Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1977, Blaðsíða 44

Frjáls verslun - 01.03.1977, Blaðsíða 44
ferðir o.s.frv.). Að þessu loknu hefurðu án efa skrifað niður meira en þér væri mögulegt að fram- kvæma. Nú er næst að bregða af sér ham hins skapandi ímyndunarafls og snúa sér að viðfangsefninu með hagnýtu raunsæi. Byrjaðu á því að flokka þau atriði frá sem minnstan for- gang hafa. Bezta aðferðin við það er að byrja efst á listanum og spyrja síðan sjálfan sig; mundi ég eyða 5 mínútum af tíma mínum í þetta verkefni á næstu 7 dögum? Ef svarið er nei, strikaðu þá yfir verkefnið. Engin sérstök ástæða er nauðsynleg til útstrikunar, og engim ástæða til að velta vöngum yfir mikilvægi málsins, því aðalatriðið er að þú vilt ekki fást við það þessa stundina, — en ef til vill kæmi það til greina í næstu viku. Þegar þannig hefur verið beitt útilokun- araðferðinni gegn öllum A- forgangsverkefnum lang- timamarkmiðanna er þeim sem eftir standa raðað upp á nýjan lista. Sá ætti í flest- um tilvikum að hafa 10—12 verkefni sem þér þætti á- stæða til að vinna að í næstu viku. >á er að merkja þessi verk- efni eftir vægi og forgangs- röð Al, A2, A3 eða A4. Þar með er kominn verk- efnalisti með forgangsröðun sem markvisst stefnir að þvi að þú nálgist þín langtíma- markmið. Á hverjum degi ættirðu að velja eitthvert þessara A-markmiða til þess að starfa að. Á svipaðan hátt má setja upp skammtímamarkmið og verkefnalista fyrir þau. Sá verkefnalisti, mun auk A- verkefna, innihalda B- og C- verkefni. Listann þarf að endurskoða í byrjun hverrar viku, bæta við nýjum verk- efnum, fella niður þau sem er lokið við og þau sem .reyndust óþörf. Nú hefurðu greinargóða for- gangsröðun verkefna fyrir hverja viku og hvem dag. SKIPULAGNING FRAM KVÆMDA Lykillinn að virku fram- kvæmdaskipulagi er að fast- setja tima í hverri viku og á hverjum degi fyrir verkefni með A-forgang. Hvort þú ætlar þeim 15 mín- útur eða nokkrar klukkustund- ir á dag er þitt einkamál. Virk- asta aðferðin er að ætla A- verkefnum tíma á sama hluta dags í hvert skipti — þann tíma dagsins, sem þú hefur bezta vinnuaðstöðu. Fastsettu tíma A-verkefn- anna 1 viku fram í tímann með tilliti til A-verkefna þeirrar viku, að sjálfsögðu. Hentug- asti tíminn til þess að skipu- leggja framkvæmdir vikunnar er að öllum líkindum föstu- dagseftirmiðdagur. Það losar ákveðna spennu að hafa lokið slíkri skipulagningu fyrir helgi, og að eiga framundan skipu- lagða viku sem byrjar með skipulögðum mánudegi. Það má vel vera að þetta sé þjóð- saga, enda hefurðu þetta eins og þér hentar bezt. Framkvæmdaskipulag dags- ins þarf að endurskoða og lag- færa, annað hvort í upphafi dags eða síðari hluta dagsins á undan. Eyddu um leið mínútu, eða svo, í að líta yfir langtíma- markmiðin og ákveða hvaða verkefnum, sem miða að þeim, þú gætir sinnt næsta vinnudag. Dagskipun, eða verkefnalisti dagsins er forsenda þess að þér takist að nýta tímann betur. Á þeim lista eiga eingöngu að vera verkefni í forgangsröð svo sem mikilvægir fundir, fjár- mál og ákvarðanir, en ekki venjubundin störf sem tilheyra daglegum rythma. Merktu sérstaklega við verk- efni á listanum eftir því hvort þeim er lokið eða ólokið (fær- ast inn á næsta lista) og síðast en ekki sízt geymdu þessa lista, þeir gætu komið í góðar þarfir sem minnisatriði síðar. Sumir auðkenna A-verkefni á þann hátt að skrifa þau á listann með rauðu, B-verkefni með bláu o.s.frv., aðrir hafa sér lista fyrir A, B, og C-verkefni. Einstaka erilsamir dagar gera það að verkum að þér tekst ekki að finna tíma fyrir C-verkefni (jafnvel ekki fyrir B). Með vissu millibili skaltu fella niður af listanum þau C-verkefni, sem þú gætir látið aðra annast fyrir þig, þau sem reynast óþörf eða hægt er að fresta þar til í næstu viku eða næsta mánuði. i Reyndu aldrei að skipuleggja vinnudag í mínútum frá því þú mætir og þar til þú ferð af vinnustað. Það er tilgangslaust að ætla að vinna eftir slíku skipulagi, afleiðingin verður streita, kvíði og leiðindi. Að lokum, gerðu ráð fyrir ákveðn- um tíma á degi hverjum sem þú getur unnið í friði ótruflað- ur, nema eitthvað óvænt og á- ríðandi komi upp. Lykiloróið er YALE Frúin nefnir þær túlípana- læsingar, en karlmennirnir líkja þeim við koníaksglös. Samt sem áður gleymir hvorugt þeirra að biðja um YALE. YALE læsingar með túlí- panalaginu fara vel í hendi. Aðeins rétti lykillinn opnar YALE læsingu — lykillinn yðar. VERIÐ VISS UM AÐ MERKIÐ SÉ YALE ÖRUGGAR OG FALLEGAR LÆSINGAR 44 FV 3 1977
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.