Frjáls verslun - 01.07.1976, Síða 86
AUGLÝSING
Alls konar vara-
hlutir í allar gerðir bifreiða
G.T. búðin hefur á boðstólum
bílalökk fyrir flesta evrópska
og japanska bíla og er umboðs-
aðili fyrir v-þýska fyrirtækið
Herberts. Hefur búðin ávallt
til Iiti á Saab og Mercedes-Benz
og einnig fyrir alla fólksbíla,
sendiferða- og vörubíla.
G.T. búðin er einnig smásölu-
aðili fyrir Herberts bílalökkin
og litirnir eru sendir eftir
ákveðnum litanúmerum til
þeirra sem þurfa á lakkinu að
halda.
í haust er stefnt að því að
hafa einnig hin svokölluðu Ac-
ryl-lökk á boðstólum, en hingað
til hafa eingöngu verið fáanleg
olíulökk. Einnig munu verða
til aðrir hlutir sem þarf til bíla-
málunar t. d. slípimassi, pappír,
límbönd o. fl. Verð á bílalakk-
inu er mjög hagstætt.
G. T. búðin hefur upp á að
bjóða fjölmargar gerðir auka-
hluta fyrir allar tegundir bif-
reiða. Einnig selur G. T. búðin
3ja punkta rúlluöryggisbelti
fyrir fullorðna, 3ja punkta ör-
yggisbelti fyrir börn, ásamt ör-
yggisbarnastólum í allar gerðir
bifreiða. Belti þessi og stólar
eru frá breska fyrirtækinu Bri-
tax og er G. T. búðin söluaðili
fyrir Britax rúllubelti hér á
landi. Verð á öryggisbeltum fyr-
ir fullorðna er kr. 9.800 parið,
eða fyrir ökumann og farþega.
Þá má einnig nefna sérstaka
spegla, sem smeygt er á karma
á bílhurðum, þegar hjólhýsi er
tengt aftan við bifreið. Verð er
frá kr. 1.850. Eru speglar þessir
mjög hentugir, því auðveldlega
er hægt að taka þá af aftur og
geyma, þar til næst er farið í
ferð með hjólhýsið. Hinir venju-
legu áskrúfuðu armspeglar eru
einnig fyrirliggjandi í G T búð-
inni.
G. T. búðin er einnig með
umboð fyrir skálamottur, en
þær eru sérstaklega hannaðar
með það í huga, að vatn og alls
kyns óhreinindi safnist fyrir á
einum stað og henta mottur
þessar í flestallar bifreiðar.
Verð á mottu er kr. 900.
Þá selur verslunin ýmsa hluti
fyrir tengivagna, kúlur, ljósa-
tengi og lása og einnig tvær
tegundir af fólksbílakerrum,
sem notaðar eru til flutninga
m. a. og hefur það færst í vöxt,
að fólk flytji byggingavörur í
þessum kerrum í því skyni að
spara sendibílakostnað. Verð á
minni gerð af kerrum er kr.
59.500, en stærri gerðin kostar
kr. 69.500.
Einnig er vert að minnast á
mjög þægileg einstök sæti, sem
eru áföst á sérstökum sleða,
þannig að hægt er að renna
sætinu fram og aftur. Henta
þessi sæti í allar bifreiðar. Þau
hafa verið mikið keypt í jeppa
og rally bíla. Sætið kostar frá
22.500.
Ekki má ljúka svo við þessa
grein, að ekki sé minnst á svo-
kallaða neyðarrúðu, sem er sér-
stök að tvennu leyti. í fyrsta
lagi fer mjög lítið fyrir henni
í umbúðum og að öðru leyti er
hún bráðnauðsynleg hér á
landi, þar sem bílrúðubrot á
vegum úti eru mjög algeng.
Kostar neyðarrúðan aðeins kr.
1.900, standard gerð og kr. 2.200
í stærri gerðir bíla. Þær eru
mjög auðveldar í meðferð ef
óhapp skeður.
G. T. búðin er við Ármúla 22
Reykjavík.
86
FV 7 1976