Frjáls verslun - 01.09.1976, Side 22
heimshluta síðustu árin skap-
að þörf fyrir skjótar og tíðar
ferðir með almennar vörur.
Vegna þess að vörur hrannast
upp í höfnum Miðausturlanda
geta liðið fimm mánuðir frá
því að vara er send frá Evrópu
og þar til viðtakandi fær hana
í hendur. í bakaleiðinni taka
bilarnir svo varahluti úr skip-
um, sem sendir eru til við-
gerðar í Evrópu og einnig per
sónulega muni sjómanna, sem
eru á leið í land eða Evrópu-
búa, er dvalizt hafa syðra en
eru á heimleið.
§ Farið um 13 lönd
Það eru norskir bílstjórar,
sem sitja við stýrið í flutn
ingabílunum milli Oslo og Du-
bai. Þeir eru sérstaklega vald-
ir til þessa starfa og sem
stendur eru átta menn starf-
andi við þennan akstur, sem
getur verið mjög þreytandi
þrátt fyrir öll þægindi eins og
þau gerast í nýjustu tegund-
um af flutningabílum. Ferðin,
sem íiefst í Oslo, á að taka 20
daga samkvæmt áætlun, og
verða bílarnir að fara um 13
lönd, áður en þeir komast á
ákvörðunarstað. Leiðin liggur
um Svíþjóð, þar sem flutningur-
inn er tekinn um borð. Sama
gerist í Kaupmannahöfn og
Hamborg er lestunarstaður fyr-
ir Þýzkaland. Síðasti við-
komustaður, þar sem bætt er
á flutningi er Salzburg í Aust-
urríki. Þaðan er farið rakleið-
is til Doha um Júgóslaviu,
Búlgaríu, Tyrkland, Sýrland,
Jórdaníu, Saudi-Arabíu, Qatar
og Arabísku furstadæmin.
Það leikur enginn vafi á
því að með Dubai Express er
mætt vissri þörf. Fjöldi fyrir-
tækja hefur þegar notfært sér
þessa nýju möguleika í flutn-
ingum og fleiri ætla að feta i
fótspor þeirra. Franskt skipafé-
lag hefur þegar sent 17 tonn
með norsku vöruflutningabílun-
um, frá Hollandi hafa komið
átta tonn af vörum og um
Þýzkaland hafa verið afgreidd
all mörg tonn af flutningi til
Miðausturlanda.
Á við og dreif
Norðmenn ætla senn að hefja olíuleit við Jan
Mayen. í fyrstu fara fram segulmælingar úr lofti
til að kanna aðstæður á sjávarbotni í nágrenni eyj-
unnar. Áætlað er að kanna 10 þús. ferkílómetra
svæði og gera menn ráð fyrir að þessar athuganir,
sem kosta munu 1 milljón norskra króna, gefi
vísbendingu um, hvort þarna sé olíu að finna.
Verzlunarfyrirtæki, með veltu, er nemur 10—
11% af þjóðarframleiðslu Svía, mun senn verða
stofnað í Svíþjóð við samruna stórverzlana NK og
Áhlén. Þessi sameining hefur verið lengi í undir-
búningi en var fyrst tilkynnt opinberlega í júlí.
Þá skýrðu forráðamenn Áhlén frá því að íyrir-
tæki þeirra myndi kaupa 90% hlutabréfa í NK.
Sérfræðingar telja, að sala nýrra bíla í Vestur-
Evrópu 1980—81 verði ekki miklu meiri en á há-
marksárinu 1973. Þá seldust 10 milljónir bíla í V-
Evrópu. Þetta er miklu lægra en áætluð fram-
leiðslugeta, sem verður milli 12 og 13 milljónir
bíla snemma á níunda áratugnum. Japanskir bíla-
framleiðendur auka útflutning á bílum til Vestur-
Evrópu og Rússar og aðrar A-Evrópuþjóðir munu
áreiðanlega selja meira af sínum ódýru bílum
þangað. Þá eru amerískir bílar á samkeppnishæf-
ara verði en á síðasta áratug. Allt þetta kemur
illa við bílasmíði Vestur-Evrópulanda.
Nú vill svo til, að sumt af þessu óviðjafnanlega
skozka bragði í skozku viskíi kemur frá Finnlandi.
Þetta kemur fram í tímariti finnska útflutnings-
sambandsins. Ein af verksmiðjum Risio-fyrirtækis-
ins framleiðir 35 þús. tonn af malti árlega og fer
verulegur hluti þess til skozkra viskiframleiðenda.
Mikil þátttaka var fyrirsjáanleg í lista- og list-
iðnaðarsýningu, sem var haldin í Bella Center í
Kaupmannahöfn 26.—29. september. Aðilar í meir
en 30 löndum í Asíu, Suður-Ameríku og Afríku
höfðu tilkynnt þátttöku. Sýnd voru húsgögn, vefn-
aður, tágavinna, leðurvörur, skartgripir o.fl.
22
FV 9 1976