Frjáls verslun - 01.03.1977, Blaðsíða 52
fyrirtækin að spjara sig og á-
ætlanir gerðar þar um. Af-
gangsstærðin er svo það, sem
lauimþegarnir eiga að skipta á
milli sín. Þessi uppsetning
finnst mér vera röng, og of
mikið hafi verið gengið út frá
henni að undanförnu.
Ég held það þurfi að líta á
þættina alla saman með dálítilli
sanngirni, þannig að engin af-
gangsstærð verði nema þá helzt
framkvæmdir og umsvif þess
opinbera. Ef hafa á beina röð á
þessu mati er hún röng eins og
er. Fyrst þarf að skammta svo
að launþegarnir geti lifað sæmi-
legu lífi og einnig fyrirtækin
en síðast það opinbera.
F.V.: — Hvemig teljið þið
forystumenn verkalýðshreyf-
ingarinnar, að draga megi úr
samneyzlunni? Snertir hún
ekki einmitt mjög náið hag
umbjóðenda ykkar?
Björn: — Við teljum, að viss-
um framkvæmdum megi vel
fresta og hægja á öðrum. Oft
er Borgarfjarðarbrúin nefnd í
þessu sambandi. Ég held líka
að hún sé dæmigerð. Frestur á
byggingu hennar leysir ekki
vandann en brúargerðin er ein
af þeim framkvæmdum, sem
vel mætti fresta. Svona fram-
kvæmd eins og brúargerðin er
líka dæmigerð fyrir verkefni
sem á að skjóta inn í, þegar
samdráttar gætir í atvinnu, en
ekki, þegar nóg atvinna er og
brýn verkefni að vinna að.
Þegar rætt er um samdrátt
hjá ríkinu, benda talsmenn
hins opinbera á, að fjárlögin
séu meira og minna bundin af
öðrum lögum. Það eru lög um
menntamál, heilbrigðismál o.s.
frv. Þetta er út af fyrir sig rétt,
en þessi lög getur þurft að end-
urskoða og kafa ofurlítið niður
í rekstur málaflokka eins og
þessara.
í heilbrigðismálunum held ég
t.d. að allur kostnaður og skipu-
lag sé fyrst og fremst ákveðið
af læknum. Ég vil ekki segja, að
þeir séu manna óhæfastir til
þess en það er ekki víst að þeir
séu hæfastir til þess. Það þarf
ekki endilega að fara saman að
kunma sitt fagve.rk og ákveða
hvaða kringumstæður á að
skapa því og hvaða fé að veita
til þess. Alveg sama gildir um
skólamálin. Kennari getur ver-
ið ágætasti fræðimaður en ekki
upplagðastur til að skipuleggja
starfið fjárhagslega.
Það er næstum eins og verið
sé að skipuleggja mannsmorð,
ef þessi mál eru gagnrýnd, en
þetta eru því miður heilagar
kýr. Þá er spurt, hvort börnin
eigi að alast upp í ómennt og
níðzt skuli á sjúklingunum.
Auðvitað er ekki átt við það
„Verður verkfall?“ „Hvenær
verður verkfall?“, spyr fólk.
Þetta er rangt hugarfar.“
en brýnt er að kafa rækilega
í þessa tvo málaflokka.
F.V.: — Hverjar verða aðal-
kröfurnar í þessum samningum
og hvemig getur þjóðarbúið
tekið almennar launahækkanir
á sig við núvera.ndi aðstæður?
Björn: — Það er mjög víð-
tæk samstaða um kröfurmiar
núna, líklega meiri en oftast áð-
ur. Aðalkrafan er um að sér-
stakt tillit verði tekið til þeirra,
sem lægst hafa kaupið eins og
hefur reyndar komið fram af
fréttum. Það hefur hins vegar
okki komið mjög greinilega
fram opinberlega, að þeim, sem
hafa nokkru hærra kaup, finnst
þetta illt við að una og telja að
launamismunurinn sé svo lítill
í dag, að ekki megi þrengja
hann enn meir. Þessir menn
hafa nokkuð til síns máls, því
að launamismunurinn er ef til
vill minni en ætla mætti af
launatöxtunum. Þeir, sem eru
yfir láglaununum, borga nefni-
lega tekjuskatt en flestir hinna
engan. Bezta leið til lausnar á
þessu vandamáli yrði sambland
af talsverðri kauphækkun til
hinna lægstlaunuðu og opinber-
um aðgerðum, er miðuðu að
verulegri hækkun skattleysis-
markanna, sem kæmi þeim
með betri tekjurnar til góða og
reyndist þeim drýgri en bein
kauphækkun án skattabreyt-
inga. Með þessu held ég að
„Mér þykir ólíklegt að gengið
verði að öllum kröfum fyrir
mánaðamót apríl-maí.“
næðist mestur jöfnuður og
sanngjarnastur milli þessara
hópa.
Ég vil bæta við þetta, að 100
þús. krónurnar, sem nefndar
voru í vetur sem lægstu laun
eða framreikningur þeirra til
verðlags samningstímans, er
ekki heilög tala. Mönnum er
það efst í huga, að kaupmáttur
launanna eftir hækkun verði
sem næst því, er fá mátti fyrir
100 þús. krónur, þegar sú tala
var sett fram.
Önnur aðalkrafa ASÍ er að
vísitölubætur verði í krónutölu
eins á allt kaup og yrði það al-
gjört nýmæli. Það hefur líka
verið talað um að óskert vísi-
tala verði látin mæla verð-
hækkanir til leiðréttingar á
kaupinu. Leiðréttingin þarf og
að gerast hraðar en hingað til.
Aðrar leiðir kæmu ennfremur
til greina, til dæmis, að upp-
gjör færi fram á vissu mánaða-
52
FV 3 1977