Frjáls verslun - 01.07.1979, Síða 74
Áhugi á
framleiðslu
úr perlusteini
Akurnesingar og Borgnesingar hafa sýnt það í
verki að þeim er það kappsmál að koma á fót nýjum
iðnfyrirtækjum. í Borgarnesi var sett á laggirnar sér-
stök nefnd „Nýgreinanefnd" sem hafði það hlutverk
með höndum að safna saman hugmyndum um
hugsanlega iðnaðarframleiðslu. Á þennan hátt var
safnað saman á annað hundrað tillögum og hug-
myndum. Eftir flokkun þeirra og frekari athuganir,
hafa orðið eftir nokkrar hugmyndir sem ætlunin er að
taka fyrir og reyna að gera að veruleika. Þessi aðferð
er athyglisverð og án efa gæti hún komið mörgum
sveitarfélögum að góðu gagni í viðleitni þeirra til
uppbyggingar atvinnulífs, enda sjá betur augu en
auga.
Samvinna um perlusteinsiðnað
Eins og kunnugt er finnst perlusteinn i gífurlegu
magni í fjallinu Prestahnúki á Kaldadal. Þótt ekki sé
nema hálftíma akstur frá Húsafelli að Prestahnúki þá
er komiö inná hálendissökkulinn þar sem allra veðra
er von meiri hluta ársins og snjóþyngsli mikil, jafnvel
langt fram á vor. Það er því ekki hlaupið aö því að ná
perlusteini í stórum stíl ofan af Kaldadal, þar sem til
þess þyrfti aðra tækni og aöferðir en flutning með
vörubílum svo hagkvæmt geti talist.
Perlusteinn er glerkennt líparít, að því leyti sérstakt
að það hefur í sér bundna vatnskristalla. Þegar efnið
er hitað upp í um 1100°C þenur bundna vatnið stein-
inn út þannig að hann verður að frauðkenndum kúl-
um, mjög léttum, sem hafa ýmsa mjög æskilega
eiginleika. Þaninn perlusteinn er t.d. góð varmaein-
angrun, hljóðeinangrunareiginleikar eru mjög góðir
auk þess sem efnið er eldtraust. Fyrir utan aðra eig-
inleika, sem gera perlustein mjög verðmætt efni í
efnaiðnaði, er hægt að framleiða úr honum, eða
blöndu af honum og öðrum efnum, fjölmargar gerðir
byggingarefna til mismunandi nota. í íslenzka perlu-
steininum á Kaldadal er mismunandi mikið af hrafn-
tinnu og feldspati, en þessi efni, eða magn þeirra,
ráða nokkru um það hitastig sem steinninn þarf að ná
til að þenjast út og hafa áhrif á hve auðvelt er að þenja
efnið með árangri.
Á sínum tíma var stofnuð gosefnanefnd á vegum
iðnaðarráðuneytisins fyrir frumkvæði Magnúsar
Kjartanssonar þáverandi iðnaðarráðherra. Verkefni
nefndarinnar var að rannsaka hagnýtingarmöguleika
sem kynnu að felast í ýmsum jarðefnum hérlendis,
þ.á m. perlusteins. Nefndin annaöist einnig samskipti
við Iðnþróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna, UNIDO
[ Vín, en sú stofnun lagði til sérfræðiaðstoð og fé til
kaupa á rannsóknartækjum. Þegar gosefnanefnd var
lögð niður tók Iðnþróunarstofnun islands, nú Iðn-
tæknistofnun, við áframhaldi rannsóknaverkefna.
Meðal þess sem Iðnþróunarstofnun gerði var að
starfrækja lítinn ungverskan þensluofn fyrir perlu-
stein, sem komið hafði verið fyrir í Sementsverk-
smiðju ríkisins á Akranesi. Sú tilraunastarfsemi stóð
yfir um hríð, en niðurstöður hennar voru fyrst og
fremst þær að efnið væri nothæft, íslenzkan perlu-
stein mætti þenja og nota sem iðnaðarhráefni.
I framhaldi af þessu komu fram óskir frá opinberum
aðilum um að einkaaðilar könnuðu möguleika á því
að koma á fót iðnrekstri þar sem byggt væri á notkun
þerlusteins. Árangurinn varð sá, að stofnuö voru 3
áhugafélög um perlustein, eitt í Borgarnesi og
Borgarfirði, annað á Akranesi og eitt í Reykjavík og
Hveragerði. Þessi þrjú fyrirtæki, Prestahnúkur í
Borgarnesi, Perla á Akranesi og Ylfell í Hveragerði,
tóku fljótlega upp samvinnu þar sem stefnt var að
ákveðinni verkaskiþtingu. Þannig átti Perla á Akra-
nesi að standa fyrir kaupum á þensluofni með fullum
afköstum fyrir iðnaðarframleiðslu, en Prestahnúkur í
Borgarnesi og Ylfell störfuðu að vöruþróun og til-
raunum með framleiðslu.
Fyrir tilstilli Iðntæknistofnunar, sameinuðust síðan
þessi fyrirtæki í hinu fjórða, Perlusteinsvinnslunni hf.,
en hlutverk þess fyrirtækis á að vera starfræksla
námunnar á Kaldadal, flutningur efnis til framleið-
enda og útflutningur perlusteins, ef af honum yröi.
Áhugi hins opinbera dvínar
Áhugasamir aðilar í öllum þessum félögum hafa
unnið mikið starf við athuganir og tilraunir á nýtingu
perlusteins og hafa notið aðstoðar Iðntæknistofnun-
ar. Þótt nú séu liðin 2 ár síðan Perlu á Akranesi var
ætlað að hefjast handa um kaup á þensluofni, hefur
ekkert þokast í þá átt. Sú furðulega staða er komin
Uþp í málinu, að hið opinbera virðist ekki lengur hafa
þann áhuga sem áður var á að koma þessum málum í
höfn, þar sem staðið hefur á lánsfyrirgreiðslu til
kaupa á þensluofni. Þensluofn er frumforsenda þess
að einhver iðnaður verði byggöur upp á perlusteini.
Sá þensluofn, sem settur var upp hjá SR á Akranesi á
sínum tíma, er aðeins gerður til tilrauna, hann er
nánast rannsóknastofutæki sem ekki afkastar meiru
en einum rúmmetra af þöndum perlusteini á klukku-
stund. Á þeim ofni verður aldrei byggt iðnfyrirtæki
enda lætur nærri að í fullkomnum tegundum ofna
megi þenja 25 rúmmetra á klukkustund með svipuð-
um gangtímakostnaði.
Svipað viröist vera uppi á teningnum varðandi
námavinnslu og perlusteinsflutninga frá Kaldadal.
Hið opinbera fjárveitingavald virðist ekki vera jafn
sannfært um gildi perlusteinsiðnaðar og þær opin-
beru stofnanir sem annast hafa rannsóknir og til-
raunir og því gengur treglega að fá lánsfé til þess að
ráöast í framkvæmdir. Eru aðilar áhugamannafélag-
anna í Borgarnesi, á Akranesi og fyrir austan fjall, að
vonum orðnir langeygir eftir einhverjum aðgerðum
þeirra sem öllu fjármagni ráða til atvinnuupþbygg-
ingar í landinu.
74