Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1979, Qupperneq 39

Frjáls verslun - 01.07.1979, Qupperneq 39
kössum með rauðum borðum allt í kring. ,,Svona merkir Tom Holton sinar vörur“, sögðu þeir. ,,Þegar við komum að sækja sendingu í tollinn sjáum við um leið hvar okkar vara er.“ Smáatriði eins og þetta geta haft mikið að segja. Annars eru íslenzku ullarvör- urnar að ryðja sér mikið til rúms hér og er óhætt að binda miklar vonir við þann markað í framtíð- inni. Svo ég haldi mig nú við spurn- inguna, sem þú beindir til mín, þá er mín skoðun sú að það sé ekki efnilegt fyrir unga og duglega menn heiman af íslandi að koma hingað til að taka við forstöðu í sölufyrirtæki. Hitt er annað mál, að ungir og efnilegir Islendingar eiga að koma hingað og setja sig inn í ameríska sölumennsku og aðferð- ir. Þá geta þeir áreiðanlega orðið eins hæfir í þeim störfum eins og hverjir aðrir. Þarna kemur svo ótal margt til greina. Til dæmis málið. Menn verða að tala sama mál og t.d. fisksalinn. Hann hefur sína eigin ensku. Vitanlega geta íslendingar lært þetta. Við sáum til dæmis hvernig maður eins og Jón Gunn- arsson, sem hingað kom á sínum tíma fyrir SH, vann stórvirki við að hleypa freðfisksölunni af staö hér í Bandaríkjunum. Svo við snúum okkur að lag- metinu aftur. Hvaða tegundir þess hafa helzt öðlazt vinsældir hér? ívar: — Murta úr Þingvalla- vatni varð ákaflega vinsæl og var á góðri leið með að verða okkar aðalsmerki í lagmetismálum hér í Bandaríkjunum. Það var mikið spurt um hana. Hingað á þessa skrifstofu komu fyrirspurnir dag eftir dag um það, hvar hægt væri að fá hana. En svo varð hún skyndilega illfáanleg. Markaðs- uppbyggingin, sem var vel á veg komin, var allt í einu stöðvuð. Maður hefur heyrt einhverjar óljósar fréttir af því að aðrir aðilar en Sölumiðstöó lagmetis eða Niö- ursuðuverksmiðjan Ora, sem seldu þessa afurð, hafi boðið bændum betra verð fyrir murtuna, og líka aö Evrópumarkaðurinn hafi verið betri vegna gengisskráning- ar marksins. Afleiðingin er sú, að kaupendur hér hafa ekki fengið það magn, sem þeir biðja um. Einn aðili, sem keyptir hér, 6000 kassa af murti í fyrra, fær t.d. ekki nema 1700 íár. Þetta leiðir hugann að öðru vandamáli, sem ég veit að ég fæ engar þakkir fyrir að nefna upp- hátt. Okkur hættir til þess íslend- ingum að virða ekki samninga. Þó að sölusamningur hafi verið gerð- ur fyrir allt árið hika menn ekki við að rifta honum ef betra verð er í boði annars staðar. Þetta gera auðvitað ekki allir. En svona fram- koma kemur áorði á okkur í heild. En nú fæst murtan ekki lengur. Hvað er þá helzt selt af lagmetis- vörum hér? I'var: — I bili eru það svokall- aðir kipper-snacks, sem er reykt síld. Upphaflega er þetta brezkur réttur. Englendingar hafa margir hverjir borið hann fram á morgun- verðarborði og gera enn. Þar sem mikið hefur verið um búsetu Skota og Englendinga í þessu landi við- halda afkomendur gjarnan þess- um matarvenjum. Hafa engir möguleikar opnast á aukinni sölu landbúnaðarafurða okkur hingað til Bandaríkjanna? Nú minnist maður þess, að í fyrra var sagt frá sölu á nýslátruðu lambakjöti hingað vestur. Gafst sú tilraun illa? ívar: — Þetta kjöt, sem kom í sláturtíðinni í fyrra, líkaði alveg prýðilega. Fyrirtækið, Grunebaum að nafni, sem annaðist innflutn- inginn, hefur keypt mikið af kjöti frá Danmörku og Hollandi. Til dæmis er vel þekkt niðursoðið svínslæri, sem þetta fyrirtæki selur hér á kjötmarkaði. Það er enginn vafi á að okkar lambakjöt líkar vel. En Nýsjálendingar selja sitt lambakjöt miklu ódýrara en við getum. Hverjir keyptu þetta ferska kjöt frá íslandi? ívar: — Það voru aðallega grískir veitingastaðir og kjötkaup- menn. En við þessa tilraun kom fram að sinn er siður í landi hverju. Við fengum athugasemdir um það hvernig kjötið var skorið. Kaup- endurnir vildu að eitt rif fylgdi frampartinum. Þannig voru þeir vanir að hafa það og svona skyldi það vera. í þessari grein útflutnings þarf að hafa mikla aðgát við umbúðir eins og öðrum. Það var á tak- mörkum að nógu vel væri að því staðið. Nú er hins vegar búið að leggja mönnum heima lífsreglurn- ar og eitthvert framhald verður á þessum kjötkaupum eftir því sem ég bezt veit. Það er annað skemmtilegt í sambandi við Grunebaum. Það er hugmynd um að framleiða niður- soðið lambslæri í staðinn fyrir svínakjöt og þá alveg sérstaklega með tilliti til þess að Gyðingar mega ekki borða svínakjöt. Kan- nski yrði þetta kallað ,,Lamb— ham“! Grúnebaum hefur soðið niður nokkrar dósir og sent til Sambandsins sem sýnishorn. Það þarf tiltölulega lítil vélakaup fyrir þessa framleiðslu, er mér sagt, og Grúnebaum vill aðstoða við hana. En svo er það bara spurningin, hvort hægt er að gera þetta á því verði, sem gengur hér. Er verð á íslenzkum afurðum yfirleitt í hærra lagi fyrir þennan markað? Ivar: — Það er það alveg óneitanlega. En þetta virðist ganga. íslenzkar ullarvörur eru óneitanlega fokdýrar hér. Peys- urnar kosta 90 til 100 dali í betri búðum hér. En þær seljast. í þessu sambandi verður maður að hafa í huga að álagningin hér er geysi- leg. Nú óttast menn að orkukreppa sé í aðsigi. Hefur það vakið ein- hverja aðila hér vestan hafs til fyrirspurna um nýtingu orku á ís- iandi til einhverrar framleiðslu- starfsemi? ívar: — Ég hef ekki orðið var við það. Ekki enn sem komið er að minnsta kosti. Manni skilst að áhugi ráðamanna heima á stóriöju útlendinga sé ekki fyrir hendi eins og sakir standa alla vega og áhugi forsvarsmanna fyrirtækja hér er líklega í lágmarki. Frásagnir af Kröfluævintýri hafa valdið því. 39
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.