Frjáls verslun - 01.09.1979, Blaðsíða 23
f höfninni í Le Havre í Frakklandi. Gámaflutningaskip losað með sér-
stökum gámakrönum.
Gallar við gámaflutninga
Þótt kostir gámanna séu margir
þá hafa þeir einnig sína galla og
veröa hér nefnd nokkur atriöi:
1. Gámar eru dýrir. Venjulegur
gámur kostar t.d. hátt á aöra millj-
ón íslenskra króna. Viöhalds-
kostnaöur er einnig mikill.
2. Nýting lestarrýmis skips er ekki
eins góö og i venjulegu skipi sem
lestar lausa vöru.
3. Eigin þyngd gáma er veruleg
4. Margar hafnir hafa ekki tæki eöa
aðstöðu til gámaflutninga.
5. Ef flutningsmagn er ekki í jafn-
vægi í báðar áttir, þarf aö flytja
tóma gáma til baka. Sama máli
gegnir ef flutningsmagn er ekki
gámtækt nema aöra leið.
6. Auk gámanna sjálfra þarf að
fjárfesta mikið í tækjum og búnaöi
sem nauðsynleg eru viö gáma-
flutninga. Sérsmíöuö gámaskip,
hafnaraðstaða, stór gáma-
geymslusvæöi, sérstök af-
greiðslutæki o.s.frv.
Gámaskip og
notkun gáma
Eins og áöur sagöi voru 1025
gámaskip í notkun um síðustu
áramót í heiminum og geta þau
flutt 684.989 tuttugu feta gáma. Á
sama tíma voru alls í smíðum 323
gámaskip samtals 4.460.000 DWT
(Dead Weight ton). Þau geta flutt
alls 331.000 tuttugu feta gáma.
í árslok 1977 voru um 70 „Roll
on-Roll off“ skip í notkun á löng-
um siglingaleiðum meö eina millj-
ón DWT buröargetu. Stærsta
gámaskip í heimi getur tekið um
3000 tíu feta gáma. Það er af svo-
kallaðri ,,Lift on-Lift off' gerð.
Algengt er aö skipafélög leigi
gáma frá fyrirtækjum, sem fram-
leiða gáma og leigja þá út. Stærsta
gámaleigufyrirtæki í heiminum er
CTI (Container Transport Inter-
national). Um síöustu áramót átti
þaö fyrirtæki 220.000 TEUS og
hefur gámaeign þess tvöfaldast á
síðustu tveimur árum. Fyrir fimm
árum áttu gámaleigufyrirtæki um
25% af öllum gámum í heiminum,
en nú eiga þau um 50%. Gámar
eru dýrir og á tímum mikilla breyt-
inga er oft áhættuminna að leigja
en eiga.
Flokkun gámaskipa
1. Sérsmíðuð gámaskip. Ein-
göngu notuð til flutninga á gám-
um.
— a. Skip með gámabrautum.
Sérstakar brautir (cellur) eru í
skipinu til að skorða gámana af.
Gámum er hlaðið í allt að fjórar
hæðir frá þilfari.
— b. ,,Box Carrier". Stór
kassalaga lest sem passar ná-
kvæmlega fyrir ákveðinn fjölda
gáma í breidd og hæð. Einnig
veruleg buróargeta á dekki.
2. Gámaskip að hluta. Þá er ein-
göngu hluti af lestarrýminu ætlað-
ur fyrir gáma.
— a. Hluti af lestarrýminu er
ætlaður fyrir ,,Ro-Ro" vörur, þ.e.
vörur á hjólum.
— b. Hluti af lestarrýminu er
ætlaður fyrir stórflutning (bulk-
vöru, t.d. korn, kol o.s.frv.).
3. „Ro-Ro skip". Þessi skip eru
til af ýmsum stærðum og gerðum,
en eiga það eitt sameiginlegt, að
varan er svo til eingöngu lestuð á
þann hátt, að hún er keyrð inn og
út úr skipinu.
4. Skip með takmarkaða gáma-
flutningagetu, þar sem ekki er gert
ráð fyrir mörgum gámum, en al-
mennt er reiknað með lausri vöru
eða vöru á brettum.
Tegundir af
gámum
Auk algengustu tegunda af
gámum sem nota má til flutnings á
fjölbreytilegustu tegundum af vör-
23