Frjáls verslun - 01.04.1975, Qupperneq 86
§ Þáttur
Air
Bahama
Auk þess að vera yfirmaður
skrifstofu Loftleiða í Luxem-
borg er Einar Aakrann for-
stöðumaður Air Bahama í Lux-
emborg, en það félag er sem
kunnugt er dótturfélag Flug-
leiða hf. nú eftir sameiningu
íslenzku flugfélaganna. Allt
sölukerfi Loftleiða í Evrópu og
Bandarikjunum er einnig notað
fyrir Air Bahama. í sumar mun
það félag fara 4 ferðir í viku
milli Luxemborgar og Nassau
en Loftleiðir verða með 12 ferðr
ir vikulega á norðurleiðinni
svokölluðu, um ísland.
Aakrann sagði, að það hefði
tvímælalaust verið rétt að
kaupa Air Bahama á sínum
tíma vegna þeirrar hugsanlegu
samkeppni við Loftleiðir, sem
af félaginu stafaði. Árið 1968,
sem var fyrsta ár Air Bahama
á flugleiðinni, flutti félagið
10.251 farþega en í fyrra voru
þeir 84,416. Við spurðum, hvort
Air Bahama væri samt ekki í
beinni samkeppni við Loftleið-
ir.
„Nei, alls ekki“, svaraði
Aakrann. „Frekar má segja að
þetta sé viðbót. Nú eru farþeg-
arnir aðallega ferðafólk, sem
fer til orlofsdvalar i Karabíska
hafinu eða í Flórída og enn-
fremur farþegar til Suður-
Ameríku."
Það hefur verið í athugun að
breyta eignaraðild að Air Ba-
hama, þannig að Bahamabúar
fengju sinn hlut. Yrði það ef-
laust til að tryggja félaginu ör-
ugg lendingarréttindi í Nassau
til langs tima. Þá hefur líka
komið til tals, aði Luxemborgar-
ar eignuðust hlut í félaginu en
það mál er aðeins á frumstigi.
Major Ricketts, sá er stofn-
aði Air Bahama á sínum tíma,
er þó ekki af baki dottinn.
Hann hefur leyfi til að fljúga
tvisvar í viku til Luxemborgar
frá Barbados í Karabíska haf-
inu og nú heitir félagið Inter-
national Caribbean. Er far-
gjaldið svipað og hjá Air Ba-
hama en af völdum samkeppni
frá Ricketts hefur Air Bahama
nú lokað skrifstofu sinni í Vene-
zúela.
• Hvað
gera
Luxemborgarar ?
Hér á íslandi hefur það oft
legið í loftinu, að stórglæsileg-
ur árangur Loftleiða á N-Atl-
antshafsleiðinni kynni að vekja
Luxemborgara til alvarlegrar
íhugunar um sína eigin hags-
muni í fluginu og þeir spyrðu
sjálfa sig: „Hvers vegna ger-
um við þetta ekki sjálfir?“
Fyrir nokkrum árum einkennd-
ust viðhorf vissra áhrifamanna
í samgöngumálum Luxemborg-
ara mjög af þessu. Tilraun var
gerð til að fá loftferðasamning
við Bandaríkin en það tókst
ekki, þrátt fyrir mikla vináttu,
sem verið hefur með Luxem-
borgurum og Bandaríkjamönn-
um frá því á stríðsárunum.
Sennilegt er að bandarísk yfir-
völd hafi litið til þess, hve fáir
Luxemborgarar koma vestur
um haf og ennfremur, að band-
arísk flugfélög hafi eindregið
lagzt gegn hugmyndinni. Loft-
ferðasamningur við Bandaríkin
fékkst sem sé ekki og hin síð-
ustu ár hafa engar tilraunir
verið gerðar til aði fá flugrétt-
indi vestur um haf.
Um skeið sýndu Luxemborg-
arar áhuga á að cignast hlut i
Loftleiðum. Það var fyrir meira
en tiu árum og þá hugmynd
mun ekki hafa borið á góma
langa lengi.
Við báðum Einar Aakrann að
lýsa samskiptum Loftleiða og
flugmálayfirvalda í Luxemborg
eins og þau eru um þessar
mundir.
§ Samstarf
vi5
Luxair
Einar Aakrann sagði: „Sam-
komulagið er mjög gott. Ég
finn, að Luxemborgarar líta nú
á Loftleiðir sem sitt annað
flugfélag. Samvinna við þeirra
eigin félag, Luxair, er með á-
gætum og reikna má með að
það flytji um 20% af farþegum
okkar milli Luxemborgar og
annarra áfangastaða í Evrópu.
Luxair, flugfdlag þeirra Luxemborgarbúa heldur uppi ferðum
með Fokker-Friendshipflugvélum til margra mikilvægustu borga
í Vestur-Evrópu.
86
FV 4 1975