAKAÐAR
í sambandi við samgöngur
innanlands langar mig að geta
þess, að ég hef beðið ríkis-
stjórnir, bæði þá fyrri og þá
sem nú situr, að setja þrjá
óvilhalla menn í að rannsaka
álögur rikis og bæjarfélaga á
hin ýmsu samgöngutæki. Ég
hef sagt við þá: „Gætið þess,
að skipið, bíllinn og flugvélin
búi við sama rétt og sömu lög.
Engin friðindi. Gleymið því
ekki, að tollur er greiddur af
bílnum en ekki flugvélinni og
skipinu. Athugið svo aftur á
móti vörugjaldið, sem menn
verða að borga, ef varningur er
fluttur með skipi, og ekki
leggst á flutning með bílum.
Kannið, hvað skipin verða að
greiða fyrir skemmdir á bryggj-
um. Hvað borgar svo bíllinn
vegna skemmda á vegum? At-
hugið allt þetta, jafnið gjöldin
og sjáið til þess að allir séu
jafnréttháir. Flugvélin er jafn-
nauðsynleg og bíllinn og bíllinn
jafnnauðsynlegur skipinu.
Skipið hentar á þessum stað en
billinn ekki og við þurfum að
eiga öll þessi samgöngutæki.
Þau eiga öll rétt á sér. En þau
eiga öll að búa við sömu kjör.“
PAKKHÚSLEIGAN
Pakkhúsleigan er mál, sem
ykkur alla varðar.
FV 4 1975
41