Frjáls verslun - 01.03.1977, Síða 91
------------------------------- AUGLYSING ----
HLSGAGIXIAVIIMIVUSTOFA INGVARS OG GYLFA:
Vönduð svefnherbergishúsgögn
og hillusamstæður
Húsgagnavinnustofa Ingvars
og Gylfa, Grensásvegi 3 á 20
ára starfsafmæli í maí í vor.
Þa.r eru framlcidd vönduð
svefnherbergishúsgögn og
hillusamstæður í ýmsum viðar-
tegundum. Fyrirtækið hefur
ennfremur yfir 600 m- versl-
unarhúsnæði að ráða, þar sem
framleiðslan er seld, auk ann-
arra húsgagna s.s. sófasctta;
Mest áhersla er lögð á smíði
svefnherbergishúsgagnanna,
sem eru framleidd í ýmsum
viðartegundum, en framleiddar
eru 23 gerðir af hjónarúmum
og náttborðum, en einnig getur
fylgt snyrtiborð.
Hillusamstæðurnar eru fram-
leiddar í hnotu, palisander,
tekki, wenge og ljósri eik. Mál-
in í 'hverri einingu eru 1.85 m
á hæð, 92 cm. á breidd og dýpt-
in er 47 cm.
í versluninni eru einnig seld
sófasett af ýmsum gerðum svo
og sófaborð. Lögð er áhersla á
að vera eingöngu með innlend
húsgögn. Aftur á móti eru flutt
inn rúmteppi í miklu úrvali af
ýmsum gerðum.
Ingvar og Gylfi selja fxam-
leiðslu sína eingöngu gegnum
verslunina og hafa því getað
selt húsgögnin á lægra verði.
25 manns starfa hjá húsgagna-
vinnustofu Ingvars og Gylfa.
HEIIUILID:
Nýstárleg hjónarúm i sérflokki
Heimilið Sogavegi 188 flytur
inn nýstárleg og falleg hjóna-
rúm í sérflokki, sérstaklega
ætluð ungu fólki. Þessi hjóna-
rúm hafa það fram yfir önnur
hjónarúm, að í gaflinum er inn-
byggt útvarp, klukka, lesljós
og næturljós, sem eru undir
náttborðsplötunni, sem er áföst
við rúmið sjálft. Þessi nætur-
ljós eru mjög hentug ef sinna
þarf börnum að nóttu til.
Þessi nýstárlegu rúm eru
flutt inn frá Belgíu, bæði al-
bólstruð með fallegu áklæði í
mörgum gerðum og einnig úr
ýmsum viðartegundum. Með
hjónarúmunum m'á fá snyrti-
borð og einnig sérpantaða fata-
skápa í sama stíl. Verð á þess-
um rúmum er mjög hagstætt,
eða frá 135 þús. kr.
Heimilið býður fjölbreytt úr-
val af 'húsgögnum bæði inn-
fluttum og íslenskum s.s. ýms-
ar gerðir af sófasettum með
leður- og tauáblæði, sófaborð-
um, hillusamstæður af mörgum
gerðum í ýmsum viðartegund-
um, körfustóla, ho.rnskápa, sem
bæði má nota fyrir skrauthill-
ur og bar, hornhillur, klukkur,
forstofuspegla með eða án ljóss.
En sérgrein fyrirtækisins er
smíði borðstofuhúsgagna, sem
til eru í miklu úrvali í verslun-
inmi, en einnig eru þar seld
innflutt borðstofuhúsgögn. Þau
eru til í sýrubremmdri eik,
palisander, hnotu og tekki.
Þegar verslunin er lokuð
svarar sjálfvirkur símsvari
hringingum í síma 37210 og
gefur allar helstu upplýsingar
um húsgagnaúrvalið í verslun-
inni. Heimilið læitur viðskipta-
vinum sínum þá þjónustu í té,
að sérpanta húsgögn ef þess er
óskað.
FV 3 1977
91