Frjáls verslun - 01.03.1977, Blaðsíða 15
fjárlagaáætlun, m.a. vegna
gengissigs.
LANDBÚNABARRÁÐU-
NEYTIÐ
Fjárveitingar skv. fjárlögum
voru samtals 2.868 m. kr., en
niðurstöðutala 3.347 m. kr.,
sem er 479 m. kr. eða 17%
hærra. Mest munar hér um út-
flutningsuppbætur, er fóru 287
m. kr. fram úr fjárlagaáætlun,
og jarðræktarframlög, er
reyndust 165 m. kr. umfram.
Launahækkanir eru metnar 57
m. kr. en greiðsla framlags til
Stofnlánadeildar landbúnaðar-
ins varð 30 m. kr. undir áætlun.
SJÁVARÚTVEGSRÁÐU-
NEYTIÐ
Fjárlagatala var 1.367 m. kr.
og útkorna 2.005 m. kr. Er mis-
munurinn 638 m. kr. eða 47%.
f samræmi við lög um fisk-
vernd o.fl. varð kostnaður
vegna fiskverndar og frið-
unaraðgerða 230 m. kr.,
greiðsla í verðjöfnunarsjóð fisk-
iðnaðarins, sem ekki var áætl-
uð á fjárlögum, 152 m. kr. og
vegna rekstrarhalla skuttogara
af stærri gerð 102 m. kr. Launa-
hækkanir eru metnar 63 m. kr.,
uppbætur á línufisk umfram
fjárlög reyndust 35 m. kr., og
ýmsir aðrir fjárlagaliðir fóru
samtals 56 m. kr. fra-m úr fjár-
lagaáætlun.
DÓMS- OG KIRKJUMÁLA-
RÁÐUNEYTIÐ
Fjárveitingar samkvæmt fjár-
lögum voru 3.131 m. kr., en út-
koman reyndist 4.560 m. kr.,
sem er 1.429 m. kr. eða 46%
hærra. Launahækkanir skv.
töxtum eru metnar 305 m. kr.,
útgjöld vegna landhelgisgæslu
umfram eðlilegar launahækk-
anir urðu 452 m. kr. umfram
fjárlagaáætlun, og gjöld vegna
annarrar löggæslu umfram
launahækkanir reyndust í heild
647 m. kr. hærri en í fjárlaga-
áætl-un, en eins og fram kom í
athiugasemdum með fjárlaga-
frumvarpi ársins 1977 hefur á
undanförnum árum verið all-
verulegt misræmi milii fjárveit-
inga og þess sem raunverulega
er eytt í þessum málefnaflokki.
Á öðrum liðum nema umfram-
greiðslur samtals 25 m. kr.
nettó.
FÉLAGSMÁLARÁÐU-
NEYTIÐ
Fjárlagatalan var 2.636 m.
en útkoman 2.783 m. kr. Er
mismunurinn 147 m. kr. eða
6%. Framlög til Byggingar-
sjóðs ríkisins (markaðir tekju-
stofnar) reyndust 98 m. kr. um-
fram fjárlög, til Erfðafjársjóðs
20 m. kr., til Byggingarsjóðs
verkamanna 14 m. kr., launa-
hækkanir 5 m. kr., og ýmsir
aðrir liðir fóru samtals 10 m.
kr. fram úr fjárlagaáætlun.
HEILBRIGÐIS- OG TRYGG-
IN G AMÁL ARÁÐUNE YTIÐ
Fjárveitingar til málefna-
flokka þessa ráðuneytis voru
19.544 m. kr., en útkoman
reyndist 22.199 m. kr., sem er
2.655 m. kr. eða 14% hærra.
Meginhluti þessara umfram-
gjalda, eða 2.540 m. kr., á ræt-
ur að rekja til hækkunar á bót-
um almarunatrygginga og á dag-
ejöldum sjúkrahúsa umfram
fjárlagaforsendur. Að öðru
leyti má rekja umframútgjöld
til launahækkana 63 m. kr., til
kostnaðar vegna héraðslækna
og heilsugæslustöðva 50 m. kr.
en aðrir liðir jafnast nokkurn
veginn út, eru 2 m. kr. umfram
fjárlagaáætlun.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Fjárlagataia var 2.769 m. kr.,
en útkoman 2.837 m. kr., sem
er 68 m. kr. eða 2% hærra. Við
þennan samanburð ber þess að
gæta, að meðal fjárveitinga á
fjárlögum voru 275 m. kr.
vegna óheimilaðra staða og
verðlagshækkana, sem eiga við
ríkisreksturinn í heild. Að
þessari fjárhæð frátalinni verða
umframgjöld 343 m. kr. eða
14%. Helstu umframliðir eru
launahækkanir 182 m. kr..,
kostnaður við skýrsluvéla-
vinns'lu 'launagreiðslna, síma-
kostnaður og burðargjöld
Stjórnarráðsins 80 m. kr., upp-
bætur á lífeyri umfram meðal-
launahækkun 53 m. k.r. og ýms-
ir aðrir liðir samtals 205 m. kr.,
en á hinn bóginn reyndust
framlög til ríkisábyrgðarsjóðs
177 m. kr. undir fjárhagsáætl-
un.
S AMGÖN GURÁÐUNE YTIÐ
Fjárveitingar til málefna á
sviði samgönguráðuneytisin.s
voru samtals 6.367 m. kr., en
útkoman varð 7.718 m. kr. Eru
því umiframgjöld 1.351 m. kr.
eða 21%. Hér rouniar langmest
um útgjöld vegagerðar, e,r fóru
882 m.kr. fram úr fjárlagaætl-
un, en sérstakar ráðstafanir til
aukinnar fjáröflunar voru
gerðar til að standa undir þess-
um kostnaðarauka, m.a. með
lögum um efnahagsráðstaf-
anir. Launahækfcanir til ann-
arra eru starfa við vegagerð
eru áætlaðar 48 m. kr.,
umiframgjöld vegna fram-
kvæmda við landshafndrnar í
Njarðvík 50 m. kr. og í Þor-
lákshöfn 47 m. kr., vegna end-
urgreiðslu landshafnalána 80
m. kr., vegna Skipaútgerðar
ríkisins 52 m. kr., og á öðrum
liðum reyndust umframgreiðsl-
ur samtals 192 m. kr., einkum
á sviði hafnarmála.
IÐN AÐ ARRÁÐUNE YTIÐ
Fjárlagatalan var 1.761 m.
kr., en útkoman 1.550 m. kr.,
sem er 211 m. kr. eða 12%
lægri. Áætlaðar launa'hækkan-
ir nema 49 m. kr., en á hinn
bóginn reyndist innheimta
verðjöfnunargjalds raforku 152
m. kr. 'lægri en fjárlagaáætlun.
Nokkrir aðrir liðir reyndust
lægri en í fjárlögum svo sem
framlag til þangverksmiðju 30
m. kr., hafnargerðar við Grund-
artanga 20 m. kr., jarðvarma-
veitna ríkisins 14 m. kr. og
Ríkisprentsmiðjunnar Guten-
berg 12 m. kr. Aðrir liðir reynd-
ust samtals 32 m. k.r. undir
fjárlagaáætlun.
VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ
Fjárveitingar voru samtals
5.041 m. kr., en útkoma reynd-
ist 5.265 m. kr., semer 224 m.
kr. eða 4% hærri tala. Hér er
fyrst og fremst um að ræða
niðurgreiðslur, er fóru 212 m.
kr. fram úr fjárlagatölu. Áætl-
aðar launahækkanir nema 4.
m. kr. og aðrar umframgreiðsl-
ur 8 m. kr.
FV 3 1977
15