Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1977, Page 60

Frjáls verslun - 01.03.1977, Page 60
IMjarðvíkur: „Brýnt að gera áætlun um árviss verkefni fyrir skipasmíðaiðnaðinn” — segir Bjarni Einarsson framkvæmdastjóri — Þegar rætt er um skipai$naðinn er ekki hægt að ræða um hann, nema í einni heild yfir landið. Við eigum innanlandsmarkað, sem árlega annar 4000 tonnum. Það verður hins vegar að' segjast eins og er, að innanlandsmarkaðinn verður aðbyggja upp með stefnumótun yfirvalda svo að fyr- irtækin innanlands hafi næg verkefni og geti annað eftirspum. Það þarf að afnema. þessa óreglu- legu endumýjun fiskiskipaflotans, sem sést best á því, að á 13 árum er enginn togari keyptur, en síðan kemur gusa inn á tveimur til þremur árum, sem veldur því, að Fiskveiðasjóður er í fjár- svelti. Þegar endurnýjun flotans er gerð í stórum stökkum er fjármagn bundið fram í tímann og bitnar það á innlendum skipasmíðastöðvum, en þar eru seglin dregin saman. Það er mjög brýnt að gera áætlun um árviss verkefni, svo að innlend skipasmíði þróist á eðlilegan hátt. Þetta kom fram í viðtali sem F.V. átti við Bjarna Einarsson, framkvæmdastjóra Skipasmíða- stöðvar Njarðvíkur, en 'hann er einn af stofnendum fyrirtækis- ins og hefur verið stjórnarfor- maður alla tíð, en fram- kvæmdastjóri frá 1971 VERKEFNASKORTUR FYRIRSJÁANLEGUR Og Bjami heldur áfram: — Árið 1976 gerist margt í senn. Mikil breyting á sjóðakerfi sjávarútvegsins. Sá hluti tjóna, sem var í sjálfsábyrgð eigenda hækkaði gífurlega, sem varð strax til iþess að eigendur frest- uðu viðgerðum, sem hafði þau áhrif að hjá okkur kom upp verkefnaskortur. Þá var um tvennt að ræða að segja upp fólki og fá það ekki aftur, eða hafa það á launum við mis- munandi arðbær störf. Þess má geta að við sóttum um lán til Fiskveiðasjóðs til endur- byggingar á báti, sem fyrir- tækið á, en fengum neitun. Við teljum að endurbygging bátsins eigi rétt á sér bæði hvað gildi bátsins snertir og eins að brúa þetta erfiða tíma- bil. Nú er sama sagan að endur- taka sig. Við höfðum næg verk- efni fram í miðjan febrúar, en þegar þau fóru minnkandi sótt- 60 FV 3 1977

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.