Frjáls verslun - 01.07.1976, Blaðsíða 9
Tollgæzlumenn í
Reykjavík hafa með vax-
andi áhyggjum fylgzt með
gæzlumálum úti á landi,
sem þeir telja engan veg-
inn í nægilega góðu horfi.
Þannig hafa þeir lagt á-
herzlu á að menn héðan
úr Reykjavík færu til eft-
irlitsstarfa á höfnum úti á
landi og er ein hafskipa-
höfn norðanlands þá sér-
staklega nefnd, því að þar
er talið að stórsmygl sé
stundað. Af þessum leið-
öngrum hefur þó ekki
orðið, þar eð yfirmenn
gæzlunnar segja að engir
peningar séu til í slí'.c
verkefni.
Auglýsing Loftleiða í
bandarísku sjónvarpi hef-
ur fengið misjafnar við-
tökur. Ferðamálafrömuðir
segja að hún sé sérlega
vel gerð og skemmtileg en
sumir eru á öðru máli.
Auglýsingin sýnir munk,
sem er á ferðalagi og stíg-
ur um borð í Loftleiðavél.
Þar sezt hann niður og
bíður þess með eftirvænt-
ingu að farþegi komi í
sætið við hliðina á sér.
Það gerist líka von bráð-
ar, þegar myndarleg
ljóska fær sér sæti. A-
nægjan skín líka út úr
svip munksins. Þetta hef-
ur yfirboðurum kaþólsku
kirkjunnar vestan hafs
þótt mjög miður og hafa
kvörtunarbréf verið send
til skrifstofu félagsins. Til
þess að fá meira umtal í
blöðum og betri auglýs-
ingu hafa forráðamenn
félagsins vonazt til að fá
mótmælastöðu kaþólskra
við söluskrifstofuna í
New York!
Tryggvi Gíslason,
skólameistari á Akureyri,
hefur þótt röggsamur
stjórnandi menntaskólans
og hefur honum tekizt að
halda uppi góðuin aga í
stofnuninni en nýtur jafn-
framt virðingar og vin-
sælda hjá nemendum. Fyr-
ir nokkru þurfti Tryggvi
í nafni cmbættis síns, að
hefja reiðilestur á sam-
komu á Akureyri þar sem
Steindór Steindórsson,
fvrrum skólameistari, átti
að flytja erindi. Var
fagnaður orðinn slíkur, að
ræðumaður fékk ekki
hlióð. Sagt er að þögn hafi
loks slegið á hópinn, þcg-
ar Trygtrvi yfirgaf sel-
skapinn í mótmælaskyni.
Þetta var ekki nemenda-
mót skólans heldur þing
íslenzkra menntaskóla-
kennara!
íslenzkir rannsóknar-
lögreslumenn hafa reynt
að fvlgjast með störfum
býzka sakamálafræðings-
ins, sem hingað er kom-
inn vegna rannsóknar
glæpamálanna margum-
töluðu. Sá býzki er að
fara vfir ýmis gögn máls-
ins urn bessar mundir off
eerir það í einrúmi. Þ^ð
bvkir tíðindum sæta. að
hláturrokur miklar berast
annað veifið úr einkaher-
ber°'i Þióðverjapq. begar
Vinrm er að elugga í máls-
skjölum. fslenzkir biað°-
m p n n hafa revnt að ná
viðtali við þennan sér-
fræðing en ekki tekizt.
Ástæðan mun vera sam-
komulag, sem hann gerði
upphaflega við íslenzk
dómsmálayfirvöld um að
segja ekki orð við ís-
lenzku blöðin.
Undanfarið hafa verið
gerðar merkar tilraunir
með tölvuvinnslu á
sjúkraskýrslum hér á
Iandi. Er verið að reyna
fjarvinnslu á þessu sviði
og eru upplýsingarnar
sendar frá sjúkrahúsi á
Egilsstöðum til Reykja-
víkur. Þetta er þáttur í
þeirri þróun, að sjúkra-
hús geti fcngið á auga-
hragði allar upplýsingar
um fyrri læknismeðferð
og lyfjagjafir, sem sjúk-
lingar hafa hlotið, ef þeir
eru lagðir inn skyndilega,
t.d. vegna slysfara.
Vegna umræðna um
það, hvort á Keflavíkur-
flugvelli séu geymd
kjarnorkuvopn af ein-
hverju tagi eða ekki, hafa
skandinaviskir sérfræð-
ingar látið í ljós það álit,
að öryggisgæzlu og varúð-
arráðstöfunum sé ekki
þannig háttað á flugvall-
arsvæðinu að það sé í
samræmi við þær reglur,
sem bandaríski herinn
hefur sett sér um meðferð
slíkra vopna. Þeir segja
að öryggisráðstafanir,
m.a. til að vernda Banda-
ríkjamenn sjálfa fyrir af-
leiðingum hugsanlegra ó-
happa í kjarnorkuvopna-
byrgjum, séu ekki fyrir
hendi á Keflavíkursvæð-
inu og því afar ólíklegt
að vopnin fyrirfinnist þar.
FV 7 1976
9