Frjáls verslun - 01.07.1976, Side 13
þeim skeljasandi sem verk-
smiðjan þarfnast til sements-
framleiðslunnar. Skeljasandin-
um er dælt í skipið úr Faxa-
flóa í gegnum sogrör, 40 m
langt inn í lestir skipsins. Síð-
an er sjórinn skilinn frá sand-
inum og siglt með hann til
Akraness og sandinum dælt inn
i þró við Sementsverksmiðjuna.
Sandey I hefur einnig sótt
sand og möl upp i Hvalfjörð,
sem dælt er á land við Sævar-
höfða. Sandurinn og mölin eru
síðan seld til steypustöðvanna
sem byggingarefni.
Sandey II, sem er nýtt skip,
hefur það verkefni að flytja
fyllingarefni út í Grímsey í
flugbraut, sem á að gera þar.
Sandey III, sem einnig er nýr
dæluprammi, vinnur við að
dýpka höfnina í Þorlákshöfn.
BREIÐHOLT H.F.,
Lágmúla 9.
Breiðholt h.f. hefur nýlega
gert fokhelt 8 hæða fjölbýlis-
hús við Krummahóla í Breið-
holti. í húsinu eru 45 íbúðir
2ja-8 herbergja. Þessar íbúðir
reisir Breiðholt sjálft og selur
tilbúið undir tréverk og máln-
ingu. Með íbúðunum við
Krummahóla fylgir bílgeymsla
hverri íbúð.
Breiðholt h.f. er nú langt
komið með að reisa verka-
mannabústaði fyrir Fram-
kvæmdanefnd byggingaráætl-
unar í Seljahverfi í Breiðholti.
Verða ibúðirnar alls 308. í Síðu-
múla í Reykjavík er verið að
reisa þrjú hús fyrir Alþýðu-
bankann og Alþýðusamband ís-
lands og er hvert hús 3 hæðir
og kjallari. Þegar er eitt hús-
anna uppsteypt og er áætlað
að það verði tilbúið fullgert í
nóvember n.k.
A Háaleitisbrautinni við
Austurver í Reykjavík er
Breiðholt að byggja nýtt
skrifstofu- og verzlunarhúsnæði
á 7 hæðum. Húsið er nýorðið
fokhelt. Húsnæðið verður selt
fullgert með innréttingum og
málað.
í Mosfellssveit hefur fyrir-
tækið þegar reist um 40 ein-
býlishús og 10 eru í smíðum.
Húsin eru steypt upp í sérstök-
um stálmótum, sem Breiðholt
h.f. hefur hannað. Loks hefur
Breiðholt h.f. nýlokið við að
reisa 7 fjölbýlishús í Vest-
mannaeyjum fyrir byggingar-
áætlun Vestmannaeyja.
HLAÐBÆR H.F.,
Siðumúla 21.
Hlaðbær h.f. vinnur nú við
gatnagerð í Seljahverfi í Breið-
holti fyrir Reykjavíkurborg.
Fyrir Kópavogskaupstað er
unnið að gatnagerð og malbik-
un. Undanfarið hefur Hlaðbær
h.f. unnið við að gera grunn
að Húsi verslunarinnar, sem
rísa á í nýja miðbænum í
Reykjavík. Einnig hefur fyrir-
tækið verið með malbikunar-
framkvæmdir fyrir Akranes-
kaupstað og einkaaðila og
unnið að gatnagerð við Hafnar-
fjarðarveg fyrir Vegagerð rík-
isins.
Framkvæmdastjóri Hlaðbæj-
ar h.f. er Páll Hannesson.
ÍSTAK,
Iþróttamiðstöðinni í Laugardal.
ístak hefur unnið að hafnar-
gerð í Þorlákshöfn fyrir Hafna-
málastofnunina og verður verk-
inu lokið í haust. Einnig hefur
ístak unnið við Hofsárveitu við
Mjólkárvirkjun, en þar á að
leggja 2V2 km leiðslur til að
veita vatni úr Hofsá yfir í
Mjólká. Verkið er unnið fyrir
Rafmagnsveitur ríkisins.
Þá er ístak að byggja fjöÞ
brautarskóla í Breiðholti og
eru framkvæmdir nýhafnar.
Loks er verið að ljúka við vega-
lagningu í Flóa fyrir Vegagerð
ríkisins. ístak hefur einnig
ýmis önnur verkefni með hönd-
um. Velta fyrirtækisins á sl.
ári var 1 milljarður. Fram-
kvæmdastjóri er Páll Sigur-
jónsson.
LOFTORKA S.F.,
Skipholti 35.
Nú vinnur Loftorka að gatna-
og holræsagerð í IV. áfanga í
Hólahverfi í Breiðholti. Þá er
unnið að grjótnámi á Korp-
úlfsstöðum fyrir Reykjavíkur-
borg. Fyrirtækið sér um að
sprengja og flytja allt grjót
sem er notað við malibikunar-
framkvæmdir hjá Reykjavík-
urborg. Grjótið er flutt í muln-
ingsstöðina á Ártúnshöfða.
Áætlað er að Loftorka s.f. flytji
73.000 tonn af sprengdu grjóti
úr grjótnáminu á Korpúlfsstöð-
um.
Að öðru leyti vinnur Loft-
orka í samvinnu við Hlaðprýði
h.f. að malbikunar- og gatna-
gerð, m. a. að undirbúningi
undir malbik og malbikun 1
Hafnarfirði og unnið er við að
malbika götur og bílaplön fyr-
ir Iðngarða í Skeifunni i
Reykjavík. Einnig er verið að
vinna við að malbika götur og
plön á Áburðarverksmiðju-
svæðinu í Gufunesi. Þá vinna
Lcftorka og Hlaðprýði einnig að
malbikun bílastæða í íbúða-
hverfum og fyrir verslunarhús-
næði.
Framkvæmdastjóri Loftorku
s.f. er Sigurður Sigurðsson.
MIÐFELL H.F.,
Funahöfða 7.
Nú vinnur fyrirtækið að
byggingu stöðvarhúss við
Kröflu og vinnubúða þar svo
og að byggingu kæliturna.
Einnig er verið að malbika á
Neskaupstað og leggja olíumöl
á götur á Seyðisfirði. Á Sauð-
árkróki vinnur Miðfell h.f. að
endurnýjun lagna og malbikun
á götum. Nýhafnar eru fram-
kvæmdir á Garðskagavegi, milli
Keflavíkur og Garðs, en þar
er verið að leggja olíumöl á
veginn. Þá hefur fyrirtækið tek-
ið að sér það verk að leggja
olíumöl á götur í Höfðakaup-
stað og á Patreksfirði. Einnig
er unnið að ýmsum verkefn-
um í Reykjavík. í haust mun
FV 7 1976
13