Frjáls verslun - 01.07.1979, Qupperneq 29
irhugað er að sveitarfélagið láti
skipuleggja fyrir bústaði.
Gróska í framleiðslu sumarbú-
staða.
Hér á landi eru ýmis fyrirtæki
sem framleiða sumarbústaði. Þak
hf. á Álftanesi er eitt þessara fyrir-
tækja, en það framleiðir eingöngu
sumarbústaði, og er framleiðslan
um 20 bústaðir á ári. Þak hf. hefur
framleitt sumarbústaði í átta ár
bæði fyrir einstaklinga og félaga-
samtök. Fyrirtækið hefur byggt níu
sumarbústaði fyrir bandalag há-
skólamanna í Brekkulandi í Bisk-
upstungum og fjóra sumarbústaði
fyrir starfsmannafélag Landhelg-
isgæslunnar vestan við Bjarkar-
lund svo eitthvað sé nefnt fyrir ut-
an mikinn fjölda sumarbústaða
fyrir einstaklinga um allt land.
Sumarbústaðirnir sem Þak hf.
framleiöir eru af sömu gerð en
tveimur stærðum, 36 m2 og 46 m2.
Minna húsið er með 9 m2 svefnlofti
og 32 m2 verönd fyrir utan grunn-
flöt, en í stærri húsunum er svefn-
loft 111/22 en verönd 39 m2. Húsin
eru klædd með furu að innan, með
furuhurðum, stiga upp á loft og
eldhúsinnréttingu, þ.e.a.s. allt tré-
verk fylgir. Fyrir utan uppsetningu
kosta minni bústaðirnir frá Þaki hf.
5.5 milljónir en stærri bústaðirnir
kosta 6.6 milljónir. Uppsetninga-
kostnaður er frá 1.0—1.8 milljónir
að meðaltali með flutningi.
Undanfarið hefur mátt sjá aug-
lýsingu í blöðum um sumarbú-
staði, sem fáanlegir eru á ýmsum
byggingastigum. Frjáls verzlun
hafði samband við Jón Ástvalds-
son húsasmið, sem framleiðir í fé-
lagi við aðra þessa sumarbústaði.
Bústaðirnir eru 44 m2 að grunnfleti
með 20 m2 verönd, og eru smíð-
aðir á byggingastaðnum sjálfum
en ekki í verksmiðju. Hægt er að fá
bústaöina frá fokheldum til full-
smíðaðra bústaða. Fullsmíðaður
sumarbústaður klæddur með
grenipanel að innan og með furu-
panel á gólfum, auk koja og rúm-
stæða kostar 6.5 milljónir króna,
en afgreiðslufrestur er u.þ.b. einn
mánuður.
Undanfarin fjögur ár hafa verið á
markaðnum svokölluð KR-sumar-
hús sem Kristinn Ragnarsson
húsasmíðameistari framleiöir.
Sumarbústaöirnir eru framleiddir í
5 stærðum frá 32—50 m2, en auk
þess er 12—22/2 m2 verönd eftir
stærðum og gerðum.
Bústaðirnir eru fáanlegir á öllum
byggingarstigum, allt frá fokheld-
um og upþ í fullfrágengna með
öllum innréttingum og hreinlætis-
tækjum, en verðið er frá 5 milljón-
um til 12 milljóna króna. Að innan
eru húsin klædd með furupanel.
Nokkrir aðilar hér á landi flytja
inn sumarbústaði, einkum frá
Norðurlöndunum s.s. Noregi og
Finnlandi. Eitt þessara fyrirtækja
er H. Guðmundsson, sem flytur inn
sumarbústaði frá Finnen fyrirtæk-
inu í Finnlandi. Fluttar eru inn 60
gerðir af sumarbústöðum, og eru
verðflokkar mjög mismunandi.
Bæði er hægt að fá staðlaða sum-
arbústaði og eins eru þeir fram-
leiddir eftir pöntunum, og stærð-
irnar geta verið allt frá 2 m2 upp í
500 m2. Húsin eru öll bjálkahús og
eru bjálkarnir til í mismunandi
þykkleikum. Verð á 45 m2 sumar-
bústað getur verið frá 4.7—6.3
milljónir.
Hjá þeim framleiðendum og
innflytjendum sumarbústaða, sem
blaðið hafði samband við kom
fram að mikil eftirspurn hefur verið
hjá þeim eftir sumarþústöóum í
sumar.
Sumarbústaðalönd til sölu.
í vor og sumar hefur mátt reka
augun í auglýsingar um sumarbú-
staðalönd til sölu, þó ekki hafi þau
verið mörg. Dæmi um eitt slíkt er
að nýlega voru auglýst sumarbú-
staðalönd austur í Biskuþstung-
um, milli 20 og 30 lönd, á kjarri
vöxnu svæði í fögru umhverfi. Er
stærð hvers lands u.þ.b. 3.300 m2,
en verðið er um 1.3 milljónir króna,
sem virðist vera gangverð fyrir slík
lönd nú. Strax og þessi lönd voru
auglýst var mikil eftirspurn eftir
þeim, svo sem verið hefur um öll
þau sumarþústaðalönd, sem aug-
lýst hafa verið undanfarið. Svo
virðist, sem kapþhlauþinu um að
eignast sumarbústað og sumar-
bústaðaland sé hvergi nærri lokið,
því áhugi fólks í þéttbýlinu fer sí-
fellt vaxandi.
□
r
Hver
selur
hvað?
Þegar þu þarft að afla þér
upplýsinga um hver hafi umboð
fyrir ákveðna vöru eða selji hana
þá er svarið að finna í iSLENSK
FYRIRTÆKI sem birtir skrá yfir
umboðsmenn vöruflokka og
þjónustu sem íslensk fyrirtæki
bjóða upp á
Sláið upp í
ÍSLENSK FYRIRTÆKI
og finnið svarið.
ÍSLENSK
FYRIRTÆKI
Ármúla 18.
Símar 82300 og 82302
29