Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1976, Page 77

Frjáls verslun - 01.07.1976, Page 77
Hitaveita Akureyrar: IVIargt bendir til að hagkvæm- asta hitaveita landsins verði á Laugalandi Verulegur skriður kominn á hönnunarframkvæmdir - Fyrstu húsin tengd á næsta ári Mál málanna um þessar mundir á Akureyri er liitaveita, enda ekki óeðlilegt, þegar haft er í huga hve mikill munur er á hitunarkostnaði húsa þar sem hitaveitu nýtur og húsa sem notast við olíu- hitun eða rafmagnshitun. Hitaveita hefur lengi verið til 'ujnræðu á Akureyri, cn mikill fjörkippur komst í málið þegar borhola við Laugaland í Eyjafirði sýndi mjög góðan árangur skömmu eftir að jarðborinn Jötunn hóf borun þar á síðastliðnu hausti. Upp úr þessari fyrstu holu komu í byrjun 90 sekúndulítr- ar af 95 gráðu heitu vatni, sem er óvenjulega góður árangur. Síðan er búið að bora tvær hol- ur til viðbótar og þó árangur af því verki væri ekki í sam- ræmi við byrjunina þá eru menn nokkuð ánægðir með ár- angurinn í heild. Verulegur skriður er kominn á hönnun hitaveitu fyrir Akureyri og gert ráð fyrir að fyrstu húsin verði tengd við hana þegar á næsta ári. ALLRI HÖNNUN LOKIÐ 1978 Tveimur verkfræðiskrifstof- um, þ.e. Verkfræðistofu Norð- urlands hf. og Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen sf. hefur verið falið að hanna hitaveit- una, en yfirumsjón með verk- inu af hálfu VST hefur Harald- ur Sveinbjörnsson, verkfræð- ingur. Hanini sagði í viðtali við Frjálsa veizlun að það hefði verið í mars sl. að samningar um hönnun hitaveitu fyrir A'k- ureyri hefðu verið undirritaðir, en þá var nýlokið gerð frum- áætlunar um varmaveitu frá Laugalandi til Akureyrar. Leiddi hún í ljós að stofnkostn- aður við varmaveitu yrði um 2.650 Mkr. og kostnaður á Kwst fyrstu árin um 2 kr., en gera mætti ráð fyrir því að hag- kvæmnin yrði meiri þegar fram í sækti. Reiknað er með að Heita vatnið streymir úr borliolu á Lauga- landi. Athygli beinist nú að fleiri jarðhita- svæðum. hönnun á aðveitukerfi verði lokið fyrri hluta árs 1977 og þá á einnig að vera búið að hanna helming dreifikerfisins innan bæjarins. Hönnun á allri að vera lokið á árinu 1978, en kostnaður við hönnun er áætl- aður rúmar 50 milljónir. FLEIRI JARÐHITASVÆÐI Um mánaðamótin júní/júlí var borun við Laugaland hætt, þar sem ekki var unnt að fá að nota borinn Jötun lengur vegna verkefna við Kröflu. Þá komu upp um 100 sekúndulítrar af 95 gráða heitu vatni samtals, upp úr tveimur holum og er það rúmlega V3 af áætlaðri varma- þörf bæjarins árið 1980. Har- aldur sagði að enn lægi ekki fyrir umsögn Orkustofnunar um hve gera mætti ráð fyrir miklu vatnsmagni frá Lauga- landi, en nú þegar fengist svo mikið magn að örugglega borg- aði sig að leiða vatnið til Ak- ureyrar. — Ef ekki fæst nægilegt vatnsmagn fyrir allan bæinn á FV 7 1976 77

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.