Frjáls verslun - 01.03.1977, Blaðsíða 89
--------------------AUGLÍSING --------
HÚSGAGNAVERZLIJtV KRISTJÁtVS SIGGEIRSSONAR HF.:
KS skrifstofuhúsgögn
Kristján Siggeirsson h£. hefur
í áratugi framleitt skrifstofu-
húsgögn. KS skrifborðin eru
sérhönnuð til þess að þau geti
komið að góðum notum við
hagkvæma nýtingu vinnurým-
is, og hæfi sem flestum gerðum
innréttinga. Auk þess sem
framlcidd eru skrifborð á skrif-
stofuna framieiðir fyrirtækið
cinnig m.a. skrifborðsstóla,
fundarstóla, geymsluskápa og
fundarborð.
Hönnun KS skrifborða, vél-
ritunarborða og hliðarborða er
gerð með tilliti til aukinnar
hagkvsemni og sérkrafna. Þau
eru þannig úr garði gerð, að
auðvelt er að breyta þeim.
Skrifborð með baki og hlið-
um er framleitt í þremur stærð-
um: 140x70 cm, 170x80 cm og
180x90 cm. Hæð er 75 cm.
Önnur gerð af skrifborðum,
sem eru minni er framleidd í
stærðinni 110x55 cm, hæð er
72 cm.
Skrifborð, hliðarborð og vél-
ritunarborð eru fáanleg í ýms-
um viðartegundum og auk þess
er hægt að fá ýmsa fylgihluti.
Nú er kominn á markaðinn
nýr fundarstóll, sem hannaður
er hjá fyrirtækinu. Hann er
með háu baki og fáanlegur með
leður- eða tauáklæði. Grindin
er úr eik og fæst bæsuð í ýms-
um litum. Mikil áhersla er lögð
á rétta byggingu stólsins til
þess að 'hann verði sem þægi-
legastur.
Ein þekktasta og um leið vin-
sælasta framleiðsla Húsgagna-
verslunar Kristjáns Siggeirs-
sonar hf. er KS fundarborð,
sem til aukinnar hagræðingar
er samsett úr einingum.
HGSGAGIVAVERZLUINI REYKJAVÍKGR:
Allt í húsið
í Húsgagnaverslun Reykja-
víkur er mikið úrval af inn-
fluttum og innlendum húsgögn-
um m.a. sófasett, sófaborð,
hillusamstæður, skrifstofuhús-
gögn, borðstofuhúsgögn, svefn-
herbergishúsgögn og margt
fleira. Húsgagnaverslun
Reykjavíkur hefur verslun á
tveimur hæðum í Brautarholti
2 og jafnan er leitast við að
fylgjast með nýjungum í hús-
gagnagerð bæði innanlands og
utan.
Sófasett eru til frá 178 þús-
und krónum, en einnig eru til
dýrari gerðir með leður- eða
plussáklæði. Um 13—14 gerðir
af sófasettum er að velja. Stak-
ir norskir og íslenskir leður-
stólar, sem notið hafa mikilla
vinsælda eru til frá 52 þúsund
krónum.
Lögð er áhersla á barna- og
unglingahúsgögn m.a. svefn-
bekki, svefnsófa, hillusett í
barniaherbergi, kojur og komm-
óður. Þessi húsgögn fást bæs-
uð í ýmsum litum.
Hillusamstæðurnar eru fáan-
legar í mörgum gerðum, aðal-
lega innlend framleiðsla. Þær
eru framleiddar úr hnotu,
palisander, maghony og eik.
Loks má geta þess, að Hús-
gagnaverslun Reykjavíkur býð-
ur hina ódýru sænsku Star
fataskápa og auk þess fata-
skápa frá Axeli Eyjólfssyni,
sem hafa notið mikilla vin-
sælda, en þeir eru fáanlegir í
tekki, eik og gullálmi.
FV 3 1977
89