Frjáls verslun - 01.07.1976, Side 20
takmarkaði sig þó ekki við
þessar staðreyndir, heldur dró
ályktanir, sem við getum ekki
aðhyllst. Hann segir: „Öllum á
óvart sendu Sovétríkin klyfja-
hesta sína á auðugustu mark-
aðstorg heimsins, þ. e. a. s., hin
þróuðu vestrænu iðnaðarríki“.
En samkvæmt skoðunum gi’ein-
arhöfundar er það vegna þess,
að við höfum brýtna þörf fyrir
gjaldeyri til kaupa á nútíma-
vélum og tækniþekkingu. En
hvað er óæskilegt eða óvenju-
legt við það. Öll þróaðri ríki
heims flytja inn vélar og tækni-
þekkingu. Alþjóðaviðskipti með
vélar, fjárfestingartæki og
verksmiðjuútbúnað er sá þáttur
viðskiptanna, sem þróast hefur
hvað hraðast. Þetta nær einnig
til viðskipta með tækniþekk-
ingu, einkaleyfi og „know-
how“. Hér er um að ræða eitt
fyrirbæri tækni- og vísindabylt-
ingar nútímans.
Sé þetta haft í huga, kom
höfundur greinarinnar ekki
með neitt nýtt. En ástæða er
til að bæta við eftirfarandi sjón-
armiðum: Klyfjahesta okkar
sendum við aldrei né neinstað-
ar „öllum á óvart“, heldur ger-
um við það samkvæmt áætlun,
þar sem tekin eru mið af þróun
heimsmarkaðarins. Við seljum
þær vörur, sem við höfum um-
fram og viðskiptavinur okkar
hefur þörf fyrir og kaupum
það, sem við þörfmumst. Við
kaupum ekki vegna þess, að við
séum ekki færir um að fram-
leiða sjálfir —- í dag getum við
framleitt allt, sem aðrar þjóðir
geta gert. En við erum á móti
„sjálfum sér nógur“-stefnunni,
þ. e. a. s. að framleiða endilega
sjálfir alla vörukeðjuna. Það
þýddi í raun, að við höfnuðum
hagnýti hinnar alþjóðlegu
verkaskiptingar.
Sp.: Hver er yftar skoftun á
þeirri kenningu, sem fram kem-
ur í borgaralegum áróðri, að
Sovétríkin selji auðvaldsheim-
inum einungis hráefni, jarðgas
og olíu og kaupi í staðinn ein-
ungis vélar og tækniþekkingu?
Svar; Af heildarinnflutningi
Sovétríkjanna eru vélar ekki
nema fimmti hluti. Sovétríkin
flytja út vélar og tæki til meira
en 80 landa, þar á meðal til
flestra landa Vestui’-Evrópu,
Japans og USA. Sovéskar flug-
vélar Yak-40, tækjabúnaður fyr-
ir kjarnorkuver, raforkutæki,
túrbinur, skip og fl. og fl. njóta
stöðugt aukinnar eftirspurnar
á hinum vestrænu mörkuðum
vegna viðurkenndra gæða og
háþróaðrar tækni.
Af innflutningi okkar frá
hinum þróuðu auðvaldsríkjum
eru um 30 af hundraði vélar og
tækniþekking, neyzluvörur og
hráefni fyrir framleiðslu þeirra
nema 30 af hundraði, og hi’áefni
fyrir þungaiðnaðinn um 40 af
hundraði.
Sp.: Það er þó staðreynd, að
hráefni, jarðgas og hráolía er
stærri hl'uti af heildarútflutn-
ingi Sovétríkjanna heldur en
annarra iðnaðarríkja. Er það
jákvætt eða neikvætt?
Svar; Það er hvorki jákvætt
né neikvætt, það er eðlilegt.
Skipting hráefnisauðæfa heims-
ins er mjög ójöfn eftir heims-
hlutum. í sumum löndum, t. d.
í 'Sovétríkjunum, er nóg af öllu,
en í öðrum hins vegar skortir
svo til allt. Sumum er kleift
að flytja út, aðrir komast ekki
af án innflutnings. Einnig hér
hefur þróast viss verkaskipting.
Það er óhrekjanleg staðreynd,
að alþjóðleg verslun með olíu
og gas er algjörlega nauðsynleg.
Eins og reynsla hinna alþjóð-
legu viðskipta sýnir, liggja
helstu vaxtarmöguleikar þeirra
í auknum vöruskiptum með
hráefni eða hálfunnar vörur til
frekari iðnaðarvinn-slu. Sú
reynsla, sem við höfum unnið í
viðskiptum milli austurs og
vesturs, gefur okkur ástæðu til
að horfa bjartsýnum augum á
efnahagssamstarf beggja hag-
kerfanna.
Fyrir þróun utanríkisverslun-
ar okkar þýðir þetta fyrst og
fremst aukna útflutningsfram-
leiðslu, betri gæði og meiri sam-
keppnishæfni til að skapa enn
betri skilyrði fyrir traust og
hagkvæm vöruskipti við önnur
ríki, þ. á m. hin vestrænu iðn-
aðarríki.
Flugrán:
Hvað
gerist
næst?
Þankabrot eftir síðustu
*
aðgerðir Israelsmanna
ísraelsku hermennirnir, scm
réftust inn í Úganda til að
bjarga gísl.um flugræningja og
hryftjuverkamanna fluttu aug-
ljósan boðskap: Flugræningjar
rnunu hvergi eiga griðastaft i
framtíðinni. Hversu álirifarík
þessi lexía hefur reynzt mun
koma í ljós síðar.
Stórbrotin hernaðaraðgerð til
að bjarga 102 gíslum úr hönd-
um flugræningjanna á Ent-
ebbe-flugvelli beindi athygli
manna um heim allan að þess-
ari spurningu: — Er valdbeit-
ing, sem gripið er til með skjót-
um hætti og róttækum, rétta
svarið við flugránum og annari
hryðjuverkastarfsemi?
Hernaðarfræðingar telja
ekki að ísraelsmenn hafi með
hinni einstöku eftirför sinni til
Úgana afvopnað alla líklega
hryðjuverkamenn framtíðarinn-
ar. En átak Israelsmanna var
þó Ijós og mikilvæg viðvörun:
— Alþjóðlegir hryðjuverka-
menn geta ekki lengur búizt við
að verða óhultir í neinu ríki
heims, og löndin, sem bjóða
hryðjuverkamönnum hæli, geta
ekki útilokað möguleikann á
að árás verði gerð á þau.
ísraelsmenn sýndu að þeir
hafa bolmagn til að ráðast gegn
hryðjuverkamönnum í mörg
þúsund kílómetra fjarlægð frá
Landinu helga og ekki aðeins
í skjólshúsum þeirra í ná-
grannalöndum Araba.
# Lærdomsríkt
fyrir aftra
C. L. Suizberger, helzti sér-
fræðingur stórblaðsins New
20
FV 7 1976