Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1976, Síða 53

Frjáls verslun - 01.07.1976, Síða 53
breytast heldur alls almennings. Markmiðið verður að fjárfesta fjárfestingarinnar vegna, án þess að nokkur tilraun sé gerð til að meta arðsemi hennar — heldur aðeins til að koma krón- unum undan verðbólgubálinu. Sigurður: Ein af afleiðingum verðbólgunnar er sú, að það er ákaflega erfitt að fylgjast með því hvernig ákveðin verk eða framkvæmdir hafa gengið. Þetta verður til þess að menn komast upp með að gera kol- vitlausar áætlanir og láta kostn- að fara langt fram úr áætlun og skella svo bara skuldinni á verðbólguna. Ef menn hafa pappírana í lagi á að vera hægt að sundurgreina hvað hefur verið vitlaust áætlað og hvað er verðbólgunni að kenna. Ég hef það á tilfinningunni að menn komist oft upp með það ekki sízt í opinberum rekstri, að skella allri skuldinni á verð- bólguna og þá slævist allt að- hald í þá átt að gera hlutina betur. Sp.: Hefur tölvutæknin haft áhrif í þá átt að bæta stjómun hér á landi? Ragnar: Ég held að við höf- um verið jafnfljótir og aðrir að tileinka okkur tölvutækni. Ég sá nýlega að fjárfesting í tölv- um og því sem þeim fylgir hef- ur meira en tvöfaldazt síðan 1970. Ég veit að við stöndumst afveg samanburð við þetta. Sigurður; Það er enginn vafi á því að tölvan hefur að veru- legu leyti skapað grundvöll fyr- ir hagkvæmni í stjórnun stór- fyrirtækja. Það hefur kostað vegagerðina gífurlega fyrir- höfn að koma þessu á, eni þegar menn fara að sjá árangur leggja þeir sig fram um að fá sem mest út úr þessu. Þegar fleiri ríkisfyrirtæki verða kom- in með tölvur skapast mögu- leiki á „terminölum“ út um land og þá getum við farið að senda upplýsingar gegnum síma. Ragnar: Það var mikið fram- faraspor þegar byrjað var að gera vegaáætlun þannig að fjár- veitingar til vegamála nýttust betur. Hörður: Það er ekki vansa- laust að það eru enn stór ríkis- fyrirtæki sem hafa ekki komið á kerfisbundinni áætlanagerð, sem farið er eftir. Ragnar: Auk þess virðist manni oft ákaflega lítið gert af því að reikna út hvernig hægt er að nýta fjármagnið sem bezt í þeim liðum sem kosta skattborgarana mest þ. e. í menntakerfinu og heilbrigðis- þjónustunni. Það er stillt upp kröfum, sem síðan er reynt að fullnægja án tillits til þess hvar þörfin er mest. Sp.: íslendingar verja litlum hluta þjóðartekna sinna til rannsóknarstarfa. Sýnir þetta ekki vanmat á einum veiga- miklum þætti stjórnunar? Ragnar: Jú, vafalaust. Við verjum einungis einum fjórða til einum þriðja af því sem aðr- ir nota til þessara mála. Þetta sýnir vanmat á rannsóknum, því að fullyrða má, að þeir pen- ingar sem fara til þessara mála skili sér aftur þegar til lengri tíma er litið. Sigurður: Það er landlægt hér að menn hafa litla trú á að fjárfesta í því, sem ekki skilar sér strax. Þannig er t. d. afstaða fjárveitingavaldsins að veru- legu leyti. Það hefur takmarkað trú á störfum sem einhverjir menn vinna að inni á einhverj- um rannsóknarstofum og skila fyrst árangri eftir dúk og disk. Menn vilja helzt fá afrakstur- inn kontant. Einni tegund rann- sókma eru menn þó að byrja að fá trú á en það eru hafrann- sóknir. Ragnar: Rannsóknir verða líka að vera markvissar. Rann- sóknir eiga ekki að vera eitt- hvað, sem stundað er í kyrrþei og síðan sé alveg undir hælinn lagt hvort eitthvað fæst út úr þeim. Það hefur sýnt sig að það er hægt að setja markmið fyrir rannsóknir og ná ákveðn- um árangri. STOFMAIVIR, FÉLÖG VERZLUN ARRÁÐ ÍSLANDS er allsherjarfélagsskapur kaupsýslumanna og fyrir- tækja. Tilgangur þess er að vinna að sameiginlegum hagsmunum þeirra, að styðja að jafnvægi og vexti efnahagslífsins og efla frjálsa verzlun og frjálst framtak. Verzlunarráð íslands, Laufásvegi 36, Reykjavík. Sími 11555. Skrifstofan er að Hagamel 4, sími 26850. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. KAUPMANNASAMTÖK ÍSLANDS Marargötu 2. Símar 19390-15841. FÉLAG ÍSLENZKRA STÓRKAUPMANNA er hagsmunafélag stórkaupmanna innflytjenda og umboðssala. FÉLAC l’SLENZKRA STÓRKAUPMANNA TJARNARGÖTU 14 -- REYKJAVÍK — SlMl 10Í50. FV 7 1976 53
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.