Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1977, Page 55

Frjáls verslun - 01.03.1977, Page 55
óviðunandi. Vikulegur vinnu- tími hjá sumu af þessu fólki er kannski 50—70 vinnustundir. Það getur ekki lengur talizt einu gilda með 'hvaða álagi menn ná nauðsynlegum tekj- um. F.V.: — Eru ekki yfirborg- anir mjög algengar hjá þeim hópum, sem mynda samtökin, sem þú ert í forsvari fyrir, það er að segja verzlunarmönnum? Fær ekki skrifstofufólk oft mun hærri laun fyrir venjulega dagvinnu sína en taxtar verzl- unarmannafélaga gefa til kynna? Björn: — Við höfum gert vissar tilraunir til að kanna þessi mál en bæði vkmuveit- endurnir og launþegarnir eru trggir til að veita réttar upp- lýsingar um þetta. Þegar á heildina er litið, tel ég að meira sé úr þessu gert en tilefni er til. Það er þó senni- lega nokkuð um að fólk fái hærra kaup en kauptaxtinn seg- ir til um. Oft er þó innbyggð í slí'kar yfirborganir einhver á- kveðin, reglubundin yfirvinna cða tilfallandi. Þó að samning- urinn geri ekki beinlínis ráð fyrir að svona sé farið að, er áreiðanlega eitthvað um það að gerðar séu meiri kröfur til starfsfólksins en almennt tíðk- ast. Því er borgað hærra kaup. Þessa verður aðallega vart á skrifstofunum en dálítið í verzlununum líka. Þá er aðah lega um svokallaðar sérverzl- arair að ræða og hærri stöður. Nú hefur smásöluveralunin, t.d. í matvörunni færzt í aukn- um mæli i stærri einingar. Þeim mun stærri sem þær verða, er haldið fastar við hið umsamda kaup. Það veldur auð- sjáanlega meiri erfiðleikum fyrir vinnuveitandann að búa til eigið launakerfi fyrir fyrir- tækið eftir því sem það verður stærra og því hverfur hann til þess arna. Þetta er áberandi hér í Reykjavík og hjá sam- vinnufélögunum á landsbyggð- irjni, sem halda sig nánast alveg við umsamda launataxt- ann. Það gildir alveg sérstak- lega um verzlunarfólk, að hjá því er yfirvinna mjög lítil. Hún Verkfall verzlunar- fólks og kaupmað- urinn stendur í búðinni til að af- greiða viðskipta- vinina. Afgreiðslu- fólk í verzlunum er mcðal hinna lægst laun- uðu á landi hér. er ekki tengd aðalstarfinu að minnsta kosti. F.V.: — Síðasta ASÍ-þing, sem haldið var í vetur þótti nokkuð stormasamt og sögu- legt. Hefur aðdragandinn, að átökunum, sem þar urðu staðið lengi yfir eða er hann ný til kominn? Björn: — Ég held að aðdrag- andinn sé orðinn býsna langur. Fyrst og fremst telja viss öfl innan Alþýðubandalagsins, að barátta verkalýðshreyfingar- innar hafi ekki verið nægilega flokkspólitísk. Þessi öfl vilja blanda sínum flokkspólitísku hugmyndum við kjarabarátt- una, virkja verkalýðshreyfing- una í þágu þeirrar baráttu. Þessum aðilum hafa þótt Al- þýðubandalagsmenninnir í for- ystu ASÍ of faglegir, ef svo mætti að orði komast. Þó að ráðizt hafi verið sér- staklega á okkur Sjálfstæðis- mennina á þinginu er það líkt og þegar verið var að skamma Albani fyrir Kínverja. Þessum árásum var ekkert síður beint gegn eigin flokksmönnum þeirra, er þarna höfðu sig mest í frammi. Sami hópur hefur á undanförnum árum reynt að gera forystu Alþýðu- sambandsins sem tortryggileg- asta og hefur náð talsverðum árangri. Menn eru aldrei full- komlega ánægðir með samn- inga á vinnumarkaðnum og á þeirri óánægju vill þessi vissi hópur ala. Þannig er hann að fiska í gruggugu vatni en ég hefi ekki miklar áhyggjur aí' þessu, ekki enn sem komið er að minnsta kosti. Ég held, að mikill meirihluti þeirra, sem áhrif hafa innan ASÍ og fulltrúar á ASÍ-þingi séu beinlínis andvígir þeim vinnubrögðum, sem þarna voru boðuð. Kosning okkar tveggja Sjálfstæðismannanna í mið- stjórn ASÍ á þinginu saininar þetta. Af atkvæðatölunum er hægt að gera sér grein fyrir, að Alþýðubandalagsmenn kusu okkur og gagnkvæmt. F.V.: — Hver eru viðhorf þín til samstarfsins við vinstri- menn í samtökum verkalýðs- ins? Björn: — Það hefur ekki komið til neirana harðra á- rekstra milli okkar og þeirra, sem eru lengst til vinstri um nein stórþýðingarmikil mál. Ekki ennþá segi ég. Vissulega kemur upp ágrein- ingur um einstök atriði eins og á kjaramálaráðstefnunni síð- ustu, þegar ályktað var um tak- markanir á innflutningi sem nauðsynlega ráðstöfun í efna- hagsmálunum. Út af fyrir sig er þetta stórt mál, sem ég mælti mjög eindregið gegn á- samt Guðmundi H. Garðars- FV 3 1977 55

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.