Frjáls verslun - 01.03.1977, Blaðsíða 67
Bæjarstjórinn ■ Keflavík
„Lokið við að tengja Keflavík
og Njarðvíkur við hitaveitu
um áramótin”
Spjallaft við Jótiann Einvarðsson, bæjarstjóra í Keflavík
— Lokið er við 1. áfanga hitaveituframkvæmdanna hér í Kcfla-
vík. Bænum er skipt í sex áfanga og verður óskað eftir tilboðum
í annan áfanga í lok marz. Gengið hefur verið frá samningum um
aðallögnina frá Svartsengi til Njarðvíkur og sama er að segja um
aðalstofnlagnirnar milli kaupstaðanna, þannig að við höldum
okkar áætlunum og reiknum með að lokið verði við að tengja
Keflavík og Njarðvík um áramótin.
Það er Jóhann Einvarðsson
bæjarstjóri í Keflavík sem hér
skýrir frá iþví helsta í bæjar-
málum Keflvíkinga en blaða-
maður leit inn til hans á dög-
unum og leitaði frétta.
VARANLEGT SLITLAG A
25% GATNA
— Við þurfum víða að end-
uenýja mikið af 'holræsa- og
vatnslögnum í eldri hverfunum
og skiptum auk þess um jarð-
veg þar sem þess þarf vegna
væntanlegs varanlegs slitlags.
Sem betur fer er það þó í mikl-
um minni 'hluta af bænum, en
við eigum von á háværum
kröfum um lagningu slitlags
þegar hitaveituframkvæmdum
er lokið, enda reiknum við með
að elta ana þar sem langning
slitlags hefur setið á hakanum
eftir að ákvörðun um íhitaveitu-
framkvæmdir voru teknar.
Við höfðum lokið við að
leggja slitlag á 40% af gatna-
kerfinu þegar hitaveitan kom
til sögunnar og síðan hefur
bærinn stækkað mikið svo
hlutfallið er komið niður í
25%. Gatnagerðin er 30 km og
í sumar er áætlað að leggia
á 4 km. Olíumöl e.r löeð á göt-
ur í íbúðahverfum en malbik
á aðalumferðaræðar.
ÚTHLUTUÐU LÓÐUM
UNDIR 80—90 ÍBÚÐIR
— Við úthlutuðum nýju
byggðahverfi í febrúar og höf-
um stefnt að þvi að það verði
byggingarhæft í sumar. Fólks-
fjölgun á siðasta ári var 1,92%
en landsmeðaltal er 0,95% svo
við höldum vel í það og höfum
gert það á undanförnum árum.
Um önnur verkefni e.r það að
segja að yfirbyggingin við
sjúkrahúsið er fokheld og verð-
ur innivinnan boðin út á næst-
unni. íþróttahúsið er komið af
stað og búið að steypa sökkla.
Það mun kosta um 60 milljónir
að gera það fokhelt og vonumst
við til að það takist á þessu ári,
en húsið er byggt úr einingum
svo fljótlegt verður að reisa
það þegar þær eru komnar.
BANDARÍSKIR RÍKIS-
BORGARAR í UM 15% AF
ÍBÚÐARHÚSNÆÐI BÆJ-
ARINS
Um samskiptin við varnar-
liðið sagði Jóhann að lokum:
— Hér hafa búið bandarískir
ríkisborgarar í um 15% af í-
búðarhúsnæði bæjarins og þeir
gjaldalausir við okkur. Við
höfum sett fram kröfu upp á
60 milijónir sem byggð e,r á
meðaltalsútsvari á fjórum ár-
um, og er hún í athugun hjá
ríkisstjórninni. Ég verð að ætla
að þessi krafa nái fram að
ganga þar sem bandarikjamenn
vilja ekki vera neinir bón-
bjargarmenn og íslensk yfir-
völd sem í þessu tilfelli eru
milliliður verða að taka það til
g.reina enda 'hafa þau sett fram
svipaða kröfu á varnarliðið
fvrir ýmsa þjónustu sem þeir
fá utan vallar.
Hitaveituframkvæmdir í Keflavík.
FV 3 1977
67