Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1979, Side 29

Frjáls verslun - 01.09.1979, Side 29
Óskir skipafélaganna Hafnarstjóri kvað rætt hafa verið við skipafélögin um þessa nýju aðstöðu og spurzt fyrir um óskir þeirra í þessum efnum. Upphaf- lega komu óskir frá Eimskipafé- laginu þar sem fram kom að flutn- ingar félagsins mundu æ meir verða gámaflutningar. Var óskað eftir meira leyfilegu álagi á hafnar- bakkann en áður hefur tíðkazt við hina hefðbundnu aðferð við losun og lestun. Á Sundabakka er t.d. leyfilegt álag 2,5 tonn á fermetra en verður 4 tonn á fermetra á hinum nýja Kleppsbakka. Óskir Eimskipafélagsins miðuðust meira við hina svonefndu ,,lo—lo" að- ferð, en ,,ro—ro“ aðferðin væri þó ekki útilokuð. Hafskip hf. kom svo nýlega með sínar óskir, sem gera einkum ráð fyrir losun og lestun með ,,ro—ro" aðferðinni. Til að leysa vanda Haf- skips um sinn, hefur verið gerð bráðabirgðabrú fyrir hið nýja leiguskip félagsins vió vöru- skemmurnar á Grandagarði. Þar verður hægt að aka á land léttari vögnum. Vegna sjávarfalla mun þó nýtingarmöguleikinn takmarkaður hvað varðar hliðarportin á skipinu. Hafskip njóti forgangs Oft hefur því heyrzt fleygt að Eimskipafélag Islands njóti óeöli- lega mikillar fyrirgreiðslu hjá hafnaryfirvöldum Reykjavíkur. Hafnarstjóri kvað Eimskipafélagið um langt skeið hafa verið lang- stærsta viðskiptavin hafnarinnar. Hins vegar teldi hann að svo vel hefði verið búið að félaginu með alla aðstöðu, að þaö gæti vel við unað um sinn. Hefði hann persónulega lagt til í hafnarstjórn að næst bæri að leysa vanda Haf- skips, sem aka þarf stórum hluta flutningsins með skipum félagsins um langan veg til vöruskemma, sem standa fjarri hafnarbakka. ,,Við Kleppsbakkann nýja hugs- um við okkur að hægt verði að leysa vandamál gámaflutninga- skipanna. Þar eiga tvö slík að geta lagzt að í einu. Þá verður vandi þessara ,,multi—purpose" skipa, eða fjölhæfu skipa, eins og Haf- skip hefur tekið á leigu, einnig leystur. Þar verður hægt að losa skipin út um hliðarport, en jafn- framt hægt að aka tengivögnum í land um skut skipanna. Þá verður einnig hægt að vinna við skipin á gamla mátann", sagði hafnar- stjóri. KS shrifstofuhúsgðgn SKR1FBORD STCLAR FUNDABORD HILLUR&SKÁFAR GOÐ NÝTING AUKIN MQNDI, FALLEG HONNLJN KRISTJflfl SIGGEIRSSOn LAUGAVEGI 13, REYKJAVÍK, SÍMI 25870 29

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.