Frjáls verslun - 01.03.1977, Side 46
Kona í ábyrgðarstöðu
Þeir líta á mig sem jafningja
í viðskiptalífinu
- segir Ingibjörg Thors, aðstoðarforstjóri Coldwater Seafood Corporation
Hún er glæsileg, miðaldra kona, grönm með ljóst hár og hógværa framkomu. Fáir myndu geta rétt
ef þeir væru beðnir að geta sér til um helsta áhugamál hennar, því persónuleiki hennar gefur al-
ranga vísbendingu. Fiskur er hennar áhugamál. Konan heitir Ingibjörg Thors og er búsett í Boston
í Bandaríkjunum þar sem hún er á kafi í fiskiviðskiptum, eða „fiskbisness“ eins og hún kallar
það sjálf.
Við hittum Ingibjörgu fyrir
skömmu þegar húini kom hing-
að heim í stutt frí og viðskipta-
ferð og notuðum iþá tækifærið
að kynnast starfi hennar nán-
ar og viðhorfum.
Ingibjörg hefur verið búsett
í 25 ár í Bandaríkjunum og að
eigin sögn á hún ekki aftur-
kvæmt þaðan.
— Þegar ég hafði búið þrjú
ár fyrir vestan fannst mér auð-
velt að flytja heim, en núna er
ég búin að vera þar of lengi til
þess að geta flutt þaðan alfar-
in. Og reyndar bý ég þar með
góðri samvisku, því mér finnst
ég gera íslandi gagn með dvöl
minni þar á meðan ég geri mitt
besta til að stuðla að aukinni
sölu á íslenskum fiski í USA.
Til frekari skýringar má
skjóta því hér að að Ingibjörg
er starfsmaður Coldwater Sea-
food Corporation nánar tiltek-
ið svokallaður „vieepresident“
fyrirtækisins og starfar hún nú
í ný stofnsettu útibúi í Boston.
— Persónulega vil ég ekki
kalla mig neinum titli. Ég vinn
bara og get ekki hugsað mér að
vera án þess, segir Ingibjörg.
Coldwater Seafood Corpora-
tiorn rekur verksmiðju í Cam-
bridge í Maryland og skrifstofu
í New Yonk. Fyrirtækið annast
dreifingu á íslenskum fiski og
framleiðslu á fiskstautum og
skömmtum.
FISKUR AÐALÁHUGAMÁL
— Upphafið að því að ég fór
að vinna hjá fyrirtækinu var
það að mér fannst ég vera búin
að ljúka mínu ætlunarverki í
barnauppeldi og krosssaumi.
Þáverandi maður minn, Þor-
steinn Gíslason, forstjóri fyrir-
tækisins bað mig að grípa í
smáverk á skrifstofunni. Þetta
hlóð utan á sig og endaði með
því, að ég var komin í fullt
starf, sem ég fann mig mjög
vel í, enda er fiskur mitt áhuga-
mál.
Ingibjörg heldur síðan áfram
og segir að áhugi hennar á
fiski hafi verið vaknaður löngu
áður en 'hún byrjaði í þessu
starfi.
—• Ólafur Thors, faðir minn,
var mikill áhugamaður um út-
gerð og fiskveiðar og áhugi
hans smitaði mig og þessi áhugi
minn hefur síður en svo dvínað
enda hefur allt mitt líf snúist
um fisk. Ég gæti ekki ihugsað
mél að vinna með aðra vöru og
þar að auki þykir mér fiskur,
nánar tiltekið ýsa, æ betri mat-
ur eftir því sem aldurinn fær-
ist yfir mig.
Þar til sl. vor starfaði Ingi-
björg í New York á söluskrif-
stofu fyrirtækisins þar, en í
maí sl. var tekin í notkun ný
frystigeymsla í Boston og þá
flutti hún sig um set og starfar
nú þar. Þorsteinn Þorsteinsson,
sonur Ingibjargar, veitir þessu
útibúi forstöðu. Er ætlunku að
auka enn umsvifin í Boston og
koma þar upp verksmiðju, auk
frystigeymslunnar. Að sögn
Ingibjargar er hluti af starfi
hennar í Boston fiskmiðlun. Ef
hráefni vantar til þess að geta
annað fiskstauta- og fisk-
stykkjaframleiðslu Coldwater,
þá kaupir hún iinn fisk frá öðr-
um viðurkenndum fyrirtækjum
og þegar umframmagn er af
einhverri fisktegund þá selur
hún það.
EKKI HLÍFT VIÐ SKÖMMUM
í þessu sambandi var Ingi-
björg að því spurð hvernig
hennar reynsla væri af því að
vera kona í starfi sem þessu.
Hún sagði að hún hefði aldrei
orðið vör við amnað, en að litið
væri á hana sem hvern annan
jafningja í viðskiptalífinu. Hún
yrði aldrei vör neinnar tor-
tryggni, en á hinn bóginin væri
henni ekki hlíft við skömmum,
ef viðskiptavinurinn teldi sig
hafa ástæðu til. Það teldi hún
helsta merki þess að litið væri
á hana sem jafningja.
— Margir halda að Banda-
ríkjamenn séu allra þjóða í-
haldssamastir, sagði íngibjörg,
— en mín reynsla er sú, að þeir
séu frjálslyndir. Þegar ég byrj-
aði að vinna úti, þurfti ég þess
alls ekki af fjárhagslegum á-
stæðum. Hér heima hefðu
margir hugsað sitt um þetta til-
tæki á þeim tíma. En ég varð
aldrei vör við neitt slíkt fyrir
vestan. Þar finnst mér vera
skilningur á því, að allir hugsi
ekki eins. Og þó að vel sett hús-
móðir fari að selja fisk, þá er
það hennar mál.
Á íslandi hefur það færst
mjög í vöxt á undanförnum ár-
um að konur fari út í atvinnu-
lífið. Ingibjörg var að því
46
FV 3 1977