Frjáls verslun - 01.04.1975, Blaðsíða 64
mismunurinn allt upp í hund-
ruð þúsunda, hvað 3K innrétt-
ingarnar eru ódýrari. Á síðustu
tveim árum hefur meðalstór
innrétting í eldhús í fjölbýlis-
húsi hækkað aðeins um 12%
vegna aukinnar framleiðni. 3K
býður eldhúsinnréttingar í
venjulega fjölbýlishúsaíbúð á
allt niður í tæpar 200 þúsund
krónur.
,,Ég hef ekki enn fundið er-
lendar innréttingar, sem geta
keppt við okkur í verði og alls
ekki í gæðum,“ sagði Ólafur, er
hann var spurður um hugsan-
leg áhrif frjáls innflutnings inn-
réttinga á starfsemi 3K. Hann
benti á að um leið og ákvörðun
var tekin um að ganga í EFTA,
hefði verið hafist handa um að
byggja upp þá aðstöðu að verða
samkeppnishæfir við innflutn-
inginn og það hefði greinilega
tekist á öllum þrem stöðunum.
Örðugasta vandamálið sagði
hann, hversu erfitt og hve dýrt
væri að fá fé til fjármögnunar
þessara fyrirtækja, þótt þau
væru í góðum rekstri, og benti
á að erlendu keppinautarnir
fengju mun auðveldar og mun
ódýrara fjármagn en innlendir
aðilar. Þrátt fyrir það upplýsti
Ólafur að rekstur þessara fyrir-
tækja hefði gengið vel á síðasta
ári fjárhagslega. Samstarf þetta
hefur nú staðið í tvö og hálft ár
og sagði Ólafur að staða fyrir-
tækjanna væri ótrúlega góð
miðað við að á tímabilinu hafi
þau breyst úr þjónustufyrirtæk-
jum, eins og áður er lýst, yfir í
framleiðslufyrirtæki.
SAMVINNA VIÐ NORÐMENN
Ein af ástæðunum fyrir vel-
gengni í uppbyggingu þessa
samstarfs taldi Ólafur þá, að
mjög gott samstarf hafi náðst
við stór norsk húsgagnafram-
leiðslufyrirtæki og framleiðir
3K húsgögn eftir þeirra teikn-
ingum. Annað þessara fyrir-
tækja er eitt það stærsta á
sínu sviði í Evrópu. Það er op-
inn möguleiki að 3K framleiði
upp í samninga erlendu fyrir-
tækjanna en eins og sakir
standa sagði Ólafur að fyrsta
markmið væri að vera það sam-
keppnisfærir á íslenska markað-
num að fært sýndist að flytja
einnig út. En á meðan gengi
íslensku krónunnar og fjármála-
ástandið hérlendis væri eins og
raun ber vitni, taldi Ólafur ó-
kleift fyrir úslenskan húsgagna-
iðnað að hugleiða útflutning
því m. a. þarf að gefa út verð-
lista eitt ár fram í tímann.
FOSSNESTI Selfossi
Greiðasala. Essó-benzín og olíur.
Allskonar léttar veitingar, Leigubifreiðir til lengn
sælgæti öl tóbak og ís. og skemmri ferða.
Ljósmyndavörur.. Ymsar bifreiðavörur.
Alls konar ferðavörur og Afgreiðsla sérleyfisbifreiða
nauðsynjar. Austurleiðar.
Sími 99-1266 Selfossi.
HÓTEL SELFOSS
er í þjóðleið. Leigjum út veizlusali.
Venð ávallt velkomm. Sendum út heitan mat
Veitingasalur opinn og köld borð
daglega frá kl. 8-23.30 . fynr veizlur.
Sími 99-1230.
64
FV 4 1975