Frjáls verslun - 01.09.1979, Síða 35
Úrelt löggjöf
í sparisjóðslögum er þaó tekið
fram, að sjóðirnir megi ekki ganga
í ábyrgð fyrir einstaklinga eða
fyrirtæki. Forráðamenn sparisjóð-
anna eru mjög óánægðir meö aö
þurfa að sitja undir þessu ákvæði.
frumvarpi að nýjum lögum um
sparisjóði er aftur á móti gert ráð
fyrir heimild til aö ganga í ábyrgð.
Þykir talsmönnum í samtökum
sparisjóðanna tími til kominn að
þeir njóti sömu aðstöðu og minnsti
bankinn, sem er þó nokkuð miklu
minni en hver hinna þriggja
stærstu sparisjóða í landinu.
Núgildandi lög um sparisjóði eru
úrelt orðin, enda frá árinu 1942.
Ákvæði um ábyrgðarmenn og
hlutverk stjórna sparisjóöanna eru
óraunhæf og samvinna sparisjóð-
anna er illmöguleg miðað við þau
lög, sem í gildi eru. I frumvarpi til
nýrra laga, sem smíðað hefur verið
og lagt var fram á Alþingi, er í
meginatriðum gert ráð fyrir að
sparisjóðirnir verði hliðstæðir
bönkunum í sem flestum greinum.
Hjá sambandi sparisjóðanna er
stefnt að því að efla sjóðina hvern
um sig með aukinni samvinnu.
Tekin hefur verið upþ svo kölluð
landsþjónusta sparisjóðanna, sem
gerir þeim mönnum kleift, sem
skipta við sparisjóð að leggja inn
eða taka út af reikningi sínum í
hvaða sparisjóði sem er á landinu.
Þá er og áformað að hefja nánari
samvinnu í tölvunotkun og á ýms-
um öðrum sviðum, sem enn eru á
umræðustigi.
Útilegan misheppnast aldrei, ef
væröarvoöin frá Gefjun er viö hendina
þegar veðrið bregst. Rigning, næturkuldi
og rysjótt veóur skipta nær engu máli
þann, sem er umvafinn hlýju og nýtur
þægilegrar snertingar islensku ullarinnar
mjúku i Gefjunar væröarvoðinni.
Hentug til aö breiða yfir bilsætiö, tryggir
Ijúfan hádegisblund og er til flestra hluta
" Værðarvoðin
fráCefjun
- vel þegin gjöf.
GEFJUN AKUREYRI
J-TEPPI Stærö, 1,40x2.00 cm
Tviofin. Um 20 mynsturgeröir
aö velja
GS-TEPPI Emofin, kogruö
Stærö, 1 40 x 1.70 cm tynr
kögur 20 mVnsturgeröir
Stærstl sparlsjóðurinn, Sparlsjóður Hafnarfjarðar opnaði nýlega úti-
bú. Þetta er útibússtjórinn Hildur Haraldsdóttir.
35