Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1979, Side 21

Frjáls verslun - 01.07.1979, Side 21
kvæmt sérstöku kerfi en ekki er tekiö tölvuúrtak. Aftur á móti gerir ríkisskattstjóri slík úrtök og sendir þá viökomandi skattstjóra þaö til meðferðar. í framhaldi af þessu má taka fram aö ríkisskattstjóri hefur með höndum skattrann- sóknir fyrir allt landiö auk bók- haldsrannsókna. ,,En í þessum til- fellum sagði Gestur ,,þá veröur aö gera greinarmun á rannsóknum og venjulegum ,,tékkunum“.“ Skattamál fyrnast á sex árum. Hve lengi má búast viö athuga- semdum skattayfirvalda viö fram- töl? Því er til aö svara aö yfirferð yfir öll framtöl er ekki lokið fyrr en á fyrstu mánuðum næsta árs á eftir þannig aö t.d. var yfirferð fyrir áriö 1978 ekki lokið fyrr en í mars í vor. En endurupptaka þessara mála er leyfileg allt aö sex ár aftur í tímann en þá fyrnist málið. Að lokum skal þess getið að ef eitthvaö óhreint virðist í poka- horninu þá er skattayfirvöldum heimilt aö kalla menn til skýrslu- geröar, og þar meö yfirheyrslu, á skattstofu. Ríkisskattstjóri. Fjármálaráöherra skipar ríkis- skattstjóra og því embætti gegnir nú Sigurbjörn Þorbjörnsson. Verksviö embættisins er ,,að hafa eftirlit með störfum skattstjóra og gæta þess að samræmi sé í gerö- um þeirra og ákvörðunum." (Lög um tekjuskatt og eignarskatt, nr. 40/1978, XI. kafli, 101. gr.) Ríkis- skattstjóri er þannig æösti yfir- maður skattsins, að fjármálaráð- herra undanskyldum. Hann getur breytt úrskurði skattstjóra í ýmsum málum, t.d. á skattstofni og álagn- ingu, ef honum þurfa þykir. Viö embætti ríkisskattstjóra er starfandi rannsóknardeild sem hefur það verkefni aö halda skattaeftirlit og rannsóknir og yfir- maöur þeirrar deildar er skatt- rannsóknarstjóri. Skattrannsókn- arstjóri hefur frjálsar hendur um aö athuga allt sem þurfa þykir og einnig getur hann faliö skattstjór- um slíkar rannsóknir. Þá athugar hann þau mál sem ríkisskattstjóri felur honum. Hægt er aö kæra einstök mál til ríkisskattstjóra en viö komum bet- ur að því í kaflanum um kærur. En úrskurður ríkisskattstjóra er endanlegur og honum er ekki hægt aö áfrýja. Kærumál. Alltaf er nokkuö um að framtelj- endur kæri álagningu sína og eftirfarandi tafla sýnir fjölda kæra á síðustu árum: Fjöldi kæra einstaklingar félög 1976 3450 475 1977 2350 450 1978 2500 410 Viömælandi okkar í sambandi við kærumálin var Björn Þórhalls- son en hann hefur lengi átt sæti í framtalsnefndinni í Reykjavík og hefur því mikla reynslu af slíkum málum. Viö skulum, til aö byrja meö, líta á þá aðila sem taka viö kærum og leiðirnar sem færar eru. Ef fram- teljandi er ekki ánægöur með álagningu sína hefur hann um fjórar leiðir að velja: 1) hann getur sent kæru til skattstjóra (og er úr- skurði skattstjóra hægt aö áfrýja til Hitda setur markiðhátt Hilda hefur á rúmlega 15 ára starfsævi sinni náð því marki að gera íslenskan ullarfatnaö að vönduðum og eftirsóttum tískufatnaði erlendis. Með markvissri sölu- og kynningarstarf- semi og gæðahönnun, auk góðs samstarfs við þau 16 fyrirtæki víðsvegar um land sem framleiða fatnaö fyrir Hildu, hefur þetta orðið að veruleika. En við setjum markið hátt og stefnum á nýja sigra. HILDA HF. BOLHOLT 6 SÍMI8 16 99 PÓSTHÓLF 7029 REYKJAVÍK 21

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.